Á dögum stafrænna myndavéla, netsins, gemsa ofl. tækja hugsa ég of hvernig það hefði verið ef þetta dót hefði verið til þegar ég var yngri. Af mér eru ekki til margar ljósmyndir, forláta vélin hennar mömmu var heillengi biluð og þá var ekkert verið að hlaupa út í búð og kaupa nýja. Það var ekki fyrr en ég keypti mér myndavél sjálf, fyrir blaðapeninga, sem farið var að taka myndir aftur. Ég keypti mér þessa forláta Kodak vél með ægilega löngu flassi sem sett var á. Rosalega var ég montin með vélina. Minnir að ég hafi verið 10 ára þegar ég keypti hana. Kassinn undan vélinni er enn til, inniheldur bréf frá dönskum vinkonum uppi á lofti á Garðarsbraut.
Stundum finnst mér leiðinlegt að eiga ekki til fleiri myndir af mér. Ekki eru heldur til videoupptökur af mér, eða okkur. Mér finnst myndir oft hjálpa til við að minnast hins og þessa. Oft finnst mér mín barnæska vera hulin einhverri dulu. Ég man nokkur atriðið en oft minnist ég þess best ef til eru myndir af því eins og bekkjarkvölds í 5.bekk, hjólreiðaferðar nokkura vinkvenna eða skvísumyndir af mér og Helgu Dóru úti á svölum en vélin hennar mömmu virkaði í einhvern tíma fyrir útimyndir, en flassið var ónýtt, áður en hún gaf alveg upp öndina.
Samt er ég líka fegin að vera ekki unglingur í dag og eiga von á einhverjum "pínlegum" myndum af mér á netið! Netið gleymir engu.........Hérna í Þýsklandi var að byrja áróður til að fá unglinga til að hugsa sig tvisvar um áður en þau setja myndir og prívat upplýsingar um sig á netið. Reyndar þarf ekkert bara unglinga til að fólk setji inn meira en lítið "pínlegar" myndir á netið, ó nei. En hvað er svo sem pínlegt í dag??? Oft virðast allar hömlur vera fallnar (er hægt að segja þetta svona?) Þið vitið hvað ég meina ;)
Ef einhver þarna úti á myndir af minni barnæsku má sá hinn sami alveg hafa samband :) Hvar ætli upptökur af sýningu í bíóinu séu? Af hinum stórkostlega dansi okkar bekkjarsystra í hvítum minipilsum! Ég í hvítu minipilsi.........úff. Kannski mig langi ekkert að sjá þessa upptöku. Eða þegar ég lék Boggu leikfimiskennara??? Held að þetta séu einu upptökurnar af mér í minni æsku.
Kannski er bara ágætt að æskan sé hulin slæðu..............
Góða helgi
ég er svo sammála því að myndir eiginlega geyma minningarnar, því oft gleymir maður skemmtilegum stundum...en ef þær hafa verið festar á filmu þá "man" maður einhvern veginn betur eftir stundinni!
SvaraEyðaég segji nú samt að ég er eiginlega dauðfegin að á mínum gelgjutíma voru ekki alls staðar myndavélar á lofti hvar sem maður kom, einsog það er í dag!
...góða helgi :*
kv. Rakel DH
Eg keypti nú þetta myndavélarskrifli fyrir fermingarpeninginn 1963 og mesta furða hvað hún entist blessunin og þakkaðu bara fyrir það.
SvaraEyðaTalandi um týndar minningar "pífugardínur og pottablóm" meiga nú alveg gleimast.
Sérðu hvað Julian er líkur þér elskan, hárið bara aðeins dekkra.
Hafðu það gott. Kveðja mamma.
híhí, já Julian er þvílíkt líkur þér Inga á þessari mynd:)
SvaraEyðakv.
Rakel DH
Ég á nú einhverjar myndir af þér og þú villt örugglega ekki að þær verði settar á netið allavega ekki allar til dæmis baðferðin góða. Kveðja frá Egilsstöðum.
SvaraEyðaÉg er sammála þér Rakel að ég er fegin að ekki voru myndavélar alls staðar á lofti á gelgjutímanum! Úff.
SvaraEyðaJá elsku mamma, ég er alveg þakklát fyrir þessar fáu myndir sem til eru af mér. Á þessum tímum var heldur ekkert verið að smella í tíma og ótíma eins og núna á tímum stafrænna véla. Samt vantar smá inn í mína æsku, þ.e. frá því að vélin bilar alveg og þangað til ég kaupi mér vél.
Valla, ég þekki þessa frægu mynd alveg en það er rétt, hún þarf nú ekkert á netið. Sagði bara að þið mættuð hafa samband ;) Kannski hægt að eignast myndir öðruvísi en að þær fari á netið :)hehehe.
Svo segir fólk að Julian sé alveg eins og Seydi.....
Knús
hehe, já eða í svörtum ruslapokaalklæði syngjandi sísí fríkar út...
SvaraEyðaþað eru til einhverjar myndir í mínum kassa upp á lofti í háagerðinu, verð að fara yfir það allt saman, mörg albúm sem aldrei hafa fengið pláss í töskunum á mínum mörgu ferðalögum hér í milli - læt það ekki gerast aftur! ég keypti mína vél ung líka - en átti erfitt með að reka vélina því filmur og flössin blessuðu voru ansi dýr...
góður pistill - hlakka til að sjá þig eftir 3. vikur!
Veistu Stella, ég held að ég hafi ekki verið í hljómsveitinni sem söng um Sísí....ég söng "Clap Song" í sokkabuxum.
SvaraEyðaÉg er ekki með þessar myndir hér, bara frá 1989 og svona nokkrar af mér.
Já þessi flöss voru asskoti dýr og framköllun líka.
Hlakka líka til að sjá ykkur :)