sunnudagur, 28. júní 2009

9 dagar.....

.....síðan að ég bloggaði síðast. Ekki alveg að standa mig. Enda er líka komið sumar og þá er tímanum frekar eytt í eitthvað annað en að sitja og blogga. Kíki nú samt mjög reglulega á facebook, held alltaf að ég sé að missa af einhverju........hvað það ætti svo sem að vera!

Fékk góða gesti á föstudagskvöldið en Hrafnhildur Jóna og famili komu við hjá okkur á leiðinni til Frakklands. Greyin lentu bæði í teppum í Danmörku og vinnusvæðum hérna á Þýs. Voru því seint á ferðinni en Julian og Henrik voru samt enn vakandi enda spenntir að hitta gestina. Henrik var búinn að spyrja ansi oft hvenær þau kæmi, hvað þau hétu nú aftur, hvað strákarnir væru gamlir osfrv. osfrv. :) Strákarnir okkar náðu vel saman og áttu góðar stundir á laugardeginum. Alltaf gaman að fá góða gesti.

Nú eru ekki 2 vikur í Íslandsferð. Allir orðnir spenntir. Nú er bara að muna að pakka ekki of miklu niður........Kannski mér takist það núna því að 1 taska má ALLS ekki vera meira en 20 kg. Þessi lággjaldaflugfélög eru miklu strangari en hin. Svo borgaði ég bara fyrir 2 töskur, sjáum til hvort það dugar, annars þarf ég að taka þá 3ju með og borga heilar 10 evrur fyrir hana, hvora leið. Samt sem áður voru þessi flugmiðar þó nokkuð mikið ódýrari en bæði Express og Icelandair.

Var að koma úr bænum en í dag var því fagnað að LOKSINS væri búið að ganga frá hringnum í kringum bæinn, þ.e. götunum. Þeim var lokað í dag og alls konar keppnir í gangi, m.a. línuskauta og hjóla. Allskonar básar voru fyrir framan ráðhúsið og fengum ýmsar auglýsingagjafir. Julian fékk að prófa eitthvað tölvuspil og við fengum okkur Bratwurst að borða. Veðrið var alveg fullkomið fyrir þessa skemmtun, hlýtt en engin sól og því enginn alveg að bráðna. Við tókum 1 hjólahring á götunni, það var gaman að upplifa bæinn frá götunni, ekki í bíl.

Þetta er bara orðið fínasta blogg. 3 dagar eftir í sumarfrí hjá strákunum. Vonandi verður veðrið gott á föstudaginn en þá stefnum við í skemmtigarðinn Ketteler Hof með Bärbel og Florian.

Góðar stundir

föstudagur, 19. júní 2009

"Týndar" minningar


Á dögum stafrænna myndavéla, netsins, gemsa ofl. tækja hugsa ég of hvernig það hefði verið ef þetta dót hefði verið til þegar ég var yngri. Af mér eru ekki til margar ljósmyndir, forláta vélin hennar mömmu var heillengi biluð og þá var ekkert verið að hlaupa út í búð og kaupa nýja. Það var ekki fyrr en ég keypti mér myndavél sjálf, fyrir blaðapeninga, sem farið var að taka myndir aftur. Ég keypti mér þessa forláta Kodak vél með ægilega löngu flassi sem sett var á. Rosalega var ég montin með vélina. Minnir að ég hafi verið 10 ára þegar ég keypti hana. Kassinn undan vélinni er enn til, inniheldur bréf frá dönskum vinkonum uppi á lofti á Garðarsbraut.

Stundum finnst mér leiðinlegt að eiga ekki til fleiri myndir af mér. Ekki eru heldur til videoupptökur af mér, eða okkur. Mér finnst myndir oft hjálpa til við að minnast hins og þessa. Oft finnst mér mín barnæska vera hulin einhverri dulu. Ég man nokkur atriðið en oft minnist ég þess best ef til eru myndir af því eins og bekkjarkvölds í 5.bekk, hjólreiðaferðar nokkura vinkvenna eða skvísumyndir af mér og Helgu Dóru úti á svölum en vélin hennar mömmu virkaði í einhvern tíma fyrir útimyndir, en flassið var ónýtt, áður en hún gaf alveg upp öndina.

