þriðjudagur, 31. mars 2009

*VOR*


Nú held ég að vorið sé endanlega komið. Ég bara trúi ekki öðru. Sá m.a. þessa maríubjöllu í dag, einnig fullt af RISA randaflugum, gult fiðrildi, svart/appelsínugult fiðrildi, fullt af flugum og pöddum. Fuglarnir keppast við að syngja sem hæst. Fólk er skriðið úr híðum, sumir komnir á stuttermaboli (mér finnst heldur svalt til þess). Sólin skein í allan dag, hitinn fór í um 15° og akkúrat núna er sólin að setjast, himinninn er bleikur.

Þegar ég keyrði úr vinnunni í dag fór ég fram úr tæki sem var að slá meðfram veginum. Ilmandi graslykt barst í vit mín.........yndislegt. Fór á leikvöllinn með strákana. Bärbel bauð í bakaríisgotterí en hún á afmæli í dag. Völlurinn var fullur af hlæjandi börnum og göturnar af fólki á gangi, á vespum eða hjólum.

Ég tek það fram að ég er EKKI að blogga um þetta til að ergja þá sem sitja fastir í skafli. Svona var bara dagurinn hjá mér í dag.

Dottin í imbann, fyrst að koma gaurum í ró :)

Ég sendi hér með skilaboð til vorsins um að drífa sig til Íslands.........

6 ummæli:

  1. já þú mátt líka senda smá vor til mín, vorið fraus í sporunum hér og hætti bara við að framkallast! það rignir bara og rignir með hitastigið rétt fyrir ofan frostmarkið...
    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. hehe, þú hefur alveg bókað pirrað lesendur á norðurlandi með þessum vorpistli;)

    Bið að heilsa maríubjöllunni...
    kv.
    Rakel

    SvaraEyða
  3. OK Stella, sendi smá til þín líka.
    Oj rigning og rétt yfir frostmarki, það hljómar ekki vel....

    Kannski hef ég pirrað einhverja sem eru á kafi en kannski líka gefið þeim smá upplífgun í þessu vetrarríki sem þarna er.... Allt hvítt og því eru kannski myndir af litum að gera sig!

    SvaraEyða
  4. Hæ hæ, já snjórinn er ansi pirrandi. Hér eru teknar snjómyndir á hverjum degi. Það kemur vonandi einhverntíman vor hér, njóttu þess í Þýskalandi elskan. Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  5. Já mamma, ég nýt vorsins. Sól og hlýtt í dag.
    Alveg veður til að fara í tívolí. Kannski um helgina.

    Kveðja

    SvaraEyða
  6. Já yndislegt að vorið er að koma...það styttist í það hér líka...kemur í júní hehehe.

    Njóttu vorsins
    Heiðrún

    SvaraEyða