mánudagur, 27. apríl 2009

Kvöldblogg

Best að rita nokkrar línur áður en ég fer í bólið. Ætla annað hvort að horfa smá á imbann eða byrja á nýrri bók. Kláraði loksins "Sér grefur gröf" í gær og tók "Aska" í dag. Virðist vera nýkomin á bókasafnið. Heitir "Das glühende Grab" eða logandi gröfin, á þýsku. Seydi var að koma inn úr dyrunum, friðurinn sem sagt úti......svo mikill hávaði sem fylgir honum, eins og fíll í postulínsbúð.

Ég ætla sko ekki að blogga neitt um kosningar, ekki um neitt krassandi eins og svínapest eða fótbolta. Nei, ég ætla bara að blogga um eitthvað, allt og ekkert. Ég býst ekkert við mikilli lesningu á mínu bloggi enda ekki hægt að tengja við moggafréttir og afla þannig athygli. Moggabloggið virkar bara ekki hjá mér, ég get ekki einu sinni kvittað hjá moggabloggurum! Helvíti fúlt stundum. Ætlaði að kvitta við skáksíðuna hans Denna í dag. Óska Hlyni frænda til hamingju með sigurinn á skákmótinu. Ég geri það bara hér með. TIL HAMINGJU ELSKU HLYNUR SNÆR. Þú er flottur.

Vorið er orðið venjulegt núna, sumarið farið í bili. Hitinn "bara" 15° í dag og skýjað. Sólin lét sjá sig annað slagið. Það er allt í lagi að fá venjulegan apríl. Svo má maí koma með sól og sumaryl. Fínt að hafa 1.maí á föstudegi :) Við Bärbel ætlum á djammið á fimmtudagskvöldið. Alltaf mikið um að vera hér 30.4, kallast að dansa inn í maí eða "Tanz in den Mai". Þið lásuð rétt......d j a m m i ð!!! Ég var ekki viss um hvort ég gæti stafað þetta orð lengur.........Ég VERÐ bara að muna að drekka vatn með svo ég eyði ekki 1.maí í bólinu, ælandi og spúandi. Drekka líka í hófi......

Í gærkvöld var ég svoooooo þreytt að ég dottaði hangandi í stólnum fyrir framan imbann. Rétt náði að henda mér inn í rúm áður en ég datt útaf. Þetta var rétt rúmlega tíu. Já, maður er að verða gamall og lúinn :)

Blómin á svölunum dafna vel. Nokkur blóm sprungin út. Virðist líða vel hjá mér, ennþá allavega. Ég verð bara að muna að vökva þau reglulega........
Það er allt svo í blóma hérna, rauðir, bleikir, hvítir, gulir, fjólubláir, appelsínugulir ofl. runnar og tré. Bleiku kirsuberjatrén eru að missa bleiku blöðin, því miður :( Ávaxtatrén taka við en þau eru oftast "bara" með hvít blóm. Mér finnst trén sérstaklega fallega á vorin meðan að laufblöðin eru skærgræn og ósködduð af hinum og þessum pöddum. Ekkert ryk á þeim, bara skærgræn og falleg. Nóg er nú af trjánum hérna. Gulu akrarnir er líka í blóma, þ.e. repjan.
Já, vorið er yndislegt.

Nú tekur þreytan yfirhöndina. Góða nótt og vonandi rætist úr einhverju á Íslandi. Það er ekki endalaust hægt að segja "þetta reddast" EÐA?

þriðjudagur, 21. apríl 2009

Músagangur

Við fengum gest á verkstæðið. Mús hafði nagað súkkulaði sem lá í nammiskálinni, gott nougat súkkulaði frá Ritter, greinilega mús með smekk :) Útum allt lágu litlir skítar, ég þreif þá í dag. En það fór illa fyrir músinni litlu..........þessi saga er sönn:

Í gær fór ég með flöskur af verkstæðinu í endurvinnslutækið í REWE (matv.búð). Þar fær maður pening fyrir flöskurnar. Ég dreg fyrstu flöskuna upp úr pokanum, legg hana á færibandið og lít inn í gatið........"HVAÐ ER ÞETTA Í FLÖSKUNNI" hugsa ég......... DAUÐ MÚS, var niðurstaðan! Ég var of sein að grípa í flöskuna, hún fór á færibandið inn í endurvinnsluherbergið. SHIT, vonandi sér engin flöskuna, vonandi er enginn að vinna við endurvinnsluna núna. Nei, sem betur fer var enginn þarna inni. Konan sem var að þrífa hitt tækið sá ekkert. Hjúkkit........og verði þeim að góðu sem er að sortera flöskur! OJ BARA, aumingja hann/hún.

