mánudagur, 27. apríl 2009

Kvöldblogg

Best að rita nokkrar línur áður en ég fer í bólið. Ætla annað hvort að horfa smá á imbann eða byrja á nýrri bók. Kláraði loksins "Sér grefur gröf" í gær og tók "Aska" í dag. Virðist vera nýkomin á bókasafnið. Heitir "Das glühende Grab" eða logandi gröfin, á þýsku. Seydi var að koma inn úr dyrunum, friðurinn sem sagt úti......svo mikill hávaði sem fylgir honum, eins og fíll í postulínsbúð.

Ég ætla sko ekki að blogga neitt um kosningar, ekki um neitt krassandi eins og svínapest eða fótbolta. Nei, ég ætla bara að blogga um eitthvað, allt og ekkert. Ég býst ekkert við mikilli lesningu á mínu bloggi enda ekki hægt að tengja við moggafréttir og afla þannig athygli. Moggabloggið virkar bara ekki hjá mér, ég get ekki einu sinni kvittað hjá moggabloggurum! Helvíti fúlt stundum. Ætlaði að kvitta við skáksíðuna hans Denna í dag. Óska Hlyni frænda til hamingju með sigurinn á skákmótinu. Ég geri það bara hér með. TIL HAMINGJU ELSKU HLYNUR SNÆR. Þú er flottur.

Vorið er orðið venjulegt núna, sumarið farið í bili. Hitinn "bara" 15° í dag og skýjað. Sólin lét sjá sig annað slagið. Það er allt í lagi að fá venjulegan apríl. Svo má maí koma með sól og sumaryl. Fínt að hafa 1.maí á föstudegi :) Við Bärbel ætlum á djammið á fimmtudagskvöldið. Alltaf mikið um að vera hér 30.4, kallast að dansa inn í maí eða "Tanz in den Mai". Þið lásuð rétt......d j a m m i ð!!! Ég var ekki viss um hvort ég gæti stafað þetta orð lengur.........Ég VERÐ bara að muna að drekka vatn með svo ég eyði ekki 1.maí í bólinu, ælandi og spúandi. Drekka líka í hófi......

Í gærkvöld var ég svoooooo þreytt að ég dottaði hangandi í stólnum fyrir framan imbann. Rétt náði að henda mér inn í rúm áður en ég datt útaf. Þetta var rétt rúmlega tíu. Já, maður er að verða gamall og lúinn :)

Blómin á svölunum dafna vel. Nokkur blóm sprungin út. Virðist líða vel hjá mér, ennþá allavega. Ég verð bara að muna að vökva þau reglulega........
Það er allt svo í blóma hérna, rauðir, bleikir, hvítir, gulir, fjólubláir, appelsínugulir ofl. runnar og tré. Bleiku kirsuberjatrén eru að missa bleiku blöðin, því miður :( Ávaxtatrén taka við en þau eru oftast "bara" með hvít blóm. Mér finnst trén sérstaklega fallega á vorin meðan að laufblöðin eru skærgræn og ósködduð af hinum og þessum pöddum. Ekkert ryk á þeim, bara skærgræn og falleg. Nóg er nú af trjánum hérna. Gulu akrarnir er líka í blóma, þ.e. repjan.
Já, vorið er yndislegt.

Nú tekur þreytan yfirhöndina. Góða nótt og vonandi rætist úr einhverju á Íslandi. Það er ekki endalaust hægt að segja "þetta reddast" EÐA?

4 ummæli:

  1. já, bara mín á djammið!!!!!, ánægð með ykkur vinkonurnar:)

    Hér er sko vorið komið, var að koma inn úr hjólaferð í Elliðaárdalnum og svo tína rusl í garðinum...það er svo mikill vorfílingur í því:) ég nefnilega sætti mig alveg við hita undir 15 gráðum;)

    Góða nótt:*
    kv.
    Rakel

    SvaraEyða
  2. Alltaf jafn dugleg systir :)
    Vorfílingurinn er góður, sama hvernig veðrið er. Rigning hérna núna. Allt ilmar af gróðri.
    :*

    SvaraEyða
  3. Hæ, vil bara benda þér á gott orðatiltæki sem er oft viðhaft í euroklúbbnum mínum, "ég var bara í plíseruðu þann eða hinn daginn". Yfir höfuð tengjum við plíserað við gamlar konur.... Verð bara að vera hreinskilin og segja að aldurinn færist algjörlega jafnt yfir okkur öll.

    Bestu kveðjur til Barbel (get ekki gert a með tveimur kommum) og góða skemmtun á djamminu. Það er líka alveg hægt að fara á djammið án þess að drekka áfengi, hvorki þynnka né faðmlög við klósettskálina daginn eftir.

    Knús á alla, Unnur Mjöll.

    Fyrir Hlyns hönd þakka ég fyrir..

    SvaraEyða
  4. Haha, er Halla Tryggva. með þér í klúbb? Hún sagðist, á facebook, ætla að fá sér plíserað ;)

    Ég fer ekki á djammið til að vera edrú, það er hægt en mér finnst það leiðinlegt. Basta.

    Já Hlynur er aldeilis frábær í skákinni :) Ég spjallaði einmitt við hann á msn rétt áður en hann fór á mótið :)

    Vorkveðja

    SvaraEyða