föstudagur, 30. október 2009

Haustið


Vá hvað haustið er geggjað í ár, enn hanga alveg fullt af laufblöðum á trjánum, skærgul og falleg. Í dag var eins og komin væri hríð........laufblaðahríð, vantaði bara aðeins meiri vind og þetta hefði verið stórhríð :)

Ég elska haustið en því miður er það búið of fljótt og trén búin að týna laufblöðunum. Sem betur fer er líka ansi mikið um sígræn tré og sígræna runna hérna.

M.a.s. rósir blómstra sumstaðar ennþá.

Maríuhænur fljúga útum allt þessa dagana, ein settist á öxlina á mér í dag þegar ég sat úti á svölum í 15° hita og sól, indælt. Hlýtur að vera lukkumerki ;)

Ég sá líka vespu í dag, hún hefur lifað frostið um daginn af. Ekkert frost þessa dagana, bara indælt veður og 15° hiti. Þoka í morgun en hún var fljót að víkja fyrir sólinni.

Halloween á morgun og Allra Heilagur á sunnudaginn. Fúlt þegar frídagar detta á sunnudaga, allt hvort eð er lokað. Allavega búðir og svona. Graskerið er komið með andlit og stendur uppi á hillu á svölunum :)

Mér tekst ekki að losna við þessi 2-3 kg (til að byrja með) enda þýðir ekkert að úða í sig nammi og hreyfa sig ekkert nema hérna í tröppunum.........nei, aginn er ekki mikill og því lítil von um árangur. Æi, nenni ekki að hugsa um þetta, langar bara í nammi þegar ég hugsa um að leggja af!

Spurning um að hætta þessu bloggi, kannski skrifa einu sinni í mánuði eða svo. Ef mamma fer á facebook er ég ansi hrædd um að ég hætti þessu..........

Góða helgi

miðvikudagur, 21. október 2009

Lego

Nostalgía

Lego er frábært dót. Takk Ole Kirk Christiansen fyrir þessa snjöllu hugmynd og snjalla nafn á dóti. Ég átti ansi mikið af Lego kubbum, fólki, gluggum, hurðum og m.a.s. eldhús........samt var og er Lego frekar dýrt dót. En það endist líka vel og kynslóð eftir kynslóð hafa gaman af þessu. Reyndar er sumt orðið ansi ýkt og flókið að setja saman og ef það blandast við hina hrúguna er MJÖG erfitt að finna rétta kubbann. Ég var einu sinni marga klukkutíma að setja saman flugvél sem Julian á. Og ekki er hún sú flóknasta.......kubbarnir voru bara komnir saman við hina. Mér finnst mest gaman af venjulegum kubbum. Var reyndar rosa stolt af eldhúsinu mínu (kannski átti Unnur það líka eða jafnvel bara hún????). Missti einu sinni tönn þegar ég ætlaði að taka kubba í sundur, hún var hvort eð er laus :) Ég er alger Lego aðdáandi.

Strákarnir mínir að föndra fyrir mömmu sína

Tók mér frí í dag og fór með strákana í Legoland Discovery Center í Duisburg. Þurftum að bíða í klukkutíma í röð til að komast inn......það var þess virði og okkur fannst gaman. Set inn myndir hjá strákunum. Skrapp í IKEA á leiðinni heim. Keypti mér m.a. nýtt jólatrésskraut, úr korni, svona stjörnur, hjörtu og annað. Ætla að breyta til í ár og sleppa kúlunum.

Er þreytt núna eftir þennan þvæling en sem betur fer var veðrið gott og hitinn fór í 18° og sólin skein. Alveg magnað haustveður.

Farið vel með ykkur

laugardagur, 17. október 2009

Munið mig, ég man ykkur


Hafði ekkert til að blogga um og hef ekki tekið neinar spennandi myndir svo ég set bara mynd af mér sjálfri hér inn. Aðeins búin að breyta henni, bara að leika mér. Er ein heima eins og er. Líður ekkert of vel og því tók Seydi strákana út að borða. Ég lagði mig reyndar áðan og það hjálpaði mikið, held ég hafi m.a.s. sofnað smá. Yndislegu synir mínir leyfðu mér bara að sofa og voru ekkert að trufla. Í þetta skiptið! Julian á það til að kalla á mig.......mamma, maaaaaaammma, maaaaaaaaaammmmmma........JÁ.........ekkert, ætlaði bara að athuga hvar þú værir! Hefur gert þetta ansi oft undanfarið. Hann hangir mikið í "pilsfaldinum" þessa dagana. Kannski af því að hann er í haustfríi og fylgir mér út um allt. Eiginlega ætti ég að vera fegin að synir mínir vilja yfir höfuð vera hjá mér, knúsa mig og kyssa. Æi já, mér finnst það bara æðislegt.

Maríuhænur á hausti

Ekkert að láta undan þessar maríuhænur þó að næturfrostið sé mætt. Önnur þeirra er evrópskt, hin asísk. Svo segir Julian. Við erum voða hrifin af þessu dýri enda er það notað sem lukkumerki ásamt svíni, smárablaði og sótara. Já og svo skeifa og 1 cent.

