Ég sit hér við tölvuna með örbylgjunúðlurétt á diski og hvítvín í glasi. Vínið er mjög fínt enda með smá kolsýru, eitthvað portúgalskt (Portico) sem ég keypti í Aldi. Ætla að kaupa meira við tækifæri. Strákarnir eru komnir inn í rúmið mitt til að horfa á föstudags barnamyndina. Allir eru þreyttir eftir allt síðdegið á leikvellinum í garðinum. Seydi er kominn af stað heim, þurfti bara að kíkja við hjá kunningja, spurning hvort að hann ílengist þar.
Löööööng helgi framundan en á þri. er enginn skóli og enginn leikskóli heldur.......alla vikuna, áfram verkfall. Henrik fer sem sagt ekki í leikskólann fyrr en hvað, 8. júní! Þá er bara um mánuður í heimferð. Indælt.
Við förum (sennilega) af stað til Germersheim á morgun. Ef að Seydi hefur ekki eitthvað að gera á verkstæðinu. Sjáum bara til, ekkert stress í gangi. Ég er nú nógu rugluð fyrir, þarf ekki á stressi að halda...... Ég ath. 100 sinnum á dag hvort að peningaveskið mitt sé örugglega í veskinu, hvort að veskið sé örugglega í bílnum osfrv. Var svo stressuð útaf gargi í Henrik í gær að ég keyrði utan í hliðarstólpann á verkstæðinu! RISA rispa fyrir ofan dekkið. Anda rólega er mottóið og ég gerði það í dag. Naut þess að gera ekki neitt, nema fylgjast með gaurunum á leikvellinum, og spjalla við Bärbel. Gat loksins farið ein í vinnuna í morgun, ekkert verkfall í dag. Gott að "losna við" hávaðamengun annað slagið.......nema þá hávaða í músíkinni í útvarpinu en það er engin mengun :)
Góða helgi.
föstudagur, 29. maí 2009
mánudagur, 25. maí 2009
Hitamet og annað
Hérna eru hitametin slegin hvað eftir annað, reyndar ekki alveg hjá mér, heldur í S-Þýskalandi. Mér fannst samt alveg nógu heitt í dag, fór í 28° hjá mér og sólin skein. Það dró fyrir sólu seinni partinn og ég var viss um að nú kæmi óveður en ekkert gerist enn og það er aftur orðið þokkalega bjart. Í gær var yndislegt veður, 25° hiti og blár himinn allan daginn :) Ég hjólaði með strákana í bæinn. Við fengum okkur góðgæti á ísstaðnum góða, litum á leikvöllinn og garðinn bakvið ráðhúsið. Hjóluðum svo heim framhjá lestar/strætóstöðinni og keyptum drykki í sjoppunni þar.
Ég var nýkomin inn í kjallara þegar Seydi hringir og spyr hvort að hann eigi að taka strákana með í garð í Dortmund. Hann var nýkomin þaðan að kaupa bíl og langaði að kíkja aftur. Ég var fegin að fá smá frið og settist því út á svalir og náði að lesa helling í "Sér grefur gröf" áður en að innrásin kom. Seydi kom ekki bara með strákana heldur einn frænda og kærustu hans. Þau kíktu bara við áður en þau lögðu í hann til Germersheim. Ég henti kjúlla á grillið og þau fóru södd heim, Seydi hafði líka komið við á Subway á leiðinni heim.
Ég hætti að vinna fyrr í dag, kláraði bókina enda þurfti ég að skila henni í dag. Nennti ekki að framlengja útaf nokkrum blaðsíðum. Ákvað að leigja enga bók í þetta skiptið heldur lesa eitthvað af bókunum sem ég hef fengið í gjöf og byrjað á en ekki klárað........
Henrik heimsótti Arne vin sinn í dag og ég fór með Julian til læknis á meðan. Hann er með fimmtu veikina en ég hélt að hann væri með ofnæmi fyrir jarðarberjum. Julian var glaður að svo var ekki enda elskar hann jarðarber og við ætlum að tína í þessari viku. Ætli ég reyni ekki að búa til marmelaði líka. Ég sat smá hjá mömmu Arne í dag og við spjölluðum á meðan að krakkarnir léku en systir Arne er jafngömul Julian og hún var með heimsókn líka. Það var sem sagt fjör í garðinum hjá þeim.
