Það var gott að sofa í eigin rúmi í nótt eftir 2 nætur á loftrúmi sem lak.......við þurftum að pumpa tvisvar í fyrrinótt með tilheyrandi hávaða, annars hefðum við legið á gólfinu með rassinn eins og fyrri nóttina :) En ferðin til Germersheim var í alla aðra staði skemmtileg. Við gistum hjá frænda Seydi og konu hans sem eiga 2 lítil börn. Strákurinn þeirra er alger snillingur, er rétt orðin 3ja ára og bara alger gullmoli. Hann alveg dýrkaði Julian enda á hann ekkert nema frænkur og 1 systur. Gaman að fá svona stóra frændur í heimsókn.
Ég gerði lítið annað en að láta þjóna mér, þyngdist um allavega 1 kíló enda síétandi. Byrjuðum á að fara í lítið tívolí á laugardagskvöldið. Ég fékk marbletti á hnén eftir klessubílana..........þessir ansans klessubílar! Fórum að tína jarðarber á sunnudaginn, heil 9 kíló! Um kvöldið var svo tyrkneskt brúðkaup hjá einhverjum sem kemur frá sama þorpi og Seydi í Tyrklandi. Vorum ekkert boðin en það er óþarfi í tyrkneskum brúðkaupum.......Heimsóttum svo frænku Seydi (tengdapabbi og hún eru bræðrabörn) í gær og hún útbjó risa morgunverð, svo var nammi, kirsuber, ostakaka ofl. gotterí. Hún alveg dýrkar Henrik, svona svipað og Unnur systir. Finnst hann algert krútt. Enduðum ferðina hjá hálfbróður tengdamömmu í smá snakki áður en við lögðum af stað. Vorum ekki nema 3 tíma á leiðinni enda engin teppa og ekki mikil umferð.
Nú er að þvo þvott, 1 vél búin, önnur að þvo. Sólin skín og spáð yfir 20°. Þurfum að fara í bókasafnið á eftir. Kannski í bíó, sjáum til.
mmmmmmmmm heil 9 kíló sjit hvað ég hefði viljað ver þarna!!
SvaraEyðaAlva.
Já vina, ég át yfir mig ef það er nú hægt......tíndi sjálf í dag og gerði smá marmelaði. Restina borða ég á eftir með rjóma........
SvaraEyðaalltaf nóg að gera hjá ykkur og þvælingur út og suður...
SvaraEyðaFinnst þér það Stella? Þessi þvælingur var fínn, ekkert að elda, litlu eytt og manni þjónað eins og drottningu.
SvaraEyða