Já þetta var heitur dagur í dag, hér er mynd sem sannar að hitinn fór í 38°!! Sem betur fer var rakinn ekki mikill og smá vindur svo að þetta var eiginlega bara þægilegt, þ.e. ef maður þurfti ekki að reyna á sig........

Ég skellti mér í sunda með gaurana eftir talkennsluna hjá Henrik. Vorum því ekki komin fyrr en að verða hálf fjögur og þá var enn röð við kassahúsið, ég bjóst sko ekki við því. Eins og sést á mynd vorum við ekki alveg ein í sundi.......

Seydi ætlaði að bjóða mér út að borða í hádeginu í dag en akkúrat þá komu nokkrir kúnnar og það var ekki hægt að láta þá bíða. Förum bara á morgun......vonandi :) Ætlum að prófa nýja kínverska staðinn í Dorsten.
Það fer ekki mikið fyrir svengju í dag, ákvað að gera bara boozt í kvöldmat. Setti í það bláber, hreina jógúrt, súrmjólk, frosin ber, appelsínusafa og smá Grenadine, já og ís. Ljúffengt.
Núna þessu fór allir opnir gluggar að lokast og opnast, kominn dragsúgur og kannski þrumuveður á leiðinni. Allavega orðið ansi hvasst úti. Væri ekki hissa á því enda er einhver kuldalægð á leiðinni og þegar hún hittir hitabylgjun....úff, þá verður RISA árekstur.
OK, ætla að halda áfram að horfa á HM í frjálsum og vona að strákarnir fari þokkalega snemma að sofa :)
Hæ,
SvaraEyðavið komum vonandi í vetur- í alvöru! Annars erum við á leið til NY í október með Ása- löngu ákveðið áheit:-) Þetta er svolítið flókið- Ricarda getur eiginlega ekki komið sem AuPair á meðan töffarinn er heima- það yrðu bara vandræði, hormónarnir á fullu:-)
Knús á línuna,
Helga
Þú lætur bara vita hvenær þið komið ;) Eigum 9 manna bíl.
SvaraEyðaErtu að hugsa um að bjóða Ricarda Aupair starf? Hún útskrifast 2011 úr skóla, væri upplagt þá.
See you
Hefði hreinlega dáið í þessum hita, eins gott að ég var ekki þarna...
SvaraEyðaUnnur Mjöll.