Vorið er svo að flýta sér að það er varla hægt að njóta fallegu gulu, bleiku, hvítu blómanna á runnum og trjám lengi.......þau eru orðin græn á nóinu! Svona er það þegar vorið verður að halda niðrí sér of lengi. Það er gjörsamlega allt að springa hérna. Á örfáum dögum hafa trén fengið á sig grænan lit, bara svona allt í einu, hviss bang búmm. Tek mest eftir þessu á trjánum fyrir utan gluggana í herbergjunum.
Engin frídagur hér í dag, páskarnir byrja því á morgun. Ég fór í vinnuna í morgun, skráði bíl fyrir kúnna, þreif á verkstæðinu, skrifaði reikninga og fór smá í bókhaldið. Var komin heim um kaffileytið og ákvað að hafa alvöru kaffitíma með strákunum. Slökkti á öllum tækjum og ekkert heyrðist nema fuglasöngur úti. Eitthvað verður maður að gera þegar strákarnir gera mikið af því að rífast og nöldra........úff, þeir eru rosalegir. Ég held að það sé útaf skóla- og leikskólaleysi! Það er nú líka þannig að við höfum ekki mikið af fólki sem við umgöngumst svo að strákarnir eru MIKIÐ saman og fá því oft nóg af hvor öðrum. En nú er spáð góðu veðri um páskana svo að eitthvað munum við gera saman. Ekkert ráðið ennþá en ég efast um að við förum til Tyrklands enda eru verðin VEL smurð í fríum. Læt vita ef við förum eitthvað í burtu.
Best að kíkja á kartöflurnar sem eru að sjóða. Er með fisk í ofni líka.
GLEÐILEGA PÁSKA.
Hér er vorið sko ekkert að flýta sér, spáð kólnandi á morgun. Gott fyrir ykkur að hafa gott veður í fríinu, njótið þess bara að vera úti. Heyrumst um páskana. Kveðja og knús.
SvaraEyðaÞín mamma