Samt er ég líka fegin að vera ekki unglingur í dag og eiga von á einhverjum "pínlegum" myndum af mér á netið! Netið gleymir engu.........Hérna í Þýsklandi var að byrja áróður til að fá unglinga til að hugsa sig tvisvar um áður en þau setja myndir og prívat upplýsingar um sig á netið. Reyndar þarf ekkert bara unglinga til að fólk setji inn meira en lítið "pínlegar" myndir á netið, ó nei. En hvað er svo sem pínlegt í dag??? Oft virðast allar hömlur vera fallnar (er hægt að segja þetta svona?) Þið vitið hvað ég meina ;)

Ef einhver þarna úti á myndir af minni barnæsku má sá hinn sami alveg hafa samband :) Hvar ætli upptökur af sýningu í bíóinu séu? Af hinum stórkostlega dansi okkar bekkjarsystra í hvítum minipilsum! Ég í hvítu minipilsi.........úff. Kannski mig langi ekkert að sjá þessa upptöku. Eða þegar ég lék Boggu leikfimiskennara??? Held að þetta séu einu upptökurnar af mér í minni æsku.

Kannski er bara ágætt að æskan sé hulin slæðu..............

Góða helgi

sunnudagur, 14. júní 2009

Leikhúsferð



Jæja, skellti mér á sýningu Sokkabandsins "Here and Now" í gær. Bauð Bärbel vinkonu með. Var smá efins um að taka hana með eftir gagnrýni einhvers á sýningunni! Hún var vægast sagt léleg.
Hvað um það, við mætum á svæðið, bíðum úti enda veðrið indælt. Ég sé þá skutlu í mjög svo íslenskum stíl labba þarna um og heyri svo "já já já" muldrað......aha, greinilega íslensk. Hún kemur svo til okkar og spyr á hvaða sýningu við séum að fara. Við segjum það og spyr hvort að hún sé ekki íslensk. Jú, vá, ert þú líka íslensk :) Hún bauð okkur þar með í "VIP" plássið, látið var vita að Íslendingur væri að koma upp og teknar voru myndir af okkur og einnig á filmu í heimildarmynd. Fengum svo freyðivín og gátum staðið á svölunum og horft yfir lýðinn, hehe. Nokkrir bættust við og þarna höfðum við góða yfirsýn yfir svæðið þegar "limman" kom með Sokkabandið. Þeim var sagt að Ísl. væri á svæðinu og Elma Lísa sagði "áttu heima hér?" " og ertu að koma á sýningu?" "Flott". Áfram Ísland, Áfram Ísland, Áfram Ísland glumdi í leikhúsinu :)

Jæja, við löbbuðum inn og sýningin hófst. Ef ég hefði vitað að ALLT sem er á sýningunni er tekið af netinu hefði ég skilið allt betur. Því miður fórst það að segja það í upplýsingum um sýninguna. Það sagði mér önnur aðstoðarkonan fyrir utan en hún kom til að spyrja hvernig okkur hefði fundist. Við Bärbel skemmtum okkur vel og sjáum ekki eftir þessu kvöldi. Fengum okkur nokkra öllara og hlustuðum á Leningrad Cowboys sem voru með útitónleika fyrir neðan leikhúsið. Seinna var svæði svo opnað og við kíktum aðeins en komumst nú ekki langt þar sem fullt var af fólki.

Ég var svo komin heim rúmlega tíu en sýningin byrjaði kl. 18. Fékk mér jarðarber með rjóma fyrir svefninn. Vaknaði illa um þrjúleytið, einhverjir gaurar görguðu hérna úti en glugginn minn var smá opinn. Úff hvað ég hrökk við........hélt ég myndi ekki sofna aftur en sem betur fer gerði ég það nú.