Að öðru. Sólin bara skín og skín, ég er orðin hálf brennd á mínu háa enni. Flekkirnir á því sjást enn betur. Það er eins og að nokkrar freknur hafi ákveðið að færa sig og búa saman í hrúgu! Efst á enninu er svo freknufrítt pláss. Hefur örugglega eitthvað að gera með barnsfæðingar. Kannski eru þetta elliblettir????

Það var gott að komast í vinnuna aftur. Engir krakkar sem alltaf vilja eitthvað, engin rifrildi og læti. Líka fínt fyrir þá að fara í skóla/leikskóla. Eru þá ekki alltaf saman, dag og nótt. Julian hlakkaði til að fara aftur í skólann, Henrik fannst líka gaman að hitta alla aftur. Þessi eilífðar keppni í sonum mínum getur farið yfir strikið.......þeir keppast um allt. Ætli mamma segi ekki núna að við Unnur höfum verið eins? Það er sko ekki auðvelt að reyna að standa sig sem uppalandi! Það finnst mér allavega, þessi ábyrgð er mikil. Í páskafríinu fékk ég reyndar að heyra það að synir mínir væru vel upp aldir/alnir (æi hvernig er þetta skrifað, Unnur?), bara til fyrirmyndar.........það væri greinilegt að hugsað væri vel um þá. Æi, þetta var gott fyrir móðurhjartað :) Kannski er ég ekkert eins glötuð og mér finnst ég stundum vera.

Jæja, þetta verður rólegt kvöld. Henrik er alveg búinn að vera, sofnaði yfir matnum, óbaðaður og í fötunum. Var að fara með hann inn í rúm. Julian er meðfærilegur og verður ekki til vandræða. House í TV í kvöld. Best að koma sér í heimabuxur og setjast fyrir framan imbann, eða lesa smá.

Knús og kveðjur

föstudagur, 17. apríl 2009

Svona tók Norderney við mér, allavega um kvöldið. Alveg yndislegt og veðrið var gott allan tímann. Reyndar var austan vindurinn svalur 2 daga en þá var maður bara í skjóli. Það var gott að heyra í mávum og öðrum sjófuglum, fyrir utan að sjá sjóinn. Endalausar strendur og múgur og margmenni. Mikið af ríku fólki í sínum Jack Wolfskin (66° föt Þýskalands) og Lacoste fötum. Ég passaði flott inn í massann í minni 66° flíspeysu :) Var bara eins og hver önnur rík kona, hahaha.

Ég er til í að fara þarna aftur, helst að sumri til og liggja á ströndinni og bakast í sólinni. Það er reyndar mjög dýrt að vera þarna, hótelin dýr og íbúðirnar líka. Best að vera þarna á hjóli, fínt að leigja það bara á einni af mörgum hjólaleigunum. Hægt að versla í Plus ef maður er í íbúð. Væri samt fínt að vera á hóteli og þurfa ekki að elda eða laga til...... Sjáum til.

Mér finnst vera mánudagur í dag en það er víst föstudagur, ég þarf að skúra sameignina en fyrst af öllu koma Henrik í afmæli, allra fyrst að kaupa afmælisgjöf..........farin í það.

Góða helgi

laugardagur, 11. apríl 2009

Ég fer í fríið...

Ætlum að leggja í hann á eftir. Ekki til Tyrklands, nei nei, við ætlum að keyra til Norderney í Norðursjónum. Kona sem var kúnni hjá okkur flutti þangað, rekur þar gistiheimili og ætlum við að vera þar í 3-5 daga. Veðrið á að vera fínt, ekki alveg eins hlýtt og hér en við setjumst þá bara í strandkörfurnar frægu. Fyrst þurfa allir að vakna og við að fá okkur í gogginn.

