þriðjudagur, 1. september 2009

September


Slökkvistöðin

Vertu velkominn septembermánuður. Veðurfræðingalega séð er komið haust, segja fróðir menn hér. Það sést að haustið er á leiðinni, í dag byrjaði dagurinn sólríkur og hlýr, núna rignir og hitastigið lækkar.


Haustið er góður tími, eiginlega bara eins og allur annar tími. Allar árstíðir hafa eitthvað gott við sig. Það er helst veturinn sem mig vantar hér, það er snjórinn en það má alveg lifa án hans. Ég hef reynt að fara til Íslands til að fá snjó en eitthvað varð lítið úr því........allavega tvö síðustu jól! Svo þegar ég kem hingað heim 6.jan 2009 er allt á kafi, alveg 30 cm jafnfallinn snjór sem var þó nokkuð lengi á, vegna kulda. Sjáum til hvernig veturinn verður hér, enn nokkuð langt í hann og oft hefur september verið sólríkur og hlýr. Ekkert víst að haustið sé komið.

Á sunnudaginn reif ég mig upp og fór með strákana í hjólatúr. Mest allan tímann var ég með hjartað í buxunum.........þvílíkir villingar sem ég á, hjóla eins hratt og þeir geta, hvar sem er. Reyndar passa þeir sig við götur og stoppa alltaf við gönguljós. Þeir mega eiga það. Það var heldur mikil umferð þennan dag enda sveitastjórnarkosningar og fullt að fólki mætt í ráðhúsið til að fagna.........eða ekki. Við munum allavega hafa sama borgarstjóra áfram. Ágætt bara. Strákarnir voru orðnir þreyttir rúmlega sjö svo að ég hringdi í Seydi og lét hann ná í þá. Komum við á ísstaðnum góða fyrst og ég gúffaði í mig jógúrtís með rjóma. Má ekki vera of hollt, hehehe.

Æi, hef ekkert meira að segja. Er að setja vírusvara í tölvuna og ætla að fara að elda. Foreldrafundur í skólanum í kvöld. Ætla að senda Seydi, ef hann verður ekki búinn að vera eftir vinnuna. Ég fer þá bara eins og alltaf :)

Knús í hús.

3 ummæli:

  1. ógó flott slökkvistöðin ykkar!

    foreldrafundir hjá okkur í kvöld líka - í sitthvorum skólanum svo nú þurfum við að skipta okkur upp.

    ég veit ekki hvernig við gerum þetta eftir tvö ár þegar krakkarnir verða öll í sitthvorum skólanum!

    SvaraEyða
  2. Jamm, slökkvistöðin er frekar ný og voða flott. Hún er samt smá svona 2007 ;)

    Hver passar þá í kvöld? Þið verðið bara að vona að for.fundir verði ekki allir sama kvöldið eftir 2 ár.

    SvaraEyða
  3. Arína hélt um taumana í einn og hálfan tíma...

    SvaraEyða