þriðjudagur, 5. maí 2009

*Hrollur*

Ég kem heim úr vinnunni í dag, búin að fara í bankann, ná í Henrik á leikskólann og versla smá.... opna hurðina og hrekk við.........á baðherbergisteppinu (baðið er beint á móti útidyrunum) situr þessi líka hlussu fluga! Aldrei séð svona stóra flugu, jú fyrir utan "Libelle" (Damla). Úff, hvað geri ég nú, hún virtist nokkuð róleg bara svo ég náði í glas.....hikaði smá en tókst að setja glasið yfir hlussuna. Fer svo með teppið út á svalir, hlussan í glasinu og ég sleppti........hjúkkit, hún gat flogið. Vona að ég sjái hana aldrei aftur! Hún var örugglega meira en 3 cm á lengd. Fór á netið og gúgglaði. Held að þetta sé rétta flugan "Hornisse" á þýsku, hornet á ensku. Úff, fæ enn hroll.

Jæja, þá er ég loksins búin að kaupa miða heim. Alltaf sömu vandræðin á mér. Spurning um að ná í gott verð, snýst allt um það enda margir flugvellir og flugfélög í boði. Ódýrast var að að kaupa miða með Germanwings frá Köln/Bonn. Alveg 200 Evrum ódýrara en Express frá Eindhoven. Ég nenni sko ekki að keyra til Frankfurt/Hahn til að fljúga með þeim heldur, kostaði líka 100 € meira en mínir miðar. Gott mál allt saman. Það góða við Germanwings er líka að þetta eru kvöld/næturflug. Ég þoli EKKI að vakna um miðja nótt til að fljúga, alveg hrikalega pirrandi. Ég flýg klukkan 22:35 frá Köln og lendi rúmlega miðnætti 10.7. Bruna beint í sumarbústað daginn eftir og verð þar í viku. Kem svo á Víkina og verð á landinu til 10.8.
Oh hvað það er gott að vera búin að ákveða sig :)

SJÁUMST

6 ummæli:

  1. hlakka til að sjá ykkur!

    SvaraEyða
  2. Sömuleiðis Stella..get varla beðið!

    SvaraEyða
  3. Oj, ógeðsleg fluga!!!! ég hefði sennilega ekki hætt mér í nálægt við hana og hringt á meindýraeyði strax:/ ....allavega hringt í kallinn og látið hann bjarga málunum, úff.

    kv.
    Rakel

    SvaraEyða
  4. Já hún var ógeðsleg og STÓR! Ég viðurkenni að ég svitnaði smá. Bjóst alveg við því að hún hefði sig á flug áður en ég næði að setja glasið á hana.....úff.

    SvaraEyða
  5. Hæ, þessi fluga hefur greinilega ekki verið svona sýnishorn.
    Hlynur svaf nú sallarólegur heila nótt um daginn með risarandaflugu á gólfinu hjá sér og ÉG veiddi hana, spruðaði á hana eitri og drekkti henni svo... til að klára málið alveg þá stappaði ég á henni úti á stétt. Svona gestir eru bara ekki velkomnir á mitt heimili. En ég býst við að randaflugurnar séu ekki mikið á ferðinni í dag því hér er allt hvítt og það á að frysta í nótt. Kannski deyja þær bara allar í holunum sínum, æjæj. En við þurfum víst svona flugur...


    En þið eruð svo sannarlega velkomin, ég hlakka mikið til. Sjáumst. Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  6. Unnur randaflugumorðingi! Snilld.
    Já víst er að flugur eru nauðsynlegar EN ekki inni hjá mér.

    Hlakka líka til að koma. Strákarnir eru orðnir spenntir líka.

    Góða helgi

    SvaraEyða