Jæja, skellti mér á sýningu Sokkabandsins "Here and Now" í gær. Bauð Bärbel vinkonu með. Var smá efins um að taka hana með eftir gagnrýni einhvers á sýningunni! Hún var vægast sagt léleg.
Hvað um það, við mætum á svæðið, bíðum úti enda veðrið indælt. Ég sé þá skutlu í mjög svo íslenskum stíl labba þarna um og heyri svo "já já já" muldrað......aha, greinilega íslensk. Hún kemur svo til okkar og spyr á hvaða sýningu við séum að fara. Við segjum það og spyr hvort að hún sé ekki íslensk. Jú, vá, ert þú líka íslensk :) Hún bauð okkur þar með í "VIP" plássið, látið var vita að Íslendingur væri að koma upp og teknar voru myndir af okkur og einnig á filmu í heimildarmynd. Fengum svo freyðivín og gátum staðið á svölunum og horft yfir lýðinn, hehe. Nokkrir bættust við og þarna höfðum við góða yfirsýn yfir svæðið þegar "limman" kom með Sokkabandið. Þeim var sagt að Ísl. væri á svæðinu og Elma Lísa sagði "áttu heima hér?" " og ertu að koma á sýningu?" "Flott". Áfram Ísland, Áfram Ísland, Áfram Ísland glumdi í leikhúsinu :)
Jæja, við löbbuðum inn og sýningin hófst. Ef ég hefði vitað að ALLT sem er á sýningunni er tekið af netinu hefði ég skilið allt betur. Því miður fórst það að segja það í upplýsingum um sýninguna. Það sagði mér önnur aðstoðarkonan fyrir utan en hún kom til að spyrja hvernig okkur hefði fundist. Við Bärbel skemmtum okkur vel og sjáum ekki eftir þessu kvöldi. Fengum okkur nokkra öllara og hlustuðum á Leningrad Cowboys sem voru með útitónleika fyrir neðan leikhúsið. Seinna var svæði svo opnað og við kíktum aðeins en komumst nú ekki langt þar sem fullt var af fólki.
Ég var svo komin heim rúmlega tíu en sýningin byrjaði kl. 18. Fékk mér jarðarber með rjóma fyrir svefninn. Vaknaði illa um þrjúleytið, einhverjir gaurar görguðu hérna úti en glugginn minn var smá opinn. Úff hvað ég hrökk við........hélt ég myndi ekki sofna aftur en sem betur fer gerði ég það nú.
Ég steingleymdi að taka þvott úr vélinni í gær og fór því upp í morgun og náði í hann og hengdi út. Allt kyrrt og hljótt, sólin komin upp og enginn vindur. Kyrrð og ró........Eitthvað er að þykkna upp, jafnvel spáð þrumuveðri í dag. Ekkert planað hjá okkur. Allt opið.
Sjáumst
aldrei heyrt um annað sokkaband en það sem er ætlað til að halda nælonsokkum uppi...
SvaraEyðafrábært hjá ykkur að drífa ykkur - maður verður að styðja íslendingana sama hvað þeir eru að brasa!
bestu sunnudagskveðjur
Hæ hæ. Það er grein um þessa sýningu í Rechlinghausen í Fréttablaðinu í dag bls.26 veit ekki hvort þú getur séð hana á netinu. Þar er sagt frá þvi að sýningin hefði fengið misjafna dóma og nokkur hópur Þjóðverja hafi gengið út í miðri sýningunni, líka að allt sé tekið af netinu þar á meðal barnalandi.is. Eg skal geima blaðið. Kveðja mamma.
SvaraEyðaÉg sá einmitt smá á Vísir.is í gær og gæti alveg lesið Fréttablaðið á netinu. Ég vissi að margir hefðu labbað út, stóð í blaðinu hér með gagnrýninni.
SvaraEyðaMargir hefðu hugsaði öðruvísi ef þeir hefðu vitað að allt væri af netinu.......
Sjáumst :)
það sem er á Vísir.is er sama og í Fréttablaðinu. Sjáumst mamma
SvaraEyða