Sit hér ein, búin að skúra skrifstofuna og baðið, yfirmaðurinn er enn ókominn, er eitthvað að erindast. Enginn kúnni kominn enn en það glæðist alltaf úr svona upp úr 11.........og langt fram á kvöld. Seydi var reyndar kominn heim rúmlega átta í gærkvöld! Það er bara snemma.
Er að hlusta á Rás 2 og koma ekki hálfvitarnir :) Oftast hlusta ég nú á "lokal" útvarpsstöðina en í dag ákvað ég að hlusta á íslenskt. Er annars voða löt við að horfa á sjónvarp og hlusta á útvarp frá Fróni. Læt það duga að kíkja á netsíður blaðanna. Reyndar eru flestar fréttir um ríkisstjórnina, kreppuna og annað í þeim dúr. Ekki alveg uppáhalds fréttirnar! En sjálfsagt nauðsynlegar. Ég á það til að kíkja á "heitar umræður" á mbl.is. Sumt er áhugavert, annað ekki, enn annað fyndið eða fáránlegt..........það sem sumt fólk nennir að tuða á blogginu, eða kommenta, úff, púff.
Sumarið er enn í fríi, júníveðrið var í apríl og núna er aprílveður. Sól, rigning, þrumur, vindur, allt til skiptist. Svo er spáð um 30° hita um helgina. Kannski ég geti þá farið í fyrstu sundferðina?! Ná í smá lit, annars verð ég bara að notast við brúnkukrem........þarf líka að ná af mér 3 kílóum. Þyngist alltaf um 3-4 kg. þegar ég er á Íslandi og þá er best að taka þau bara af áður en ég legg í´ann. Það tókst um jólin en þá var ég líka nýbúin að vera með magapínu og gat ekkert borðað í 2 daga. Ég ætti kannski að fara í jarðarberjamegrun, borða ekkert nema jarðarber, kannski kirsuber líka. Er samt hrædd um að fá þá ógeð á annars geggjuðum jarðarberjum :) Þarf að tína meira til að búa til marmelaði handa mömmu og kannski fleirum. Er nokkuð bannað að flytja inn marmelaði?
Helgin byrjar í dag. Á morgun er frídagur, föstudagur skólafrí og mánudagurinn líka. Spurning hvort ég fari samt ekki með Henrik í leikskólann en hans leikskóli verður opinn á mán. Þá getum við Julian gert eitthvað sniðugt saman. Sjáum til hvernig stemmingin verður.
Farið vel með ykkur og njótið dagsins í dag og allra daga :)
ohhh ekki tala um þessi kíló - þau eru í jójó leik á mínum botni...
SvaraEyðaohhh ég veit... því meira sem ég tala um þetta þeim mun meira gotterí borða ég!
SvaraEyðaoooo þú ert svo biluð Inga...að taka af þér kíló til að eiga þau inni;) En ég er svo alveg sammála því að því meira sem maður ætlar að standa sig í að SLEPPA sætindunum því MEIRA borðar maður af þeim!!! , maður er einhvern veginn alltaf með hugann við að standa sig og því eru sætindin alltaf efst í huga....alveg rugl;)
SvaraEyðaHafið það gott um helgina og njótið 30 gráðanna:)
bestu kveðjur,
Rakel
ég veit að ég er biluð en þetta er mottóið mitt áður en ég fer til Íslands, hahaha.
SvaraEyðaEnnþá engar 30 gráður í nánd, heilar 15 gráður í dag! Og rigning annað slagið.....ég er samt að grilla :)
Sjáumst
Borða hollt og hreyfa sig, leyfa sér vitleysu 1x í viku, málið dautt.
SvaraEyðaEina krukku af nýrri jarðarberjasultu handa mér takk pent, dásamlegt.
Þú kannski splæsir í smá brezel líka... ooo hve ég hlakka til.. Sjáumst, Unnur Mjöll.
Unnur, ég veit en aginn hefur alltaf verið mitt vandamál.... þessvegna ætti ég að hætta að kvarta!
SvaraEyðaÞú færð sko sultu, ekki málið. Þarf að sjóða nýjar áður en ég kem. Og Brezel líka, já já.
Hlakka líka til. Hvað vill Hlynur í afmælisgjöf?