Fór út að borða á laugardaginn, í hádegishlaðborð hjá "Kínverjanum" (hvort hann er frá Kína veit ég ekki). Seydi bauð eins og vanalega ;) Löbbuðum hring í bænum og svo tók hann gaurana með í bras svo að ég gat verið alein heima í smá stund........það var indælt og alveg nauðsynlegt.
Drifum okkur á verkstæðasýningu í Hannover á sunnudeginum. Vorum reyndar heldur seint á ferðinni svo að við náðum bara um 4 tímum á sýningunni. Sumum fannst það nú heldur langt (strákunum) en Seydi hefði örugglega geta verið þarna alla helgina. Þetta var alveg ágætt, veðrið var geggjað en við vorum heldur seinheppin þennan dag. Ég þurfti með gaurana á klóið eftir smá tíma og þegar við komum út höfðum við týnt Seydi. Allt í lagi svo sem en eftir hálftíma ákvað ég að hringja í hann............enginn svarar! Það var ekki svo mikill hávaði að hann heyrði ekki í gemsanum :/ Ég reyni að hringja (og leita) í klukkutíma!! Loksins hringir hann, hafði haft símann á "silent"! Það er ekki í lagi með manninn.........Við ætluðum þá að fá okkur kaffi og kökur (fengum mat í hádeginu) en þá var bara ALLT búið, shit. Oh jæja, Julian langaði þá til að hitta vélmennið.........við komum þangað og þá var nýbúið að slökkva á honum, shit. Oh jæja, þá langaði Julian að kasta bolta í körfu (það var búið að vera lööööööööng röð allan daginn), þá var hætt að leyfa að kasta, shit.............Julian var svo leiður. Hafði þá allavega sparkað fótbolta í mark hjá "Robotkeeper", hann varði allt, næstum því. Ég hitti allavega ekki ;)
Nú var ég komin með nóg og fór út í góða veðrið með gaurana. Löbbuðum í bílinn með alla bæklingana sem við höfðum fengið og skruppum svo aftur á sýninguna til að slútta þessu enda allt að verða búið. Lentum svo í þessari fínu "teppu" (rúlluðum alltaf smá) á leiðinni heim. Allir orðnir svangir svo við hentumst á Burger King í sólsetrinu. Komum ekki heim fyrr en að verða níu, allir þreyttir og Julian svaf í bílnum og aftur strax þegar hann kom heim.
Myndir af sýningunni verða hjá strákunum.
Haustið er greinilega komið, þoka og svalt á morgnana. Rigning í nótt, skýjað í dag. Samt 19° hiti.
Knús