Allir Eurovision aðdáendur komnir í stuð er það ekki? Unnur systir er örugglega ekki viðræðuhæf þessa vikuna ;) Eftir nokkra leit á netinu komst ég að því að Þýskaland sýnir fyrri undankeppnina beint, sem betur fer. Ég fór því að leita á hvaða stöð og fann það loksins, á Phoenix.........einhver stöð sem ég horfi mjög sjaldan á enda oft pólitík og annað "áhugavert". En ég get þá vonandi hringt fyrir Ísland og Tyrkland. Það gat ég ekki í fyrra þar sem Þýskaland fékk ekki kvöldið sem Ísland tók þátt í. Mig minnir að ég hafi horft á þetta beint á einhverri erlendri stöð, jafnvel þessari hollensku eða frönsku/svissnesku. Get þá kannski horft á seinni undankeppnina þar.
Ég hef svona rennt yfir öll lögin. Mörg voru nokkuð góð bara, sum alger hörmung. Tek það fram að þetta er mín skoðun, enda mitt blogg ;) Við fyrstu hlustun fannst mér Azerbadjan, Finnland, Portúgal, Andorra og auðvitað Ísland og Tyrkland flott. Man ekki eftir fleirum......verð eiginlega að horfa á þetta aftur! Man samt að mér fannst Króatía og Þýskaland hörmung. Holland er náttúrulega bara fyndið, mamma hlýtur að fíla þá. Svona ekta slagari. Mér finnst Svíþjóð slakt.......alltaf sami stíll á þessu hjá þeim.
Það er varla hægt að spá um úrslit. Flestir eru að heyra (og sjá) þessi lög í allra 1.skipti. Ekki búnir að horfa á þau 100 sinnum eða heyra. Hérna t.d. eru lögin ekki einu sinni spiluð í útvarpi, ég hef allavega ekki heyrt neitt, ekki einu sinni Þýskaland. Áhuginn hér er bara bundið við vissan hóp og hann er nú ekki stór. Ég held að framkoma og "live" söngur á úrslitakvöldunum skipti miklu máli. Vinningslagið þarf að segja "búmm" til að fólk hringi. Kannski ekki alveg í ár þar sem dómnefnd mun aftur taka völdin, allavega 50% :) Sjáum til hvernig það fer.
Ætli ég sé búin að skrifa nóg til að þessi ógeðslega fluga fari útaf síðunni.....get nú líka alveg tekið hana en þá myndi bloggið missa "pointið".
Átti fínan mæðradag í gær. Svaf til 9:20, borðaði morgunmat sem Seydi tók að mestu til, spjallaði við eigin móður á msn, fékk kort frá Julian, sem hann hafði gert í skólanu og æðislegan blómvönd þegar Seydi og Julian komu heim úr boltanum. Vafraði svo um á netinu og skellti á smurða tertu með rækjusalati, meðan að Seydi hvíldi sig en sendi hann svo út til tengdó með strákana. Þau fóru svo að borða ís en ég vildi frekar sitja EIN heima og lesa bók á svölunum enda 23° hiti og sól. Indælt.
Friðurinn var svo úti þegar liðið kom og tengdamamma skilin hér eftir......hún var þreytt, alltaf voða þreytt greyið konan. Ég breiddi því bara teppi á hana og hún sofnaði hérna í sófanum. Ekki getum við spjallað mikið saman þar sem þýskan hennar er mjög svo takmörkuð og tyrkneskan mín arfa slök. Strákarnir tóku smá rimmu um kvöldið. Eru voðalega mikið fyrir það þessa dagana, keppast um allt, rífast um allt en þess á milli er leikið sér, spjalla og hlegið!!! Ég verð bara að halda ró minni til að þetta verði ekki vandamál. Það var smá erfitt síðustu daga enda Rósa frænka í heimsókn..........ég sem trúði því aldrei að hún hefði svona slæm áhrif á mig :)
Góða Júróviku
þú alveg gleymdir Albaníu í upptalningunni og Eistlandi, það eru góð lög skal ég segja þér:)
SvaraEyðaEn eins gott að þú getir hringt inn fyrir ísland, annað væri fúlt!! ég á svo alveg von á því að niðurstöður verði ekki einsog ef bara almúginn gæti kosið - svona spegúlantar spá meira í sönginn sjálfann og raddsvið og svona;)
....ég skal sko trúa að gaurarnir taki á þeger þeir taka sig til og eru með læti & leiðindi, ÚFF. Senda þá í sveit;)
kv. Rakel
Ég verð að skoða Alb. og Eist. betur og lofa að hringja fyrir Ísland. Gat það ekki í fyrra.
SvaraEyðaHjálmar sér um gaurana í sumar. Segist geta séð um svona gaura :) Hann skal standa við það, haha.
Sjáumst
Sælar, hva...ertu ekki búin að heyra Norska lagið??? Það er nú sigurstranglegt :)
SvaraEyðaEn það er alltaf jafngaman að lesa bloggið þitt. Vonandi sjáumst við eitthvað í sumar.
Knús
Guðlaug Sv.
Jújú, auðvitað hef ég heyrt norska lagið. Finnst það bara ekki best, held með Aserbaídsjan. Og Íslandi auðvitað :)
SvaraEyðaGaman að heyra frá þér já og vonandi hittumst við eitthvað.