...verð ég mætt á flugvöllinn í Köln/Bonn, tilbúin að tékk mig inn í flugið til Íslands sem leggur (vonandi) af stað kl. 22:35. Spennan fer að aukast. Ég er reyndar ofur róleg í þetta skiptið. Er búin að pakka næstum því öllum sem á að fara með, bara nokkrar brækur og snyrtidót eftir, já og skór af strákunum. Það besta er að ég er ekki komin nema í 27 kíló! Hvernig er þetta hægt??? Ég er farin að halda að vigtin mín sé eitthvað biluð en það getur varla verið. Allavega er önnur taskan 14 kg og hin 13 kg. Allt í góðum málum bara.
Veðurspáin á Fróni er fín á næstunni, alltaf gaman að lenda í góðu veðri, nógu oft rigning í Keflavík! Hérna er veðrið sveiflukennt, sól, ský, rigning, þrumuveður og allt þar á milli.
Verð með aukabarn á morgun. Vinur Henriks langar voða að heimsækja hann en hann er að flytja til Bochum og skiptir því um leikskóla. Ekkert víst að þeir sjáist aftur á næstunni. Gaurinn mætir rúmlega 9 og verður allan daginn. Foreldrar hans ætla að mála nýju íbúðina í friði á meðan.
Þarf svo rooooosalega að þrífa gluggana hérna en ég nenni því eeeeeeeeeeeeeeekki. Ætla að láta það duga að þrífa puttaför að innan. Þarf líka að þrífa gólfið en ætla að gera það annað kvöld, já og ég þarf líka að þrífa þvottaloftið núna í júlí! Spurning um að gera það á fimmtudaginn.
Jarðarför Michaels Jacksons í dag, fer ekki framhjá neinum. Ég ætla samt ekki að horfa á hana í beinni, hef nú engan áhuga á því. Ætla að koma þreyttum gaurum í rúmið og horfa á spennuþætti.
Veit ekki hvort ég blogga meira áður en ég kem, örugglega ekki. Segi því bara, SJÁUMST.
sjáumst - bleikar!
SvaraEyðaGóða ferð elskan. Við sjáumst.
SvaraEyðaþín mamma.
...ég myndi nú senda Seydiinn í að skúra þvottaloftið á meðan þú ert í fríi, hann myndi held ég alveg klóra sig fram úr því að skrúfa frá heita vatninu, setja lög í og tusku og svo vinda og svo renna yfir flötinn;)
SvaraEyðaen allavega....HLAKKA MIKIÐ TIL AÐ SJÁ YKKUR:*
KOSSAR & KNÚS
kv. Rakel
haha, já Rakel er það. Nei ég held ekki......treysti honum ekki í skúringum, reyndar er mikilvægara að ryksugar/sópa uppi. Ég redda þessu. Maðurinn getur ekki einu sinni vökvað blóm, hahahaha.
SvaraEyðaSjáumst.....bleikar já.
Kenndu greyið manninum að dýfa hendi í sápuvatn til skúringa...að vinda líka er æskilegt.
SvaraEyðaSjáumst á föstudaginn, áfram appelsínugulur. Unnur Mjöll.
Eiginlega er hann nú dýfandi hendi í sápuvatn reglulega........við að þvo bíla ;)
SvaraEyða