föstudagur, 5. júní 2009

Pirringur

Nú er ég orðin ansi þreytt á þessu verkfalli fóstranna í leikskólanum........enginn leikskóli þessa vikuna og svo á víst að opna í 1 dag í næstu viku en halda svo áfram að "stræka" (er ekki til eitthvað orð yfir þetta á íslensku?). Henrik verður því að druslast með mér í vinnuna, dag eftir dag. Hann er kominn á það stig að langa bara ekkert í leikskólann aftur. Ég veit ekki hvað fólk gerir sem virkilega þarf á pössun að halda, allan daginn kannski. Heyrði í 2 mömmum í gær, þær höfðu ekki lengur "samúð" með fóstrunum. Önnur þeirra býr rétt hjá leikskólanum, keyrir þar framhjá með syni sína til að fara með þá í pössun, þá sitja fóstrurnar þar úti og drekka kaffi. Tóku sér víst pásu í kaffidrykkju í gær og þrömmuði í bæinn til að mótmæla. Nei, ég er búin að fá nóg eins og tveir aðrir foreldra sem skrifuðu lesendabréf í blaðið í morgun. Alltaf bara fjallað um hlið fóstranna, ekki foreldra og hvað þá barnanna. Sumir foreldrar vilja fá gjöldin endurgreitt. Ég var t.d. líka búin að borga trommukúrs fyrir Henrik. Hann fór einu sinni. Það er reyndar hollvinafélagið sem er með þennan kúrs en þar sem leikskólinn er lokaður er ekki hægt að halda hann. Við í foreldraráði ætlum að hittast á mánudagskvöldið, ræða málin, kannski er hægt að safna undirskriftum, heyra hvað aðrir foreldrar segja osfrv.

Það er sem sagt allsherjar pirringur í gangi hérna.......ég orðin þreytt á að hafa Henrik með mér allan daginn, hann orðinn þreyttur á að fara á verkstæðið og annað sem ég þarf að gera, Julian orðinn þreyttur á pirringnum í okkur og bræður gera mikið af því að kýta og rífast. Nú segi ég STOPP og ætla að hætta að pirrast..........annars verður þetta alger vítahringur. Helgin framundan, bæjarhátíð í Dorsten. Kannski gaman að kíkja þangað ef veður leyfir. Ekki mjög álitlegt þessa dagana, nema það hangir nokkurn vegin þurrt. Í morgun var 10° hiti en eitthvað eru skýin að hreyfa sig og það glittir í bláan himinn. Vonandi verður þurrt í dag en í gæslunni í skólanum er skemmtidagskrá. Það á að grilla, hoppukastali á staðnum ofl. Ég ætla að mæta fyrr til að hjálpa við að undirbúa. Seydi ætlar að reyna að hætta fyrr og mæta líka, spurning hvernig það fer. Ég var á leiðinni út úr dyrunum áðan þegar hann hringir og segir mér að fara ekki af stað, ég verði að ná í varahlut hjá Ford hér í RE, klukkan 11 og koma með hann. Borgar sig því ekki að keyra til Dorsten og aftur til baka. Því sit ég hér og blogga. Henrik litar á meðan.

Óska góðrar helgar.

4 ummæli:

  1. Þessi verkföll eru hundleiðinleg. Ég er fullviss um að leikskólakennarar eru meðvitaðir um óþægindin sem þeir valda. Eru þau ekki einmitt notuð sem þýstingur á viðsemjanda. Annars ert þú heppin að hafa kost á því að taka strákinn með í vinnuna það eru ábyggilega margir sem hafa ekki kost á því.
    Brostu bara Inga mín og láttu þetta verkfall ekki fara í taugarnar á þér. Kveðja úr Keflavíkinni.

    SvaraEyða
  2. Ég er ekki alveg viss um hver var að kvitta???

    Já já, það þýðir ekkert annað en að brosa og ég er einmitt heppin að vinna hjá sjálfri mér, þannig.

    Það virðist ekkert mjakast í þessum viðræðum verkalýðsfélagsins og ríkisins. Það hefði kannski verið bara best að senda strákana í kirkjurekinn leikskóla! Eða einkarekinn....

    Nú er að koma helgi og spáð hlýnandi. Best að brosa bara, takk fyrir.

    SvaraEyða
  3. það er vonandi að verkfallið hjá þeim beri þá einhvern árangur eftir allt saman!!! en þetta er víst eina leiðin til að ná fram betri kjörum.

    Eigið góða helgi og vonandi kemst guttinn aftur í leikskólann og trommutímana:)

    bestu kveðjur,
    Rakel

    SvaraEyða
  4. Þetta er ekkert eina leiðin til að ná betri kjörum, þetta á að vera síðasta leiðini og flest bendir til þess að annað hafi ekkert verið reynt áður en þessu verkfalli var skellt á.
    Ég fékk bréf frá borgarstjóranum í morgun og þar stendur að þetta verkfall sé eiginlega "bannað" því að á næsta ári átti að fara í umræður um betri aðstæður fyrir leikskólakennarana á leikskólum. Á ekkert að snúast um betri kjör, launalega séð.
    Allt sem bæirnir hafa boðið upp á undanfarið, þ.e. betri aðstæður, hefur verið neitað, án þess að líta betur á hvað er í boði.
    Þetta stendur m.a. í þessu bréf.

    Auðvitað eru alltaf tvær hliðar en verkfall á alltaf að vera síðasta úrræði.

    Knús

    SvaraEyða