Á morgun, miðviku- og fimmtudag er verkfall í leikskólanum. Sumir leikskólar voru í verkfalli í síðustu viku en nú er komið að okkar. Ég tek Henrik bara með í vinnuna. Á miðvikudaginn á hann svo að mæta aftur á barnaspítalann í talpróf. Íþróttavikan heldur áfram hjá Julian og þau eiga að mæta í íþróttafötum á mið.- og fimmtud. Svo er verðlaunaafhending á föstudaginn.
Við ætlum að heimsækja ættingja Seydi í Germersheim um Hvítasunnuna. Nóg af frídögum þessar vikurnar. Í þarnæstu viku er einhver kirkjunnar frídagur á fimmtudeginum + frí í skóla á fös. Endalaus frí fram að sumarfríinu sem byrjar 2.7.
Oh, ég er enn búin að blogga langloku......kveðja

mánudagur, 18. maí 2009
Eurovision búið
Og Norge malaði þessa keppni, ekki hægt að segja annað. Það var engin spenna í atkvæðagreiðslunni, bara alls engin, nema kannski um 2-4 sætið. Hjá mér voru nokkrir ættingjar Seydi mættir til að fara í brúðkaup og komu svo til mín til að horfa á Júró. Það var því keppni hérna og ég vann þá keppni auðvitað því að Ísland varð í 2.sæti en Tyrkland í því 4. (held ég). Ég leit á úrslitin frá forkeppnunum, þar voru Ísland og Norge nr. 1 og Tyrkland og Aserbaídjan nr.2, og þannig fóru þessi leikar. "The BIG 4" höfðu ekkert í okkur að gera.......Bretland komst næst því og Frakkland fékk alveg ótrúlega mörg stig, ég sofnaði næstum því yfir þessu ofur leiðinlega lagi.
En nú er þetta búið og Eurovision verður víst í Noregi á næsta ári. Ég er búin að lofa Hjálmari bróður að koma þangað. Hann og Unnur ætla víst að fara. Ætli maður verði ekki að kaupa miða núna? Það væri nú gaman að skreppa til Norge aftur, hef ekki komið þangað síðan 1993! Mig var nú samt búið að dreyma um að skreppa til Chicago í maí á næsta ári........hef nú ekki komið til USA síðan 1988!!! Það er ansi langt síðan, alveg heil mannsævi.
Nú er brúðkaup Ibo mágs búið. Herlegheitin voru í gær og tókst víst vel og hann og Seydi voru allavega sáttir í 1 dag. Þeir eru sko ekki búnir að talast við í nokkur ár......rifust útaf einhverjum smámunum. Ibo er þverhaus, hefur ALLTAF rétt fyrir sér, lætur aldrei undan og hrokinn lekur af honum. En konan hans er yndisleg og mig langaði mest í þetta brúðkaup til að gleðja hana.
Fór í kjól og alles.....keypti mér sjal við og var bara alger pæja. Kjóllinn er 11 ára gamall, jólakjóll frá 1998. Ég hef ekki notað hann síðan minnir mig. Fer nú ekki oft í síðkjóla. Gleymdi hins vegar að taka mynd af mér. Þið verðið bara að ímynda ykkur hvað ég var mikil pæja, hahahaha.
Seydi varð laus við nokkur hundruð evrur í gær.......þurfti að "borga" brúðina út. Farið er á heimili foreldra hennar (sem hún býr auðvitað ennþá) og náð í hana, hún er borguð út. Þar sem Seydi á mestan peninginn, fékk hann þann heiður. Svo fengu þau 1000 Evrur í gjöf, plús 100 sem Julian lét þau hafa (fékk hjá pabba sínum). Eins gott að ég var búin að borga miðana heim. Seydi gæti sagt, nei vina, þú getur ekki farið heim í sumar, ég hef ekki efni á að borga þér laun! Neiiiiii grín.
Það er eitthvað svo mikið um að vera þessa dagana. Íþróttavikur í skólanum, frídagur á fimmtudag, engin skóli og leikskóli á föstudag. Á síðasta föstudag keyrði ég Henrik og aðra stelpu í leikhús í suðurbæinn en allir krakkar af leikskólanum, eldri en 4ra ára, fóru að sjá "Froskakonungurinn". Svo var þetta brúðkaup, þar á undan var "gæsakvöld" á föstudagskvöldið. Eurovision tók sinn toll líka en það var bara gaman. Ég fór til tannsa og sárið eftir endajaxlinn grær vel. Fer aftur á morgun til að láta líta á framtennurnar. Mér finnst vanta smá neðan á þær, spurning um að fylla smá. Fyrir utan þetta kemur þetta hversdagslega, þvo þvott, ryksuga, laga til, sækja strákana í skóla og leikskóla, talkennsla já og að vinna. Nóg að gera.
