Þá er 1. páskafríið hans Julian byrjað, leikskólinn er líka lokaður þessa vikuna. Ég er því heima, svaf til 7:30, borðaði morgunmat og sólin skín. Dagurinn má byrja :)
Við þurfum að labba í bókasafnið á eftir. Þeir eru með opið frá 10-12 í fríum. Ætli ég renni svo ekki á verkstæðið á eftir. Þarf líka að versla smá líka. Ég ætla að vona að ég komist ósködduð úr þessu fríi... Ég meina þá að hafa strákana "yfir mér" allan daginn! Þeir eru ansi duglegir að rífast þessa dagana. Þess á milli leika þér tímunum saman. Varla búnir að opna augun þegar þeir eru farnir að leika. En þeir geta líka rifist útaf öllu og engu! Sjálfsagt er þetta ekkert óvanalegt og margir sem kannast við svona. Nú er galli að hafa engan til að senda þá til, engin amma, engin frænka, þannig...... Foreldrar Seydi myndu alveg passa ef ég YRÐI að gera eitthvað ein en mamma hans er engin manneskja til að vera lengi með þá. Höndlar það bara ekki. Systir Seydi hefur nóg að gera með sín tvö og að halda íbúðinni "sleikhreinni". Greyið strákarnir þurfa að þola mömmu sína daginn út og inn........ ha ha.
Annars er aldrei að vita nema við förum eitthvert í frí. Kannski til Tyrklands í viku, kannski bara eitthver hér í Þýskalandi. Við erum opin fyrir öllu. Skruppum í smá bíltúr í gær. Seydi fór að kaupa bíl í Münsterland, ekki langt frá Coesfeld. Við náðum í bílinn, lögðum honum á leiðinni og skruppum aðeins yfir til Hollands. Fengum okkur að borða, keyptum ýmislegt og tókum diesel. Þurftum ekkert kaffi enda nóg til, Seydi keypti helling fyrir skömmu í Luxemburg. Ég keypti tesíu á Senseo vélina mína. Var búin að kanna hvað hún kostaði á netinu og þar var hún á um 8€. Þarna kostaði hún 2,95 €, aldeilis góð kaup. Keypti handa Unni systur líka.
Jæja, ég á eftir að fara í sturtu, ganga frá eftir morgunmatinn og setja í þvottavél áður en við förum í bókasafnið.
Eigið góðan dag.
Hafið það gott í páskafríinu, vonandi kemurðu heil undan því fríi hehe.
SvaraEyðapáskakveðjur
Heiðrún
Góðan daginn. Ég er að hugsa um að skella í svo sem eitt stykki kvitt..
SvaraEyðaBara frí til Tyrklands? Það er bara svona...
Hér er veðrið fínt, skógarþrestirnir komnir og farnir að syngja svona ljómandi vel á morgnana, yndislegt. Held að mömmu finnist það ekkert spes, hm...
Ég er búin að vera heima í dag, amma kom í heimsókn, hún skokkaði til mín eins og tvítug, ég þurrkaði af, tók fram páskaskrautið, þvoði Völsungsbúninga eftir leikinn í gær þar sem ég var línuvörður og uppskar lítið nema strengi...
Pistillinn búinn, þið eruð velkomin í páskalærið með okkur öllum hérna hjá mér á páskadag, nóg til.
Bestu kveðjur til ykkar, Unnur Mjöll
Það er spurning með geðheilsuna eftir fríið Heiðrún..... Hafið það líka gott í fríinu.
SvaraEyðaJá ég væri sko aldeilis til í læri hjá þér Unnur mín. Vorið hlýtur bara að fara að koma af krafti hjá ykkur. Lóan löngu komin.
Þurfa línuverðir s.s. að þvo búninga? haha. Fínt að fá smá strengi er það ekki :)
Heyrumst fljótlega og takk fyrir skemmtilegt kvitt :)
já það væri sko fínt að geta sent piltana til ömmu & afa eða til mín og fá smá Ingutíma í friði:)
SvaraEyðaVonandi samt að þið hafði það gott um páskana þrátt fyrir 24/7 oní hvert öðru....verið bara dugleg að kíkja eitthvað út.
Við ætlum að hafa það kósý um páskana heima á Hú, förum reyndar ekki fyrr en á fimmtud.kvöld eða föstudag því Villa frænka er að ferma hér á fimmtudag!!
Já, og bytheway, þá verðum við komin í íbúð með aukaherbergi þegar þið komið í sumar...og því NÓG pláss, vei:)
Gleðilega páska,
kv.
Rakel
þú ert svo dugleg... já njótið ykkar í páskafríinu, þið getið allavega tekið ykkur smáhvíldir ein og sér meðan hinn aðilinn er heima með ormana...
SvaraEyðaÉg var búin að heyra af þessu með íbúðina Rakel. Frábært mál.
SvaraEyðaVorum að koma inn eftir að hafa farið á verkstæðið og vorum svo hérna úti í garði. Vonandi verður veðrið áfram svona gott.
Dugleg hvað Stella? Að blogga eða bara svona yfir höfuð ;)
Ég veit ekki hvaða hvíldir þú ert að tala um.....Seydi er aldrei heima. Hann neyðist kannski til þess á frídögunum! Spurning um að fara eitthvert.
Er ekki til eitthvað róandi sem ekki er lyf?
Vorkveðja