Fórum aðeins á leikvöllinn enda er veðrið eins og best gerist að sumri til. Um miðja viku er jafnvel spáð um og yfir 30°. Um næstu helgi er stefnan tekin á safn í Münster. Þar eru víst risaeðlur en það er draumur Julian að fara í þannig safn. Ætlum að taka Ricarda með :)
Fyrsti skóladagurinn hjá Julian gekk vel, að vakna var smá erfitt en hafðist þó. Ég hefði alveg viljað sofa aaaaaaaaaðeins lengur í morgun en svona er lífið. Hversdagsleikinn er tekinn við og rútínan er að mörgu leyti góð.
Horfði á frábært met í 100 m. hlaupi í gær! HM í frjálsum er í fullum gangi og oft í gangi á skjánum þessa dagana. Alltaf gaman að horfa á frjálsar.
Jæja, best að sjóða núðlur og hella tómatsúpunni frá í gær yfir og baka smá í ofni.
Hversdagskveðja
heldur betur ekkert hversdagslegt við þinn sunnudag - greinilega góður dagur! en er það ekki merkilegt hve myndirnar geta leynt mann staðreyndinni, þið hafið ábyggilega setið þarna sveiflandi höndum og verið illa pirruð út í helv... flugurnar! ég kætist alltaf svo á vorin þegar veðrið batnar en það endist þar til ég er bitin fyrst...
SvaraEyðaen gaman að Ricarda skyldi koma til ykkar:)
SvaraEyðaég væri SVO til í að vera þarna úti hjá ykkur og næla mér í nokkrar freknur í 30gráðunum, úfff!!!
koss frá mér:*
Rakel
Þessi mynd er tekin áður en geitunga árásin hófst, ísinn var rétt kominn :) Þeir eru víst mega agressívir í ár!
SvaraEyðaJá þetta er indælt Rakel, ennþá hlýtt þó að sólin sé komin lágt á loft.
m m m m m m m m m m eg fæ alveg vatn í munninn að sjá ísinn og alla ávextina. Kveðja og knús mamma.
SvaraEyðap,s. hulstrið undan myndavélinni gerir mikið fyrir borðið.
oooh hvað ég væri til í að koma í blíðuna- en annars SKAAAAMMMASTU ÞÍN- ég fékk ekkert að sjá þig og allt í einu varstu bara farin! Við fórum ekkert norður- vorum með hlaupabóluorma og stutt en engu að síður gott sumarfrí:-)
SvaraEyðaBentu Ricarda á að það er agalega hagstætt að fljúga í gegn um KEF og svo á ég líka svo sætan 16 ára strák:-)
Knúsaðu hana frá okkur,
kv. Helga
Ja ja Helga, ég skammast mín niður í tær. Það voru nokkrir sem ég hitti ekkert. En leiðinlegt að þið skylduð ekki koma norður, fúl þessi hlaupabóla.
SvaraEyðaÉg var einmitt að spyrja Ricarda hvenær hún ætlaði að fljúga til Ísl. þú ættir heima rétt hjá flugvellinum. Hún vissi það nú ekki en ég skal benda henni á gaurinn ;) Hún er þó á föstu sko.
Hvenær komið þið? Þegar krónan styrkist kannski ;) Helv... dýrt að koma núna.
Knús
...skemmtileg pæling móður okkar varðandi hulstrið utan um myndavélina... hrikalega hló ég mikið þegar ég skoðaði myndina aftur því ég hefði klárlega ekki tekið eftir því við fyrstu sýn...
SvaraEyðaannars ávallt skemmtileg blogg í tilverunni, keep on going old sis... :-)
Haha já Hjálmar (býst við að þú sér þessi nafnlausi). Blessaða myndarvélarhulstrið, alltaf fyrir manni!
SvaraEyða