laugardagur, 7. mars 2009

Sólin er að setjast eftir fínan dag, veðurlega séð allavega. Hitinn fór í 9° og það var bara nokkuð hlýtt í sólinni enda er hún farin að vera andi hátt á lofti. Vorið er eitthvað að hika, spáð kólnandi næstu daga. Annars er ekki alltaf að marka þessa spá.

Strákarnir eru eins og kýr að vori. Bara læti, hávaði (einhver furðuhljóð í ömurlegri tóntegund) og galsi. Jeminn hvað ég er þreytt í hausnum stundum, þetta er hávaðamengun...... Akkúrat núna er Julian, 7 ára, að garga "banana, banana" með einhverri óþekkjanlegri rödd! Núna er það "halló, halló, dadaradada"........Er ekki hægt að skrúfa fyrir svona???

Kallinn er þó ekki að ergja mig með sínum bílakaupssamtölum.........þessi bílasölumenn eru spes tegund. Hann hringir í mig kl. 23 í gærkvöld, kominn til Erfurt í A-Þýskalandi, nær ekki í þann sem hann ætlaði að kaupa bíl af, vantaði símanúmer á hóteli til að gista á............Á meðan hringir þessi kall og Seydi kaupir bílinn, keyrir af stað heim, sefur smá í bílnum og kemur hingað að verða 9 í morgun með rúnstykki og "Mett". Eins og hann hefði ekki getað fundið hótel sjálfur.......ég er viss um að hann vildi bara heyra í mér :) Reyndar var hann með kerru aftaní, ekki hægt að leggja hvar sem er. Þessir bílasölukallar.........

Mamma gaf mér tösku í afmælisgjöf. Hún var með miða frá Garún Garún (því miður búin að henda miðanum). Það stendur "Iceland" mörgum sinnum á henni. Kannski þekkir einhver þessar töskur. Fást t.d. á pósthúsinu á Húsavík. En allavega. Ég get svarið það að ég sá stelpu með svona tösku á hjólinu sínu, nema það stóð "Berlin" á henni...........nú spyr ég mig. Eru þessar töskur búnar til hjá Garún Garún EÐA er þær bara keyptar að utan og þetta merki sett á???? Rennilásinn er líka merktur. Forvitni mín er vakin.

Jæja, pakkapastað soðið. Best að fá sér í gogginn. Veit ekki hvort að hávaðaseggjunum þóknast svona matur.

Góða helgi.

4 ummæli:

  1. Sæl Inga mín! Hávaði hvað? Þeim væri nú illa í ætt skotið ef þeir væru ekki með hávaða þessar elskur. Eg veit ekkert um þessar töskur gæti skoðað betur á pósthúsinu, það voru líka til minni töskur úr leðri með sömu áletrun. Hafið það gott. Kveðja og knús. Mamma

    SvaraEyða
  2. Rétt mamma, hávaði fylgir þessar fjölskyldu en þetta er óvenjulega mikill hávaði, óvenjuleg hljóð og óvenju mikið......
    Vonast eftir rólegum degi í dag. Við sváfum lengi, Seydi ekki heima og rigning úti.

    Ég reyndi að gúggla þetta Garún Garún en fann ekkert. Henti miðanum sem var á töskunni. Þar stóð eitthvað um hönnuð osfrv.

    Knús

    SvaraEyða
  3. ja fussum svei á mig! ég var búin að kíkja hérna inn á þetta blogg og þegar farin að bíða eftir nýju! já og taldi fyrir víst að ég hefði þegar kvittað á þetta hjá þér, en þegar betur var að gáð hafði "frú trygg" ekki kvittað hjá "frú traustu"... ég má ekki klikka svona á þessu!
    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  4. ég varð nú að ath. hver væri þarna á bakvið "Frú Trygg" þó að ekki komi margir til greina ;)

    Knús á þig

    SvaraEyða