Í gær hringdi Arne, vinur Henrik, í hann og spurði hvort að Henrik vildi koma að leika. Það passaði vel því að ég ætlaði með Julian að kaupa á hann skó eftir gæsluna. Ég fór því með H. til Arne og náði í Julian. Þar sem hann gleymdi að borða hádegismat (sagði að enginn hefði kallað á hann í mat) var hann glorhungraður. Við stoppuðum því á McDonalds og fengum okkur í gogginn. Þegar ég sat í bílnum fyrir utan ákvað ég að taka mynd og setja hér inn. Sýna annan hluta af bænum en oftast. Skóna fengum við í íþróttabúðinni góðu, Decathlon, alveg snilldar búð.
Í dag var yndislegt veður og við Bärbel ákváðum að eyða deginum í Nordsternpark í Gelsenkirchen. Ég hafði aldrei komið þarna og vissi ekkert við hverju ég átti að búast. Fyrir nokkrum árum var þarna haldin "Blómasýning ársins" og því er þarna núna fallegur garður, leikvellir, hjólabrautir, síki fyrir flutningabáta, útileikhús ofl. ofl. Fleiri myndir munu koma hjá strákunum á barnalandi. Við áttum þarna frábæran dag þrátt fyrir að strákarnir gerðu sig hundblauta. Nokkuð ljóst að þarna fer ég aftur.
Góða helgi
Góða helgi
góða helgi vina - kíki inn á barnalandið á eftir líka...
SvaraEyðaég er ekki búin að setja myndir á barnalandið.....geri það sennilega á morgun, leti í gangi!
SvaraEyðagóða helgi;)
SvaraEyðap.s. iPodinn var "blastaður" í dag eftir áfyllingu af góðri músík:)
KNÚS:*
rakel
Hæ hæ. EG átti líka góðan dag, berjamór í Stórudokk í logni og blíðu það gerist ekki betra (komst óbrotin heim).
SvaraEyðaGóða helgi. Kveðja mamma.
Gott að iPodinn virkar og er orðinn fullur af góðri músík Rakel mín ;) Nú geturðu farið að njóta þess aftur hlusta.
SvaraEyðaBerjamór, berjamór, allir í berjamó. Unnur hringdi í dag og var að gúffa í sig feitum krækiberjum, mmmmmm.
Knús
Já vina, krækiberin voru einfaldlega gómsæt...gúff gúff.
SvaraEyðaUm daginn auglýstir eftir lesendum, ég kíki alltaf á þig þegar ég fer í tölvuna en það líða nú stundum margir dagar milli tölvuferða. Þú veist hvernig þetta er með mig og tölvur, þær freista mín bara ekki nóg, miklu betra að setjast bara með prjónana.
Bestu kveðjur til ykkar allra, U.
Gaman að heyra í þér (í síma) og sjá þig hér :) Ég veit alveg að þú hangir ekkert í tölvunni í tíma og ótíma ;)
SvaraEyðaSvo er ég ekkert að blogga á hverjum degi.....