Í gær var verkstæðið lokað. Seydi fór með kunningja til Mílanó og kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið. Of langt mál að skrifa útaf hverju hann fór, nenni því ekki. Ég notfærði mér því daginn til að hreyfa mig aðeins......ákvað að fara í hjólatúr um svæðið. Hjólaði framhjá maísökrum (sjá mynd), eplatrjám, villum og sveitasetrum. Þetta var fínasti túr enda veðrið fínt til hjólreiða, ekki of heitt og ekki of kalt.
Eftir túrinn renndi ég mér í bæinn, skipti auðvitað fyrst um föt. Langaði svo að finna mér skó, vantaði venjulega, svarta, gönguskó fyrir haustið/veturinn. Var orðin úrkula vonar að finna skó. En viti menn, í Deichmann fann ég þessa fínu skó og aðra til......(þeir voru á hálfvirði svo ég bara vaaaaaaaaarð að taka þá með).
Í dag var fyrsti rigningardagurinn í nokkurn tíma. Ég klæddi mig aftur í gallabuxur og sokka eftir berfætta léttbuxna daga :) Á morgun er aftur spáð 27° hita og sól, sólin er reyndar komin og skín hérna inn um gluggann, eða á gardínurnar. Fyrsta haustlægðin er svo á leiðinni um helgina. Já haustið nálgast og nokkur laufblöð orðin gul/rauð.
Farið vel með ykkur og bestu kveðjur.
Hæhæ. Já Deichmann klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Gott að Seydi komst klakklaust heim (vonandi). Gaman fyrir þig að hitta alla fjölskylduna hennar Ricarda. Farðu vel með þig elskan og bestu kveðjur þín mamma.
SvaraEyðaSeydi var bara þreyttur þegar hann kom heim og vonandi tókst honum að sannfæra kunningjann um að þetta væri svikamylla!
SvaraEyðaÞú ættir að vera hérna núna, sól og sumar :)
Eg hefði BYRJAÐ á að fara í Deichmann... Unnur Mjöll.
SvaraEyðaflottir skór - ekki leiðinlegt að eignast tvenn pör á einum og sama deginum...
SvaraEyðaUnnur, ég var búin að fara oft í vor/sumar. Þessi svörtu voru bara að koma núna. Hinir fylgdu svo með ;)
SvaraEyðaGóðir skór sem þú keyptir - sumarlegir og flottir þessir bleiku...Deichmann er the búðin:)
SvaraEyðakossar frá mér til þín:* :* :*
Rakel sys