Ég steingleymdi að taka þvott úr vélinni í gær og fór því upp í morgun og náði í hann og hengdi út. Allt kyrrt og hljótt, sólin komin upp og enginn vindur. Kyrrð og ró........Eitthvað er að þykkna upp, jafnvel spáð þrumuveðri í dag. Ekkert planað hjá okkur. Allt opið.

Sjáumst

miðvikudagur, 10. júní 2009

Stutt blogg úr vinnunni

Sit hér ein, búin að skúra skrifstofuna og baðið, yfirmaðurinn er enn ókominn, er eitthvað að erindast. Enginn kúnni kominn enn en það glæðist alltaf úr svona upp úr 11.........og langt fram á kvöld. Seydi var reyndar kominn heim rúmlega átta í gærkvöld! Það er bara snemma.

Er að hlusta á Rás 2 og koma ekki hálfvitarnir :) Oftast hlusta ég nú á "lokal" útvarpsstöðina en í dag ákvað ég að hlusta á íslenskt. Er annars voða löt við að horfa á sjónvarp og hlusta á útvarp frá Fróni. Læt það duga að kíkja á netsíður blaðanna. Reyndar eru flestar fréttir um ríkisstjórnina, kreppuna og annað í þeim dúr. Ekki alveg uppáhalds fréttirnar! En sjálfsagt nauðsynlegar. Ég á það til að kíkja á "heitar umræður" á mbl.is. Sumt er áhugavert, annað ekki, enn annað fyndið eða fáránlegt..........það sem sumt fólk nennir að tuða á blogginu, eða kommenta, úff, púff.

Sumarið er enn í fríi, júníveðrið var í apríl og núna er aprílveður. Sól, rigning, þrumur, vindur, allt til skiptist. Svo er spáð um 30° hita um helgina. Kannski ég geti þá farið í fyrstu sundferðina?! Ná í smá lit, annars verð ég bara að notast við brúnkukrem........þarf líka að ná af mér 3 kílóum. Þyngist alltaf um 3-4 kg. þegar ég er á Íslandi og þá er best að taka þau bara af áður en ég legg í´ann. Það tókst um jólin en þá var ég líka nýbúin að vera með magapínu og gat ekkert borðað í 2 daga. Ég ætti kannski að fara í jarðarberjamegrun, borða ekkert nema jarðarber, kannski kirsuber líka. Er samt hrædd um að fá þá ógeð á annars geggjuðum jarðarberjum :) Þarf að tína meira til að búa til marmelaði handa mömmu og kannski fleirum. Er nokkuð bannað að flytja inn marmelaði?

Helgin byrjar í dag. Á morgun er frídagur, föstudagur skólafrí og mánudagurinn líka. Spurning hvort ég fari samt ekki með Henrik í leikskólann en hans leikskóli verður opinn á mán. Þá getum við Julian gert eitthvað sniðugt saman. Sjáum til hvernig stemmingin verður.

Farið vel með ykkur og njótið dagsins í dag og allra daga :)

föstudagur, 5. júní 2009

Pirringur

Nú er ég orðin ansi þreytt á þessu verkfalli fóstranna í leikskólanum........enginn leikskóli þessa vikuna og svo á víst að opna í 1 dag í næstu viku en halda svo áfram að "stræka" (er ekki til eitthvað orð yfir þetta á íslensku?). Henrik verður því að druslast með mér í vinnuna, dag eftir dag. Hann er kominn á það stig að langa bara ekkert í leikskólann aftur. Ég veit ekki hvað fólk gerir sem virkilega þarf á pössun að halda, allan daginn kannski. Heyrði í 2 mömmum í gær, þær höfðu ekki lengur "samúð" með fóstrunum. Önnur þeirra býr rétt hjá leikskólanum, keyrir þar framhjá með syni sína til að fara með þá í pössun, þá sitja fóstrurnar þar úti og drekka kaffi. Tóku sér víst pásu í kaffidrykkju í gær og þrömmuði í bæinn til að mótmæla. Nei, ég er búin að fá nóg eins og tveir aðrir foreldra sem skrifuðu lesendabréf í blaðið í morgun. Alltaf bara fjallað um hlið fóstranna, ekki foreldra og hvað þá barnanna. Sumir foreldrar vilja fá gjöldin endurgreitt. Ég var t.d. líka búin að borga trommukúrs fyrir Henrik. Hann fór einu sinni. Það er reyndar hollvinafélagið sem er með þennan kúrs en þar sem leikskólinn er lokaður er ekki hægt að halda hann. Við í foreldraráði ætlum að hittast á mánudagskvöldið, ræða málin, kannski er hægt að safna undirskriftum, heyra hvað aðrir foreldrar segja osfrv.

