mánudagur, 25. maí 2009

Hitamet og annað

Hérna eru hitametin slegin hvað eftir annað, reyndar ekki alveg hjá mér, heldur í S-Þýskalandi. Mér fannst samt alveg nógu heitt í dag, fór í 28° hjá mér og sólin skein. Það dró fyrir sólu seinni partinn og ég var viss um að nú kæmi óveður en ekkert gerist enn og það er aftur orðið þokkalega bjart. Í gær var yndislegt veður, 25° hiti og blár himinn allan daginn :) Ég hjólaði með strákana í bæinn. Við fengum okkur góðgæti á ísstaðnum góða, litum á leikvöllinn og garðinn bakvið ráðhúsið. Hjóluðum svo heim framhjá lestar/strætóstöðinni og keyptum drykki í sjoppunni þar.

Ég var nýkomin inn í kjallara þegar Seydi hringir og spyr hvort að hann eigi að taka strákana með í garð í Dortmund. Hann var nýkomin þaðan að kaupa bíl og langaði að kíkja aftur. Ég var fegin að fá smá frið og settist því út á svalir og náði að lesa helling í "Sér grefur gröf" áður en að innrásin kom. Seydi kom ekki bara með strákana heldur einn frænda og kærustu hans. Þau kíktu bara við áður en þau lögðu í hann til Germersheim. Ég henti kjúlla á grillið og þau fóru södd heim, Seydi hafði líka komið við á Subway á leiðinni heim.

Ég hætti að vinna fyrr í dag, kláraði bókina enda þurfti ég að skila henni í dag. Nennti ekki að framlengja útaf nokkrum blaðsíðum. Ákvað að leigja enga bók í þetta skiptið heldur lesa eitthvað af bókunum sem ég hef fengið í gjöf og byrjað á en ekki klárað........

Henrik heimsótti Arne vin sinn í dag og ég fór með Julian til læknis á meðan. Hann er með fimmtu veikina en ég hélt að hann væri með ofnæmi fyrir jarðarberjum. Julian var glaður að svo var ekki enda elskar hann jarðarber og við ætlum að tína í þessari viku. Ætli ég reyni ekki að búa til marmelaði líka. Ég sat smá hjá mömmu Arne í dag og við spjölluðum á meðan að krakkarnir léku en systir Arne er jafngömul Julian og hún var með heimsókn líka. Það var sem sagt fjör í garðinum hjá þeim.

Á morgun, miðviku- og fimmtudag er verkfall í leikskólanum. Sumir leikskólar voru í verkfalli í síðustu viku en nú er komið að okkar. Ég tek Henrik bara með í vinnuna. Á miðvikudaginn á hann svo að mæta aftur á barnaspítalann í talpróf. Íþróttavikan heldur áfram hjá Julian og þau eiga að mæta í íþróttafötum á mið.- og fimmtud. Svo er verðlaunaafhending á föstudaginn.

Við ætlum að heimsækja ættingja Seydi í Germersheim um Hvítasunnuna. Nóg af frídögum þessar vikurnar. Í þarnæstu viku er einhver kirkjunnar frídagur á fimmtudeginum + frí í skóla á fös. Endalaus frí fram að sumarfríinu sem byrjar 2.7.

Oh, ég er enn búin að blogga langloku......kveðja

4 ummæli:

  1. ljúft að heyra um daglega lífið í þýskalandi...

    SvaraEyða
  2. Mér finnst langlokur góðar og þær skilja helling eftir sig... Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  3. Langlokur skilja líka helling eftir sig á lærum og rassi, hahaha.
    Gaman að heyra í þér í gær :)

    SvaraEyða
  4. Ooooo ég man eftir ískaffihúsinum í Recklinghausen...þar vildi ég fara oft í viku....dásamlegir:)

    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða