þriðjudagur, 25. ágúst 2009

Frídagur ofl.


Í gær var verkstæðið lokað. Seydi fór með kunningja til Mílanó og kom ekki heim fyrr en seint um kvöldið. Of langt mál að skrifa útaf hverju hann fór, nenni því ekki. Ég notfærði mér því daginn til að hreyfa mig aðeins......ákvað að fara í hjólatúr um svæðið. Hjólaði framhjá maísökrum (sjá mynd), eplatrjám, villum og sveitasetrum. Þetta var fínasti túr enda veðrið fínt til hjólreiða, ekki of heitt og ekki of kalt.

Eftir túrinn renndi ég mér í bæinn, skipti auðvitað fyrst um föt. Langaði svo að finna mér skó, vantaði venjulega, svarta, gönguskó fyrir haustið/veturinn. Var orðin úrkula vonar að finna skó. En viti menn, í Deichmann fann ég þessa fínu skó og aðra til......(þeir voru á hálfvirði svo ég bara vaaaaaaaaarð að taka þá með).

Það var indælt að vera bara ein að rölta í bænum, ekkert nöldur frá strákunum um að fá þetta og hitt, fara heim eða geta ekki labbað meira. Þegar ég ætlaði svo að setjast niður á mexíkóskum stað til að snæða sitja ekki Sabine og Ricarda þar :) Ég vissi reyndar að þær yrðu í bænum en að við myndum hittast var ekkert víst. Þær voru á hraðferð til tannsa svo að við hittumst stutt en svo aftur um kvöldið. Ricarda kom til okkar seinni partinn og við löbbuðum í garðinn, kíktum á dýrin og á leikvöllinn. Heimsóttum Doris og Edgar (afa og ömmu Ricarda) um kvöldið þegar ég keyrði Ricarda "heim". Ég veit ekki hvenær ég mun sjá Ricarda mína næst en þökk sé facebook, get ég nokkurn veginn fylgst með henni úr fjarlægð. Hún og Sabine fljúga til Kanada á morgun enda skólar að byrja í næstu viku.

Í dag var fyrsti rigningardagurinn í nokkurn tíma. Ég klæddi mig aftur í gallabuxur og sokka eftir berfætta léttbuxna daga :) Á morgun er aftur spáð 27° hita og sól, sólin er reyndar komin og skín hérna inn um gluggann, eða á gardínurnar. Fyrsta haustlægðin er svo á leiðinni um helgina. Já haustið nálgast og nokkur laufblöð orðin gul/rauð.

Farið vel með ykkur og bestu kveðjur.

6 ummæli:

  1. Hæhæ. Já Deichmann klikkar ekki frekar en fyrri daginn. Gott að Seydi komst klakklaust heim (vonandi). Gaman fyrir þig að hitta alla fjölskylduna hennar Ricarda. Farðu vel með þig elskan og bestu kveðjur þín mamma.

    SvaraEyða
  2. Seydi var bara þreyttur þegar hann kom heim og vonandi tókst honum að sannfæra kunningjann um að þetta væri svikamylla!

    Þú ættir að vera hérna núna, sól og sumar :)

    SvaraEyða
  3. Eg hefði BYRJAÐ á að fara í Deichmann... Unnur Mjöll.

    SvaraEyða
  4. flottir skór - ekki leiðinlegt að eignast tvenn pör á einum og sama deginum...

    SvaraEyða
  5. Unnur, ég var búin að fara oft í vor/sumar. Þessi svörtu voru bara að koma núna. Hinir fylgdu svo með ;)

    SvaraEyða
  6. Góðir skór sem þú keyptir - sumarlegir og flottir þessir bleiku...Deichmann er the búðin:)

    kossar frá mér til þín:* :* :*

    Rakel sys

    SvaraEyða