sunnudagur, 13. september 2009

Haustdagur

Í morgun hringdi Bärbel vinkona í mig og spurði hvort við nenntum að koma með út að labba. Hún og Florian ætluðu að fara til Mollbeck, sem er nokkurs konar útivistarsvæði. Þar er líka útisundlaug sem alltaf er svo köld að ekki duga nær 40° gráður til að hlýja manni, brrrrr. Þarna koma saman joggarar, hundafólk og Nordic Walking labbarar. Einnig eru sumir á hjólum og aðrir bara labbandi. Tjarnirnar þarna eru allt annað en hreinar.......eiginlega frekar ógeðslegar, samt eru fiskar í sumum þeirra og B. hefur séð menn veiða þarna! Ekki myndi ég borða þann fisk.

Við áttum þarna rúmlega 2 góða tíma. Strákunum leist nú ekkert á það að "fara bara út að labba" en á endanum fannst þeim gaman og fóru að búa til stíflu úr trjágreinum. Við lofuðum þeim að við myndum koma þarna aftur.

Þegar heim var komið grillaði ég lambasteikur á innigrilli, steikti kartöflur og bjó til jógúrtsósu. Kvöldmaturinn bara tekin snemma. Seydi var þreyttur eftir boltann........svaf vel hér á sófanum, ég las bók og strákarnir rifust, léku sér, hlógu, görguðu, trufluðu mig og settu herbergið á annan endann. Fengu sér líka sítrónute með hunangi, gott við hósta en þeir báðir er með leiðinlegan hósta á morgnana.

Veðrið var örugglega betra á N-Íslandi í dag heldur en hér, "bara" 16° hiti og sól og rigning til skiptis. Akkúrat núna er sól og því dregið fyrir hérna í sofunni, annars er varla hægt að sjá út úr augunum hérna inni.

Stóra, 2ja ára sjónvarpið okkar er bilað, byrjaði með því að fjarstýringin klikkaði og svo fór myndin að "dilla" þegar kveikt var. Endaði á því að myndin dillaði allan tímann! Seydi ætlar með það í viðgerð, spurning hvort hægt er að gera við svona dót. Erum því TV laus inni í herbergi, ég sakna þess smá en get alveg lifað án þess........... í smá tíma allavega, hahaha.

Á morgun verður elsku mamma mín 60 ára! Vá hvað mér fannst 60 ára fólk hundgamalt sem krakki........svona breytast viðhorfin, mér fannst 39 ára fólk líka eldgamalt! Ég var 18 ára þegar mamma var 39 ára, úff, ef mitt barn væri í USA núna sem skiptinemi, eða bara einhvers staðar langt í burtu...........sem betur fer eru mínir bara kríli ennþá.

Ekki gleyma að kvitta, það lífgar upp á líf mitt að sjá ykkur kvitta, þó ekki væri nema segja "kvitt" :)

8 ummæli:

  1. HÆhæ ákvað að kvitta strax í kvöld því á morgun verð eg orðin svo hundgömul (eða þannig).
    Réttardagurinn búinn gott veður og nóg að borða, allt gekk vel.
    Eigðu góða viku elskan og þið öll.
    Kveðja mamma.

    SvaraEyða
  2. Laufey til hamingju með afmælið!!

    já þessi aldur er laglega afstætt hugtak eitthvað - það er samt sem mest kemur á óvart núna er hve mér finnst ég nálgast þá sem einu sinni voru svoooo mikið eldri en ég, svona eins og þeir standi í stað meðan ég hleð á mig árum...

    bestu kveðjur

    SvaraEyða
  3. já það er erfitt að missa sjónvarpið úr herberginu, svo ansi þægilegt eitthvað að hafa það þar, en það venst;)
    En alveg sammála með aldurinn, svo fyndið hvað manni fannst einu sinni 20ogeitthvað ára gamalt fólk SVO fullorðið en einhvern veginn er ég samt ekkert orðin fulloðin þrátt fyrir að nálgast þrítugsaldurinn!!;)og finnst fólk undir 20 algjör börn!! ...ætli mömmu gömlu finnist við ekki öll ennþá bara ungabörn sem ekkert vitum;)

    KNÚS & KOSS
    rakel dögg

    SvaraEyða
  4. Elsku tryggu lesendur, þið eruð æði :)
    Já Rakel, ég er ekki að fíla þetta TV leysi fyrir svefninn........ dottandi inni í stofu langt fram eftir kvöldi!

    SvaraEyða
  5. Ætli Laufey sjái ekki kveðjuna "fljótast" hér :)

    Til hamingju með daginn Laufey mín :*

    og kvitt til þín Inga :)

    SvaraEyða
  6. Innilega til hamingju með daginn Laufey mín og þú með múttu Inga mín:-)
    kveðja úr Keflavíkinni
    Helga og co

    SvaraEyða
  7. Hæ hæ. Nú ætla eg að misnota bloggsíðu Ingu minnar og senda lesendum kærar þakkir fyrir afmæliskveðjurnar. Hafið það sem best. Kveðja Laufey (gamla)

    SvaraEyða
  8. Misnota hvað mamma....í góðu lagi og þú ert ekkert gömul ;)

    SvaraEyða