Frá og með núna ætlar ég að hafa annan brag á þessu blessaða bloggi. Ætla mér að taka mynd af einhverju merkilegu eða ómerkilegu og setja hér inn, skrifa eitthvað við myndinar, hvar hún er tekin osfrv. Auðvitað mun ég halda áfram að skrifa eitthvað rosa krassandi úr mínu lífi.........eða þannig.
Fyrsta myndin verður af mínum (ó)ektamanni, í óekta bol frá Tyrklandi :D Hann stóð sig eins og hetja við grillið á uppskeruhátíðinni í leikskólanum. Ég held að við séum rosa vinsæl þar, erum svo dugleg að hjálpa til við hitt og þetta, sérstaklega ég ;) Laga til eftir skemmtanir og svona, ég bakaði líka vöfflur í dag og við seldum alveg helling til að fá pening í foreldraráðskassann.
Veðrið var alveg geggjað, spurning um að setja inn mynd frá hátíðinni........ borgarstjórinn mætti m.a.s, afhverju veit ég ekki. Hann allavega dæmdi í leikinn sem Seydi spilaði á fótboltamótinu :)
Góða helgi
sniðugt hjá þér...
SvaraEyðaJá þakka þér fyrir. Ætlaði að byrja fyrr en myndavélin var batteríislaus. Ætla að mynda hvað sem er, bara eitthvað!
SvaraEyðagaman að þessu. gott fyrir mig sem er ekki á "fésbókinni". gott að Seydi er orðin hress.
SvaraEyðakveðja og knús mamma
Ég mun nú líka setja einhverjar myndir hér inn (picasa) í framtíðinni.
SvaraEyðaSeydi er orðinn nokkuð góður en samt en smá slappur og þreyttur.
mér lýst vel á þennan nýja Seydi...bara heitur á grillinu í leikskólanum;)
SvaraEyðaen gaman að hafa myndir inní blogginu:)
Knús & koss,
Rakel