Smá vorblogg með vormyndum í dag. Lóan er komin til Íslands og framundan er yndislegur tími vorsins. Ég er sérstaklega hrifin af vorinu hérna í Þýskalandi. Útum allt er eitthvað í blóma, núna eru það krókussar, nokkrar páskaliljur er líka sprungnar út, runnar eru að springa út. Sérstaklega fallegir verða gulu "forsythien" runnarnir.

(Ég tók þessa mynd af Wikipedia)
Ég keyrði framhjá borgarmúrnum í dag og tók myndir af krókussunum þar.


Vertu ávallt velkomið elsku vor. Ég er að venjast því aftur að fleira fólk er á ferðinni, maður þarf að passa sig betur þegar keyrt erum á bíl, eða bara labbandi. Að verða t.d. ekki fyrir hjóli. Svo er líka föstudagur í dag og þá er mikil umferð á bílum og fólki.
GÓÐA HELGI
vá vorið þitt er greinilega alveg mætt - hér er það svona alveg í startholunum, en maður finnur að það nálgast hratt! góða helgi...
SvaraEyðaRunnarnir á efstu myndinni eru reyndar aðeins að byrja að blómstra. Þessvegna tók ég mynd af Wiki.
SvaraEyða