Aldeilis blíða í dag, hitinn fór í 27° og sólin skein nær allan daginn. Í morgun var svalt og Julian kvartaði yfir kulda því ég sendi hann í hnébuxum í skólann, ég vissi að honum yrði heitt þegar liði á daginn. Þessi fína Azoreyja-hæð gefur okkur þetta indæla veður eitthvað fram eftir viku. En það er greinilegt að haustið er á leiðinni (hef ég sagt það áður???) því að nú er orðið dimmt um hálf níu og það verður svalt um leið og sólin sest, já og á morgnana.
Séð í suðvestur, sólin að setjast
Ég veit svo sem ekkert hvað ég á að blogga um, ekkert djúsí í gangi hér frekar en fyrri daginn. Það er heldur rólegt á verkstæðinu, fólk á engan pening eftir sumarfríið........nei ég segi svona. Frá október fer fólk svo að skipta á vetrardekkin og þá lífgast viðskiptin. Seydi er líka hálf "latur" þessa dagana. Ég held að hann sé enn eftir sig eftir veikindin í byrjun ágúst, nær aldrei að hvíla sig nóg. Reyndar er klukkan núna rúmlega níu og Seydi enn í vinnunni, ekki latari en það.
Það er samt greinilegt að fólk hefur ekki eins mikinn pening á milli handanna og áður. Margir að leita að eins ódýrum bíl og hægt er eða prútta þegar að viðgerðum kemur.........Krísan ætti samt að vera búin að ná botninum, hér allavega og allt á uppleið. Það verður spennandi að sjá í lok september, hvort að við fáum nýjan kanslara eða hvort að Angela kellingin heldur velli. Hingað til hefur hún gert marga góða hluti og ég er bara nokkuð ánægð með kellu.
OK, orðið gott. House M.D. að byrja í TV, nýir þættir en á sumrin ganga hérna endursýningar í endursýningar ofan.......þreytandi. Svo er 24 á eftir, má ekki sofna yfir þeim eins og fyrir viku!
Góðar stundir

Sæl Inga mín. Hvað er þetta allir hættir að lesa bloggið þitt nema eg, allavega kvitta ekki.
SvaraEyðaEg er búin að kíkja á hverjum degi en kvittaði náttúrlega ekki sjálf, nei,nei.
Það hefði nú ekki verið slæmt að vera hjá ykkur í þessari blíðu, en veðrið er nú búið að vera ágætt hér og á að vera gott framm yfir helgi, spáð uppundir 20 stigum á réttardaginn, eins gott því ekki get eg dregið mér til hita.
Eg bið að heilsa öllum köllunum þínum og eigið góða helgi elskurnar.
Ástarkveðja og knús frá mömmu.
Ég var einmitt að pæla í því hvort að enginn nennti að lesa lengur... hvað um það, ég ætla að blogga ótrauð áfram :)
SvaraEyðaÞað er aldeilis fínt að spáin er góð á réttardaginn, ekki oft sem það er.
Ég er í vinnunni og setti gömlu Gufuna á, akkúrat núna er "Undir bláhimni" :)
Kveðjur til allra á réttinni
Já gamla gufan klikkar ekki. Veðurspáin góð fyrir norðausturland alla mæst viku heyrist mér. Best að fá sér göngutúr. Kveðja mamma
SvaraEyðahæ:) ég les alltaf Inga mín...las reyndar þessa færslu sama dag og hún kom, bara kvittaði ekki, úbbs. Ætla því að kvitta hér með:)
SvaraEyðaEn sumarið hér er SVO búið, rigning og grátt og ljótt síðan um miðjan ágúst:( ...nú fattar maður aftur hvað Reykjavík getur verið ljót....einsog hún var fín í sumar;)
knús & kveðjur,
Rakel
Já elsku Rakel, þetta er í góðu lagi. Takk fyrir innlitin :)
SvaraEyðaJá er Reykjavík farin að sýna sitt "eiginlega" andlit, borg bleytunnar..... Fínt fyrir norðan núna, betra en hér!
Láttu mig vita þegar iPod´inn kemur.
Knús
sko ég las þetta strax og svo einhvern tímann aftur - og þá taldi ég fyrir víst að ég væri sko búin að kvitta því yfirleitt klikka ég ekki á slíkum stórmálum...
SvaraEyðasorry, þú veist ég fylgist með!