þriðjudagur, 11. ágúst 2009

Komin heim

Svo að sumir fari ekki að kvarta yfir bloggleysi og furðulegum titlum er best að skrifa nokkrar línur. Ég er sem sagt komin heim í Halterner Strasse, Seydi lasni sótti okkur á flugvöllinn, var að leggja bílnum þegar við komum út. Þurftum smá að hringjast á til að hann fyndi okkur. Hann sagði að við hefðum fundið lyktina af hvort öðru fyrst að við mættum á sama tíma, við vorum nefnilega á undan áætlun.........já, það er nú til líka! Veit ekki hvenær flugfélög fara að gefa upp réttan flugtíma til Íslands, hann er ekkert 3,5 tímar heldur rétt um 3 tímar en við vorum enn fljótari enda háloftin róleg og annað eins rólegt flug hef ég ekki upplifað. Strákarnir sváfu allan tímann eins og margir og ljósin voru slökkt. Verst var að hafa ekki mp3 spilara því ekki gat ég nú sofið frekar en fyrri daginn, reyndi alveg margar stellingar.

Það var gott að koma heim þrátt fyrir þreytu. Henrik svaf mest allan daginn og Julian fór mjög snemma í bólið. Ég fór smá í búð enda ísskápurinn tómur þar sem Seydi hafði ekki borðað neitt síðan á fimmtudaginn og legið í rúminu. Nú er búið að taka upp úr töskum, ganga frá (ekki töskunum samt) og koma sér í gírinn. Sváfum reyndar lengi í morgun og því fór Henrik ekki í leikskólann en við ætlum okkur að vakna tímanlega á morgun.

Ég mun kannski seinna fara út í ferðasöguna frá Íslandi en ekkert ítarlega þó. Veit bara að ég ætla EKKI að vera leið út í það sem ég gerði ekki eða fór ekki heldur njóta þess sem ég gerði og sá :)

Skjáumst

3 ummæli:

  1. Velkomin heim elskan og takk fyrir alla hjálpina í sumar. Þu verður vonandi fljót að fynna rétta gírinn (ertu ekki sjálfskipt?)
    Eg óska Seydi góðs bata og vona að þú eða strákarnir veikist ekki. Hafðu það gott og knúsaðu kallana. Hér er heldur tómlegt en það venst vonandi.
    Gott að heyra frá þér. Kveðja þúsund kossar þín mamma

    SvaraEyða
  2. Haha, sjálfskipt :) kannski það bara. Seydi er skárri og við hin við fína heilsu, ég er smá kvefuð ennþá.

    Knúsa strákana en reyni að knúsa Seydi ekki mikið þessa dagana.

    Julian virðist enn vera eitthvað leiður, gæti verið söknuður??? Hann veit ekki afhverju hann er svona.

    Vertu nú samt ekkert að þakka fyrir hjálpina, bara sjálfsagt.

    SvaraEyða
  3. alltaf gott að komast aftur í eigið kot - þó maður sé eitthvað pínuþvældur líka...

    já passaðu þig á flensunum - fúlt að leggjast i pest svona síðustu sumardagana.

    takk fyrir góðar stundir í sumar

    SvaraEyða