föstudagur, 30. október 2009

Haustið


Vá hvað haustið er geggjað í ár, enn hanga alveg fullt af laufblöðum á trjánum, skærgul og falleg. Í dag var eins og komin væri hríð........laufblaðahríð, vantaði bara aðeins meiri vind og þetta hefði verið stórhríð :)

Ég elska haustið en því miður er það búið of fljótt og trén búin að týna laufblöðunum. Sem betur fer er líka ansi mikið um sígræn tré og sígræna runna hérna.

M.a.s. rósir blómstra sumstaðar ennþá.

Maríuhænur fljúga útum allt þessa dagana, ein settist á öxlina á mér í dag þegar ég sat úti á svölum í 15° hita og sól, indælt. Hlýtur að vera lukkumerki ;)

Ég sá líka vespu í dag, hún hefur lifað frostið um daginn af. Ekkert frost þessa dagana, bara indælt veður og 15° hiti. Þoka í morgun en hún var fljót að víkja fyrir sólinni.

Halloween á morgun og Allra Heilagur á sunnudaginn. Fúlt þegar frídagar detta á sunnudaga, allt hvort eð er lokað. Allavega búðir og svona. Graskerið er komið með andlit og stendur uppi á hillu á svölunum :)

Mér tekst ekki að losna við þessi 2-3 kg (til að byrja með) enda þýðir ekkert að úða í sig nammi og hreyfa sig ekkert nema hérna í tröppunum.........nei, aginn er ekki mikill og því lítil von um árangur. Æi, nenni ekki að hugsa um þetta, langar bara í nammi þegar ég hugsa um að leggja af!

Spurning um að hætta þessu bloggi, kannski skrifa einu sinni í mánuði eða svo. Ef mamma fer á facebook er ég ansi hrædd um að ég hætti þessu..........

Góða helgi

6 ummæli:

  1. æji nei, ekki hætta að blogga, þú ert eina sem ég les alltaf bloggið hjá.....en ég skil vel að þú nennir því ekki - ég myndi alls ekki nenna því! en alltaf gaman að fylgjast með þér/ykkur hér í blokki:) Facebook er eiginlega meira bara stikkorð og smápælingar, allt annað...

    góða halloween helgi:*
    Rakel Dögg

    SvaraEyða
  2. Já það er alveg rétt Rakel, ekkert hægt að skrifa neinar miklar pælingar á facebook.
    Ég hugsa nú að ég haldi eitthvað í bloggið. Nýkomin með þema og alles (setja myndir með).

    Knús sæta

    SvaraEyða
  3. HÆ hæ. Eg er sko ekkert að fara á facebook góða mín svo þú skalt halda áfram að færa mér fréttir með þessu bloggi takk fyrir, flott að fá myndir með.
    Eigðu góða og skemtilega helgi.
    Kveðja mamma.
    (knús kallana)

    SvaraEyða
  4. Haha, góð mamma. Ég lofa að halda áfram.
    Enn einn fallegi haustdagurinn í dag, sýnist mér. Alger snilld.

    Knús

    SvaraEyða
  5. Ætlarðu bara að hætta að blogga ef mamma fer á facebook? Takk fyrir. Hvað með mig?!! Ekki ætla ég á facebook, ég nenni ekki að lesa hvort hinn eða þessi fékk sér banana eða fór í hreina blúndubrók eftir sturtuna o.s.frv. Endilega haltu áfram að blogga, ef þú vildir vera svo væn.

    Tölvan tekur einfaldlega alltof mikinn tíma frá fólki nú til dags, og hana nú.

    Annars er bara fínt að frétta, allir hressir hérna megin. Bestu kveðjur til ykkar yfir hafið, U.

    SvaraEyða
  6. Alveg rétt hjá þér Unnur mín, ég blogga fyrir mömmu OG þig :) Ég skal vera svo væn að halda áfram.

    Þetta með að tölvan taki of mikinn tíma frá fólki er kannski rétt í sumum tilfellum en þetta var líka sagt um útvarpið, sjónvarpið osfrv. Við höfum jú öll val um hvað við viljum eyða miklum tíma í þetta allt saman :)

    Knús kæra systir

    SvaraEyða