Unnur systir kvartaði yfir því að ég hefði ekkert bloggað, væri enn á leiðinni á flugvöllinn!
Ég er auðvitað löngu komin til Íslands og er að fara aftur eftir tæplega viku. Fer suður á föstudaginn og stefni að því að eyða helginni hjá Rakel litlu sys í borginni. Hef bara aldrei eytt neinum tíma þar að ráði, aldrei komið í Fjölskyldugarðinn, aldrei Þjóðminjasafnið, aldrei í Árbæjarsafn, aldrei, aldrei, aldrei. Hef reyndar komið í Smáralind og Kringluna, heppin ég. Er að reyna að dobbla mömmu til að koma með, fara í borgarferð þrátt fyrir handfötlun. Sjáum til. Kannski getur hún skellt sér á útsölu í IKEA? :)
Ég get ekki sagt að veðrið hafi verið mér hliðhollt......ó nei. Bara þessa daga á Snæfellsnesinu, þar var fínasta veður, heldur hvasst stundum. Sem betur fer lét sólin nú sjá sig á Mærudögum en vikuna þar á eftir var rigning.......dag eftir dag! Og mikið af henni. Ég ætla að vona að hitabylgjan í Þýskalandi standi fram yfir næstu helgi, þarf svo mikið á sól og hlýju að halda. Það er samt alltaf indælt að vera á Víkinni góðu. Er búin að fara í Mývó, Akureyri, Bárðardal. Labbað um bæinn ef veður leyfði, tekið nokkrar beygjur á bíl, farið í fjöruferð en mest bara verið heima. Stundum finnst mér enn vera svona 1980 og ég er 10 ára, minningarnar hellast yfir mann þegar ég hugsa til baka. Það er eins og tíminn standi í stað...........nema ég er ekki 10 ára og það er árið 2009!
Þetta er orðið gott, ætli ég bloggi nokkuð fyrr en ég kem heim aftur.
Takk fyrir skjót viðbrögð,Unnur Mjöll.
SvaraEyðagott að Unnur kvartaði, blogg fer aldrei í sumarfrí er það?!?
SvaraEyðaHlakka til að fá ykkur á föstudag;)
kveðja,
litla í borginni
jú jú, blogg fer alveg í sumarfrí....ég gleymdi bara að tilkynna það, afar lélegt af mér.
SvaraEyðaHeyrumst á föstudag Rakel áður en við leggjum af stað.
vona að borgin hafi tekið vel á móti þér - verst að ég sendi sólina norður þegar ég flaug út...
SvaraEyðaég var með þvílíka blíðu í borginni og öðlaðist nýja virðingu fyrir gamla bænum, þó það séu veggjakrot út um allt þá hefur greinilega verið tekið á þeim ósóma og einhvernveginn var lífið í miðbænum svo ljúft...
hlakka til að detta í hefðbundna gírinn með þér! takk fyrir góðar stundir, skjáumst