Nú held ég að vorið sé endanlega komið. Ég bara trúi ekki öðru. Sá m.a. þessa maríubjöllu í dag, einnig fullt af RISA randaflugum, gult fiðrildi, svart/appelsínugult fiðrildi, fullt af flugum og pöddum. Fuglarnir keppast við að syngja sem hæst. Fólk er skriðið úr híðum, sumir komnir á stuttermaboli (mér finnst heldur svalt til þess). Sólin skein í allan dag, hitinn fór í um 15° og akkúrat núna er sólin að setjast, himinninn er bleikur.
Þegar ég keyrði úr vinnunni í dag fór ég fram úr tæki sem var að slá meðfram veginum. Ilmandi graslykt barst í vit mín.........yndislegt. Fór á leikvöllinn með strákana. Bärbel bauð í bakaríisgotterí en hún á afmæli í dag. Völlurinn var fullur af hlæjandi börnum og göturnar af fólki á gangi, á vespum eða hjólum.
Ég tek það fram að ég er EKKI að blogga um þetta til að ergja þá sem sitja fastir í skafli. Svona var bara dagurinn hjá mér í dag.
Dottin í imbann, fyrst að koma gaurum í ró :)
Ég sendi hér með skilaboð til vorsins um að drífa sig til Íslands.........
já þú mátt líka senda smá vor til mín, vorið fraus í sporunum hér og hætti bara við að framkallast! það rignir bara og rignir með hitastigið rétt fyrir ofan frostmarkið...
SvaraEyðabestu kveðjur
hehe, þú hefur alveg bókað pirrað lesendur á norðurlandi með þessum vorpistli;)
SvaraEyðaBið að heilsa maríubjöllunni...
kv.
Rakel
OK Stella, sendi smá til þín líka.
SvaraEyðaOj rigning og rétt yfir frostmarki, það hljómar ekki vel....
Kannski hef ég pirrað einhverja sem eru á kafi en kannski líka gefið þeim smá upplífgun í þessu vetrarríki sem þarna er.... Allt hvítt og því eru kannski myndir af litum að gera sig!
Hæ hæ, já snjórinn er ansi pirrandi. Hér eru teknar snjómyndir á hverjum degi. Það kemur vonandi einhverntíman vor hér, njóttu þess í Þýskalandi elskan. Kveðja mamma.
SvaraEyðaJá mamma, ég nýt vorsins. Sól og hlýtt í dag.
SvaraEyðaAlveg veður til að fara í tívolí. Kannski um helgina.
Kveðja
Já yndislegt að vorið er að koma...það styttist í það hér líka...kemur í júní hehehe.
SvaraEyðaNjóttu vorsins
Heiðrún