Læt þetta líka duga núna. Er að vona að strákarnir sofni snemma í kvöld en við komum heim um miðnætti í gær og þeir þurftu auðvitað að vakna snemma í morgun. Sérstaklega Julian en Henrik getur sofið aðeins lengur. Julian var svo þreyttur að hann sagðist ætla að eyðileggja skólann!
Lifið heil en ekki í pörtum.

mánudagur, 11. maí 2009
Eurovision nálgast
Allir Eurovision aðdáendur komnir í stuð er það ekki? Unnur systir er örugglega ekki viðræðuhæf þessa vikuna ;) Eftir nokkra leit á netinu komst ég að því að Þýskaland sýnir fyrri undankeppnina beint, sem betur fer. Ég fór því að leita á hvaða stöð og fann það loksins, á Phoenix.........einhver stöð sem ég horfi mjög sjaldan á enda oft pólitík og annað "áhugavert". En ég get þá vonandi hringt fyrir Ísland og Tyrkland. Það gat ég ekki í fyrra þar sem Þýskaland fékk ekki kvöldið sem Ísland tók þátt í. Mig minnir að ég hafi horft á þetta beint á einhverri erlendri stöð, jafnvel þessari hollensku eða frönsku/svissnesku. Get þá kannski horft á seinni undankeppnina þar.
Ég hef svona rennt yfir öll lögin. Mörg voru nokkuð góð bara, sum alger hörmung. Tek það fram að þetta er mín skoðun, enda mitt blogg ;) Við fyrstu hlustun fannst mér Azerbadjan, Finnland, Portúgal, Andorra og auðvitað Ísland og Tyrkland flott. Man ekki eftir fleirum......verð eiginlega að horfa á þetta aftur! Man samt að mér fannst Króatía og Þýskaland hörmung. Holland er náttúrulega bara fyndið, mamma hlýtur að fíla þá. Svona ekta slagari. Mér finnst Svíþjóð slakt.......alltaf sami stíll á þessu hjá þeim.
Það er varla hægt að spá um úrslit. Flestir eru að heyra (og sjá) þessi lög í allra 1.skipti. Ekki búnir að horfa á þau 100 sinnum eða heyra. Hérna t.d. eru lögin ekki einu sinni spiluð í útvarpi, ég hef allavega ekki heyrt neitt, ekki einu sinni Þýskaland. Áhuginn hér er bara bundið við vissan hóp og hann er nú ekki stór. Ég held að framkoma og "live" söngur á úrslitakvöldunum skipti miklu máli. Vinningslagið þarf að segja "búmm" til að fólk hringi. Kannski ekki alveg í ár þar sem dómnefnd mun aftur taka völdin, allavega 50% :) Sjáum til hvernig það fer.
Ætli ég sé búin að skrifa nóg til að þessi ógeðslega fluga fari útaf síðunni.....get nú líka alveg tekið hana en þá myndi bloggið missa "pointið".
Átti fínan mæðradag í gær. Svaf til 9:20, borðaði morgunmat sem Seydi tók að mestu til, spjallaði við eigin móður á msn, fékk kort frá Julian, sem hann hafði gert í skólanu og æðislegan blómvönd þegar Seydi og Julian komu heim úr boltanum. Vafraði svo um á netinu og skellti á smurða tertu með rækjusalati, meðan að Seydi hvíldi sig en sendi hann svo út til tengdó með strákana. Þau fóru svo að borða ís en ég vildi frekar sitja EIN heima og lesa bók á svölunum enda 23° hiti og sól. Indælt.
