Í gær var verkstæðið lokað. Seydi fór með kunningja til Mílanó og kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið. Of langt mál að skrifa útaf hverju hann fór, nenni því ekki. Ég notfærði mér því daginn til að hreyfa mig aðeins......ákvað að fara í hjólatúr um svæðið. Hjólaði framhjá maísökrum (sjá mynd), eplatrjám, villum og sveitasetrum. Þetta var fínasti túr enda veðrið fínt til hjólreiða, ekki of heitt og ekki of kalt.
Eftir túrinn renndi ég mér í bæinn, skipti auðvitað fyrst um föt. Langaði svo að finna mér skó, vantaði venjulega, svarta, gönguskó fyrir haustið/veturinn. Var orðin úrkula vonar að finna skó. En viti menn, í Deichmann fann ég þessa fínu skó og aðra til......(þeir voru á hálfvirði svo ég bara vaaaaaaaaarð að taka þá með).
Í dag var fyrsti rigningardagurinn í nokkurn tíma. Ég klæddi mig aftur í gallabuxur og sokka eftir berfætta léttbuxna daga :) Á morgun er aftur spáð 27° hita og sól, sólin er reyndar komin og skín hérna inn um gluggann, eða á gardínurnar. Fyrsta haustlægðin er svo á leiðinni um helgina. Já haustið nálgast og nokkur laufblöð orðin gul/rauð.
Farið vel með ykkur og bestu kveðjur.