þriðjudagur, 21. apríl 2009

Músagangur

Við fengum gest á verkstæðið. Mús hafði nagað súkkulaði sem lá í nammiskálinni, gott nougat súkkulaði frá Ritter, greinilega mús með smekk :) Útum allt lágu litlir skítar, ég þreif þá í dag. En það fór illa fyrir músinni litlu..........þessi saga er sönn:

Í gær fór ég með flöskur af verkstæðinu í endurvinnslutækið í REWE (matv.búð). Þar fær maður pening fyrir flöskurnar. Ég dreg fyrstu flöskuna upp úr pokanum, legg hana á færibandið og lít inn í gatið........"HVAÐ ER ÞETTA Í FLÖSKUNNI" hugsa ég......... DAUÐ MÚS, var niðurstaðan! Ég var of sein að grípa í flöskuna, hún fór á færibandið inn í endurvinnsluherbergið. SHIT, vonandi sér engin flöskuna, vonandi er enginn að vinna við endurvinnsluna núna. Nei, sem betur fer var enginn þarna inni. Konan sem var að þrífa hitt tækið sá ekkert. Hjúkkit........og verði þeim að góðu sem er að sortera flöskur! OJ BARA, aumingja hann/hún.

Að öðru. Sólin bara skín og skín, ég er orðin hálf brennd á mínu háa enni. Flekkirnir á því sjást enn betur. Það er eins og að nokkrar freknur hafi ákveðið að færa sig og búa saman í hrúgu! Efst á enninu er svo freknufrítt pláss. Hefur örugglega eitthvað að gera með barnsfæðingar. Kannski eru þetta elliblettir????

Það var gott að komast í vinnuna aftur. Engir krakkar sem alltaf vilja eitthvað, engin rifrildi og læti. Líka fínt fyrir þá að fara í skóla/leikskóla. Eru þá ekki alltaf saman, dag og nótt. Julian hlakkaði til að fara aftur í skólann, Henrik fannst líka gaman að hitta alla aftur. Þessi eilífðar keppni í sonum mínum getur farið yfir strikið.......þeir keppast um allt. Ætli mamma segi ekki núna að við Unnur höfum verið eins? Það er sko ekki auðvelt að reyna að standa sig sem uppalandi! Það finnst mér allavega, þessi ábyrgð er mikil. Í páskafríinu fékk ég reyndar að heyra það að synir mínir væru vel upp aldir/alnir (æi hvernig er þetta skrifað, Unnur?), bara til fyrirmyndar.........það væri greinilegt að hugsað væri vel um þá. Æi, þetta var gott fyrir móðurhjartað :) Kannski er ég ekkert eins glötuð og mér finnst ég stundum vera.

Jæja, þetta verður rólegt kvöld. Henrik er alveg búinn að vera, sofnaði yfir matnum, óbaðaður og í fötunum. Var að fara með hann inn í rúm. Julian er meðfærilegur og verður ekki til vandræða. House í TV í kvöld. Best að koma sér í heimabuxur og setjast fyrir framan imbann, eða lesa smá.

Knús og kveðjur

11 ummæli:

  1. heheh, við erum líkar, hendum okkur í heimabuxur!! það væri alveg hægt að gera heila disney bíómynd um músina "þína"...
    (held að þeir séu vel upp aldnir - þori þó ekki að staðfesta það
    ;-)... bestu kveðjur

    SvaraEyða
  2. Haha ja, næsta Ratatouille mynd, nema með sorglegum endi....

    Aldnir já, hmmmmm, minnir mig á að vera gamall, kannski er það rétt?

