Ég sit hér við tölvuna með örbylgjunúðlurétt á diski og hvítvín í glasi. Vínið er mjög fínt enda með smá kolsýru, eitthvað portúgalskt (Portico) sem ég keypti í Aldi. Ætla að kaupa meira við tækifæri. Strákarnir eru komnir inn í rúmið mitt til að horfa á föstudags barnamyndina. Allir eru þreyttir eftir allt síðdegið á leikvellinum í garðinum. Seydi er kominn af stað heim, þurfti bara að kíkja við hjá kunningja, spurning hvort að hann ílengist þar.
Löööööng helgi framundan en á þri. er enginn skóli og enginn leikskóli heldur.......alla vikuna, áfram verkfall. Henrik fer sem sagt ekki í leikskólann fyrr en hvað, 8. júní! Þá er bara um mánuður í heimferð. Indælt.
Við förum (sennilega) af stað til Germersheim á morgun. Ef að Seydi hefur ekki eitthvað að gera á verkstæðinu. Sjáum bara til, ekkert stress í gangi. Ég er nú nógu rugluð fyrir, þarf ekki á stressi að halda...... Ég ath. 100 sinnum á dag hvort að peningaveskið mitt sé örugglega í veskinu, hvort að veskið sé örugglega í bílnum osfrv. Var svo stressuð útaf gargi í Henrik í gær að ég keyrði utan í hliðarstólpann á verkstæðinu! RISA rispa fyrir ofan dekkið. Anda rólega er mottóið og ég gerði það í dag. Naut þess að gera ekki neitt, nema fylgjast með gaurunum á leikvellinum, og spjalla við Bärbel. Gat loksins farið ein í vinnuna í morgun, ekkert verkfall í dag. Gott að "losna við" hávaðamengun annað slagið.......nema þá hávaða í músíkinni í útvarpinu en það er engin mengun :)
Góða helgi.
hmm svo aldi selur gos með hvítvínsbragði - hahah...
SvaraEyðanjóttu helgarinnar
haha, næstum því :) 9% alkóhól og flaskan er hálfnuð.
SvaraEyðaHæhæ
SvaraEyðaStyttist í heimferð...þyrftum endilega að endurnýjan kynnin þegar þú kemur í sumar...væri mjög til i að renna á Húsavíkina..sendi þér gsmnúmer áður en þið komið.
kveðja
Heiðrun
Já endilega Heiðrún. Verð komin 17.7. á Víkina. Ég er með eitthvað gsm númer en kannski er það gamalt?
SvaraEyðaSjáumst