Gleðilega páska, aftur :)

fimmtudagur, 9. apríl 2009

Páskar, vor ofl.

Vorið er svo að flýta sér að það er varla hægt að njóta fallegu gulu, bleiku, hvítu blómanna á runnum og trjám lengi.......þau eru orðin græn á nóinu! Svona er það þegar vorið verður að halda niðrí sér of lengi. Það er gjörsamlega allt að springa hérna. Á örfáum dögum hafa trén fengið á sig grænan lit, bara svona allt í einu, hviss bang búmm. Tek mest eftir þessu á trjánum fyrir utan gluggana í herbergjunum.

Engin frídagur hér í dag, páskarnir byrja því á morgun. Ég fór í vinnuna í morgun, skráði bíl fyrir kúnna, þreif á verkstæðinu, skrifaði reikninga og fór smá í bókhaldið. Var komin heim um kaffileytið og ákvað að hafa alvöru kaffitíma með strákunum. Slökkti á öllum tækjum og ekkert heyrðist nema fuglasöngur úti. Eitthvað verður maður að gera þegar strákarnir gera mikið af því að rífast og nöldra........úff, þeir eru rosalegir. Ég held að það sé útaf skóla- og leikskólaleysi! Það er nú líka þannig að við höfum ekki mikið af fólki sem við umgöngumst svo að strákarnir eru MIKIÐ saman og fá því oft nóg af hvor öðrum. En nú er spáð góðu veðri um páskana svo að eitthvað munum við gera saman. Ekkert ráðið ennþá en ég efast um að við förum til Tyrklands enda eru verðin VEL smurð í fríum. Læt vita ef við förum eitthvað í burtu.

Best að kíkja á kartöflurnar sem eru að sjóða. Er með fisk í ofni líka.

GLEÐILEGA PÁSKA.

mánudagur, 6. apríl 2009

Páskafrí

Þá er 1. páskafríið hans Julian byrjað, leikskólinn er líka lokaður þessa vikuna. Ég er því heima, svaf til 7:30, borðaði morgunmat og sólin skín. Dagurinn má byrja :)

Við þurfum að labba í bókasafnið á eftir. Þeir eru með opið frá 10-12 í fríum. Ætli ég renni svo ekki á verkstæðið á eftir. Þarf líka að versla smá líka. Ég ætla að vona að ég komist ósködduð úr þessu fríi... Ég meina þá að hafa strákana "yfir mér" allan daginn! Þeir eru ansi duglegir að rífast þessa dagana. Þess á milli leika þér tímunum saman. Varla búnir að opna augun þegar þeir eru farnir að leika. En þeir geta líka rifist útaf öllu og engu! Sjálfsagt er þetta ekkert óvanalegt og margir sem kannast við svona. Nú er galli að hafa engan til að senda þá til, engin amma, engin frænka, þannig...... Foreldrar Seydi myndu alveg passa ef ég YRÐI að gera eitthvað ein en mamma hans er engin manneskja til að vera lengi með þá. Höndlar það bara ekki. Systir Seydi hefur nóg að gera með sín tvö og að halda íbúðinni "sleikhreinni". Greyið strákarnir þurfa að þola mömmu sína daginn út og inn........ ha ha.

Annars er aldrei að vita nema við förum eitthvert í frí. Kannski til Tyrklands í viku, kannski bara eitthver hér í Þýskalandi. Við erum opin fyrir öllu. Skruppum í smá bíltúr í gær. Seydi fór að kaupa bíl í Münsterland, ekki langt frá Coesfeld. Við náðum í bílinn, lögðum honum á leiðinni og skruppum aðeins yfir til Hollands. Fengum okkur að borða, keyptum ýmislegt og tókum diesel. Þurftum ekkert kaffi enda nóg til, Seydi keypti helling fyrir skömmu í Luxemburg. Ég keypti tesíu á Senseo vélina mína. Var búin að kanna hvað hún kostaði á netinu og þar var hún á um 8€. Þarna kostaði hún 2,95 €, aldeilis góð kaup. Keypti handa Unni systur líka.

Jæja, ég á eftir að fara í sturtu, ganga frá eftir morgunmatinn og setja í þvottavél áður en við förum í bókasafnið.

Eigið góðan dag.