    SvaraEyða
  3. Þú ert góð móðir Inga, og það veistu:) ...þeir bara reyna svolítið á þessir orkuboltar þínir og þá kannski FINNST þér þú vera gera allt rangt, en svo er bara ekki:)

    En oj með músina....hvernig fór hún eiginlega að því að troða sér inn í plastflösku!!! sennilega nett mús, þrátt fyrir súkkulaðiát;)

    knús & koss á þig:*
    Rakel

    SvaraEyða
  4. æhh maður dæsir bara, skyldum við allar velta fyrir okkur hvort við séum nógu góðar fyrir þessi kríli? skil þig samt vel, það getur tekið á að vera heima í fríi eða saman 24/7 yfir höfuð.
    Annars áttum við yndislega páska fyrir norðan, grófum okkur snjóhús, fórum í snjóbað (mamma gróf ormana í fönn og þeir breyttust í snjóskrímsli) og nutum þess að vera saman.
    Mér finnst ég vera að upplifa alveg yndislega tíma með stubbunum, þeir eru endalaust að skella á mann gullkornum. Tómas Ingi á t.d. fimm kærustur en Oddur Fannar ætlar bara að giftast mömmu sinni. Svo beið Tómas óþolinmóður eftir því að mamma færi að syngja á fundi sem hann var með á í vinnunni- hann sá nefnilega bikarinn sem mamman vann í vinnu-karaokekeppni (manstu- við vorum góðar:-D) í fyrra og taldi að sjálfsögðu að þetta væri hluti af vinnunni á hverjum degi- að reka upp gól:-)
    Núna er mamman að æfa sig í að halda lága rómnum þannig að hávaðastigið aukist ekki endalaust:-)
    Já, þetta er löööönnnngg jafnvægisslá sem við erum á mín kæra.
    knús úr Kef,
    Helga

    SvaraEyða
  5. Takk Rakel mín kæra. Það er satt að þessir orkuboltar sem ég á, reyna ansi oft á taugarnar. Þá er bara að reyna að halda taugunum :)

    Þetta hefur verið lítil mús, enda voru skítarnir mini, mini ;)

    En gaman að heyra frá þér Helga mín. Æi þeir eru svo yndislegir gaurarnir, 5 kærustur, hahaha. Henrik segir að tvær séu skotnar í honum en hann er ekkert að pæla í því, ennþá.

    Já þetta er vandvirkt "verkefni" að gera sómasamlegar manneskjur úr þessum krílum.

    Knús á ykkur öll :)

    SvaraEyða
  6. Gleðilegt sumar!!!

    Ég get svarið það en það er alveg 10 stiga hiti úti núna, vorhreingerningin stendur yfir, Hlynur á galeiðunni í dag, handboltamót í bænum, Viddi í snjósleðaferð, ég get hlustað á euro-útvarpið í friði í allan dag,dásamlegt, get ekki lagað til í garðinum því þar er enn snjór, þvottavélin er á útopnu, er að sjóða hrísgrjónagraut og egg, hvað eru samt Þjóðverjar að hugsa með þessu hörmungarlagi? maður spyr sig hreinlega, það á að segja vel upp aldir, ég þarf að pakka inn fermingargjöfinni til Hrannars og ýmislegt annað. The end. Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  7. það er víst ekki nema 5 stiga hiti úti, þetta átti bara að líta vel út....Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  8. Bara klikkað að gera Unnur :) Oh það er svo indælt að vera einn heima.
    Veistu, ég hef ekki hlustað á Eurovision lögin enn......ég ætti að skammast mín.

    Hér er sko sumarveður, reyndar "bara" 15° en sól annað slagið. Spáð geggjuðu um helgina.

    Knús á þig og þína

    SvaraEyða
  9. Já þú ættir klárlega að skammast þín mín kæra...

    Búin að ryksuga og skúra allt, skipta í nokkrum blómum, búin að kvitta tvisvar sinnum hjá þér, geri aðrir betur.....Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  10. Tvisvar Unnur, þú meinar ÞRISVAR. Þetta líst mér á. Mamma sagðist hafa hringt í þig í gær til að spyrja hvort að þú værir orðin galin, hahaha.

    Ég fer í Eurovisiondæmið sem fyrst!

    Sólarkveðja

    SvaraEyða
  11. ég er einmitt ekki heldur búin að standa mig í Euroinu núna, bara séð þau lög sem komu í sjónvarpinu á laugardag í þætti hjá Páli Óskari. Eurovisiongírinn verður settur í botn 9.maí, ekki fyrr býst ég við....en þá verða líka græjurnar stylltar í botn;)

    knús & koss...já og góða helgi, ji hvað tíminn líður...
    kv.
    Rakel

    SvaraEyða