Það er sem sagt allsherjar pirringur í gangi hérna.......ég orðin þreytt á að hafa Henrik með mér allan daginn, hann orðinn þreyttur á að fara á verkstæðið og annað sem ég þarf að gera, Julian orðinn þreyttur á pirringnum í okkur og bræður gera mikið af því að kýta og rífast. Nú segi ég STOPP og ætla að hætta að pirrast..........annars verður þetta alger vítahringur. Helgin framundan, bæjarhátíð í Dorsten. Kannski gaman að kíkja þangað ef veður leyfir. Ekki mjög álitlegt þessa dagana, nema það hangir nokkurn vegin þurrt. Í morgun var 10° hiti en eitthvað eru skýin að hreyfa sig og það glittir í bláan himinn. Vonandi verður þurrt í dag en í gæslunni í skólanum er skemmtidagskrá. Það á að grilla, hoppukastali á staðnum ofl. Ég ætla að mæta fyrr til að hjálpa við að undirbúa. Seydi ætlar að reyna að hætta fyrr og mæta líka, spurning hvernig það fer. Ég var á leiðinni út úr dyrunum áðan þegar hann hringir og segir mér að fara ekki af stað, ég verði að ná í varahlut hjá Ford hér í RE, klukkan 11 og koma með hann. Borgar sig því ekki að keyra til Dorsten og aftur til baka. Því sit ég hér og blogga. Henrik litar á meðan.

Óska góðrar helgar.

þriðjudagur, 2. júní 2009

Helgarferð ofl.

Það var gott að sofa í eigin rúmi í nótt eftir 2 nætur á loftrúmi sem lak.......við þurftum að pumpa tvisvar í fyrrinótt með tilheyrandi hávaða, annars hefðum við legið á gólfinu með rassinn eins og fyrri nóttina :) En ferðin til Germersheim var í alla aðra staði skemmtileg. Við gistum hjá frænda Seydi og konu hans sem eiga 2 lítil börn. Strákurinn þeirra er alger snillingur, er rétt orðin 3ja ára og bara alger gullmoli. Hann alveg dýrkaði Julian enda á hann ekkert nema frænkur og 1 systur. Gaman að fá svona stóra frændur í heimsókn.

Ég gerði lítið annað en að láta þjóna mér, þyngdist um allavega 1 kíló enda síétandi. Byrjuðum á að fara í lítið tívolí á laugardagskvöldið. Ég fékk marbletti á hnén eftir klessubílana..........þessir ansans klessubílar! Fórum að tína jarðarber á sunnudaginn, heil 9 kíló! Um kvöldið var svo tyrkneskt brúðkaup hjá einhverjum sem kemur frá sama þorpi og Seydi í Tyrklandi. Vorum ekkert boðin en það er óþarfi í tyrkneskum brúðkaupum.......Heimsóttum svo frænku Seydi (tengdapabbi og hún eru bræðrabörn) í gær og hún útbjó risa morgunverð, svo var nammi, kirsuber, ostakaka ofl. gotterí. Hún alveg dýrkar Henrik, svona svipað og Unnur systir. Finnst hann algert krútt. Enduðum ferðina hjá hálfbróður tengdamömmu í smá snakki áður en við lögðum af stað. Vorum ekki nema 3 tíma á leiðinni enda engin teppa og ekki mikil umferð.

Nú er að þvo þvott, 1 vél búin, önnur að þvo. Sólin skín og spáð yfir 20°. Þurfum að fara í bókasafnið á eftir. Kannski í bíó, sjáum til.