Friðurinn var svo úti þegar liðið kom og tengdamamma skilin hér eftir......hún var þreytt, alltaf voða þreytt greyið konan. Ég breiddi því bara teppi á hana og hún sofnaði hérna í sófanum. Ekki getum við spjallað mikið saman þar sem þýskan hennar er mjög svo takmörkuð og tyrkneskan mín arfa slök. Strákarnir tóku smá rimmu um kvöldið. Eru voðalega mikið fyrir það þessa dagana, keppast um allt, rífast um allt en þess á milli er leikið sér, spjalla og hlegið!!! Ég verð bara að halda ró minni til að þetta verði ekki vandamál. Það var smá erfitt síðustu daga enda Rósa frænka í heimsókn..........ég sem trúði því aldrei að hún hefði svona slæm áhrif á mig :)
Góða Júróviku
þriðjudagur, 5. maí 2009
*Hrollur*
Ég kem heim úr vinnunni í dag, búin að fara í bankann, ná í Henrik á leikskólann og versla smá.... opna hurðina og hrekk við.........á baðherbergisteppinu (baðið er beint á móti útidyrunum) situr þessi líka hlussu fluga! Aldrei séð svona stóra flugu, jú fyrir utan "Libelle" (Damla). Úff, hvað geri ég nú, hún virtist nokkuð róleg bara svo ég náði í glas.....hikaði smá en tókst að setja glasið yfir hlussuna. Fer svo með teppið út á svalir, hlussan í glasinu og ég sleppti........hjúkkit, hún gat flogið. Vona að ég sjái hana aldrei aftur! Hún var örugglega meira en 3 cm á lengd. Fór á netið og gúgglaði. Held að þetta sé rétta flugan "Hornisse" á þýsku, hornet á ensku. Úff, fæ enn hroll.Jæja, þá er ég loksins búin að kaupa miða heim. Alltaf sömu vandræðin á mér. Spurning um að ná í gott verð, snýst allt um það enda margir flugvellir og flugfélög í boði. Ódýrast var að að kaupa miða með Germanwings frá Köln/Bonn. Alveg 200 Evrum ódýrara en Express frá Eindhoven. Ég nenni sko ekki að keyra til Frankfurt/Hahn til að fljúga með þeim heldur, kostaði líka 100 € meira en mínir miðar. Gott mál allt saman. Það góða við Germanwings er líka að þetta eru kvöld/næturflug. Ég þoli EKKI að vakna um miðja nótt til að fljúga, alveg hrikalega pirrandi. Ég flýg klukkan 22:35 frá Köln og lendi rúmlega miðnætti 10.7. Bruna beint í sumarbústað daginn eftir og verð þar í viku. Kem svo á Víkina og verð á landinu til 10.8.
Oh hvað það er gott að vera búin að ákveða sig :)
SJÁUMST
sunnudagur, 3. maí 2009
Djammið
Já við vinkonurnar skelltum okkur á djammið á fimmtudagskvöldið, dönsuðum inn í maí. Ekki alveg kannski en við byrjuðum ekki að dansa fyrr en eftir miðnætti. Fórum á pöbbarölt, fyrst á írska, leituðum svo að fjöri og fundum það á pöbbnum sem við löbbuðum fyrst framhjá þegar við komum inn í bæinn. Borguðum okkur 5 Evrur inn og byrjuðum að þjóra........1 bjór, 2 bjórar osfrv. Loksins þegar eitthvað gott lag kom skelltum við okkur á gólfið og fórum að dansa. Júhú, gaman að dansa. Reyndar var ég ekki alveg sátt við DJ´inn svo við færðum okkur á pöbb í 50 m. fjarlægð. Betri músik þar EN ómögulegt að komast að á barnum og mikið af "juppa" fólki, ekki alveg okkar smekkur. Færðum okkur því aftur á "Pub No. 1" og vorum þar fram á rauða nótt. Dönsuðum mikið, drukkum meira og spjölluðum við heilmikið af fólki. Ég hitti mömmur úr leikskólanum og fleira skemmtilegt fólk. Ég var auðvitað í stuði og þá er ég sko hress, hlýt að hafa skemmtileg áhrif á fólk. Allavega sagði einhver maður við mig þegar ég stóð úti "Ekkert gaman að vera þarna inni síðan að þú fórst af dansgólfinu"!! Og fór eitthvert annað, hahahaha. Hann hafði samt bara verið að horfa á dansgólfið, karlmenn eldast greinilega ekkert upp úr því :)
Dagurinn eftir, 1.maí, var ekki eins skemmtilegur!!!!!!!!!!! Það þýðir ekkert að segja neitt við mig, ég veit alveg að ég verð þunn, æli og fæ illt í magann EN í þetta skipti var það þess virði. Ég skemmti mér svo vel og við ætlum sko að endurtaka þetta í sumar. Nema kannski drekka minna, ég allavega. Er búin að finna upp rosa gott ráð. Ætla að skrifa "VATN" á hendina á mér til að ég muni að drekka vatn á milli bjóra...........er þetta ekki frábær hugmynd? Minnið mig á það þegar ég ætla út næst :)
Jæja krútt, ætla að horfa á fréttir og svo á bíómynd. Bis dann (þangað til næst)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)