sunnudagur, 3. maí 2009

Djammið

Já við vinkonurnar skelltum okkur á djammið á fimmtudagskvöldið, dönsuðum inn í maí. Ekki alveg kannski en við byrjuðum ekki að dansa fyrr en eftir miðnætti. Fórum á pöbbarölt, fyrst á írska, leituðum svo að fjöri og fundum það á pöbbnum sem við löbbuðum fyrst framhjá þegar við komum inn í bæinn. Borguðum okkur 5 Evrur inn og byrjuðum að þjóra........1 bjór, 2 bjórar osfrv. Loksins þegar eitthvað gott lag kom skelltum við okkur á gólfið og fórum að dansa. Júhú, gaman að dansa. Reyndar var ég ekki alveg sátt við DJ´inn svo við færðum okkur á pöbb í 50 m. fjarlægð. Betri músik þar EN ómögulegt að komast að á barnum og mikið af "juppa" fólki, ekki alveg okkar smekkur. Færðum okkur því aftur á "Pub No. 1" og vorum þar fram á rauða nótt. Dönsuðum mikið, drukkum meira og spjölluðum við heilmikið af fólki. Ég hitti mömmur úr leikskólanum og fleira skemmtilegt fólk. Ég var auðvitað í stuði og þá er ég sko hress, hlýt að hafa skemmtileg áhrif á fólk. Allavega sagði einhver maður við mig þegar ég stóð úti "Ekkert gaman að vera þarna inni síðan að þú fórst af dansgólfinu"!! Og fór eitthvert annað, hahahaha. Hann hafði samt bara verið að horfa á dansgólfið, karlmenn eldast greinilega ekkert upp úr því :)

Dagurinn eftir, 1.maí, var ekki eins skemmtilegur!!!!!!!!!!! Það þýðir ekkert að segja neitt við mig, ég veit alveg að ég verð þunn, æli og fæ illt í magann EN í þetta skipti var það þess virði. Ég skemmti mér svo vel og við ætlum sko að endurtaka þetta í sumar. Nema kannski drekka minna, ég allavega. Er búin að finna upp rosa gott ráð. Ætla að skrifa "VATN" á hendina á mér til að ég muni að drekka vatn á milli bjóra...........er þetta ekki frábær hugmynd? Minnið mig á það þegar ég ætla út næst :)

Jæja krútt, ætla að horfa á fréttir og svo á bíómynd. Bis dann (þangað til næst)

2 ummæli:

  1. greinilega stemming á tjúttinu:) alveg furðulegt hvað maður ætlar alltaf að muna eftir vatninu en alltaf klikkar það!!!
    Alltaf að fá sér verkjatöflu fyrir svefninn, slær aðeins á;)

    knús & koss...og já, Hjalli er búinn að staðfesta hús á Hellissandi 10.júli, svo þú verður að vera komin á eyjuna förgru þá gamla;)

    kv. Rakel

    SvaraEyða
  2. Farmiðakaup eru í vinnslu :)

    SvaraEyða