Erum komin í smá Halloween fíling. Búin að skreyta smá með litlum gler graskerjum og dóti. Orðið ansi haustlegt hjá okkur. Úti líka en langt því frá eins snemma eins og í fyrra. Ég sé það á myndum sem ég tók í byrjun október 2008. Við erum allavega 2-3 vikum á eftir. Hvað er svo normal veit ég ekki alveg. Sums staðar er bara kominn vetur t.d. í Austurríki. Skíðafólk komið á brettin.

Jæja, best að njóta þess að vera "Home Alone" í smá stund. Knús og kossar.

sunnudagur, 11. október 2009

Haustpirringur....

Self made, haustkrans
Repjuakur að hausti

Læt myndirnar tala, haustið er komið. Samt ekki eins langt komið og í fyrra, ég sé það á myndum sem ég tók þá. Á föstudaginn var sól og fínt veður, í gær var komin rigning. Seinni partinn kom sólin þó á milli rigningargusa. Þar sem Henrik var með hita fór ég með Julian smá túr í bæinn, aðeins til að komast út. Við rétt sluppum við gusu meðan að við vorum inni í búð.

Nenni ekki að blogga meira, er eitthvað pirruð, allt fer í taugarnar á mér þessa stundina. Svona er þetta stundum en líður sem betur fer fljótt hjá. Vonandi verð ég ekki lasin, fann smá til í hálsinum í fyrradag, er með smá hausverk og hor í nös. Líður ágætlega í dag.

Tók mig til og bakaði bæði muffur og svampbotn í gær. Skellti svo bananarjóma á milli og frosin ber ofan. Fínasta terta. Seydi keypti lambasneiðar í gær og grillaði þær á samlokugrillinu. Var fínt, ekkert eins gott og ísl. lamb en það mátti borða það. Þessir tyrknesku kjötiðnaðarmenn virðast ekki kunna að skera kjöt svo það líti vel út......hálf ljótar sneiðar hjá þeim!

Haustkveðjur

mánudagur, 5. október 2009

Löng helgi

Það er alveg spurning um að blogga í dag. Er í fríi vegna kennarafundar, ákvað að vera bara heima þó ég hefði alveg getað farið með Julian í gæslu og Henrik í leikskólann. Gott að taka bara langa helgi á þetta. Á laugardaginn var þjóðhátíðardagur Þýskalands en Dorsten (bærinn þar sem verkstæðið er) ákvað að hafa búðir opnar (flestar) og hausthátíð í leiðinni. Við skelltum okkur þangað eftir að hafa komið við á verkstæðinu og verðmerkt bíla og fært til á stæðinu. Eitthvað verður að gera til að selja druslurnar........reyna það allavega. Höfum samt selt eina 3 bíla á undanförnum vikum, verður að teljast ágætt miðað við "ástandið".

Í gær var svo flóamarkaður og þar var nú keypt alveg hellingur, Milka súkkulaði og annað sælgæti, gulir tómatar, skyndikjúllaborgarar, pylsur, rúmföt, Playmobil dót ofl. Við komum þungt hlaðin heim.

Þarf að fara í bókasafnið á eftir, ætla að taka Bärbel og Florian með. Vona að strákarnir vilji labba, þeir eru svoddan glannar á hjólum og oft stórhættulegt (finnst mér) að fara í hjólareiðatúr.

Ég ákvað því að skella mér ALEIN í hjólatúr seinni partinn í gær. Skildi kallana bara eftir heima. Ég held ég hafi ekki svitnað svona mikið í maaaaaaaaarga mánuði enda lítið í ræktinni!

Fákurinn minn



Út um gluggann í stofunni

Bara 4 dagar og þá er komið haustfrí. Alveg heilar 2 vikur! Ekkert planað hér á bæ, alveg spurning um að fara eitthvert í frí. Á fimmtudaginn er ég líka í fríi.......ætla að keyra krílin af leikskólanum á elliheimili þar sem "Schnuppis" kórinn ætlar að syngja. Fæ stóra bílinn til þess og get því tekið 6 krakka með. Seinni partinn er svo partý á grænu deildinni, Plock partý en Plock er regndropi og hann er þemað hjá þeim núna. Snýst allt um vatn.

Það var ljótt að missa af ættarmóti um helgina. Reyndar þekkir maður nú flesta, veit allavega hvernig þeir líta út. Ekkert svona "ó hver ert þú?" dæmi þar á ferð. Svona er það þegar flestir búa á sömu þúfunni eins og mínir ættingjar, báðum megin. Ég man sem krakki öfundaði ég vini sem áttu afa, ömmu, frændur og frænkur á öðrum stöðum en Húsavík. Ég átti ekki marga ættingja utan Þingeyjarsýslu og á ekki enn. Takk Rakel að eiga heima í borginni :) Hahaha.
Kannski á ég þessvegna heima erlendis, það var snemma draumur að komast út í heim, sjá eitthvað annað en Þingeyjarsýslu og Ísland. Ég er búin að sjá ýmislegt, frá Los Angeles til Tyrklands en það er líka margt sem ég hef ekki séð eins og t.d. Svíþjóð og Finnland, Pólland og Portúgal. Kannski á ég eftir að heimsækja enn fjarlægari staði eins og Ástralíu og Japan, hver veit.............

Góðar stundir