Lego er frábært dót. Takk Ole Kirk Christiansen fyrir þessa snjöllu hugmynd og snjalla nafn á dóti. Ég átti ansi mikið af Lego kubbum, fólki, gluggum, hurðum og m.a.s. eldhús........samt var og er Lego frekar dýrt dót. En það endist líka vel og kynslóð eftir kynslóð hafa gaman af þessu. Reyndar er sumt orðið ansi ýkt og flókið að setja saman og ef það blandast við hina hrúguna er MJÖG erfitt að finna rétta kubbann. Ég var einu sinni marga klukkutíma að setja saman flugvél sem Julian á. Og ekki er hún sú flóknasta.......kubbarnir voru bara komnir saman við hina. Mér finnst mest gaman af venjulegum kubbum. Var reyndar rosa stolt af eldhúsinu mínu (kannski átti Unnur það líka eða jafnvel bara hún????). Missti einu sinni tönn þegar ég ætlaði að taka kubba í sundur, hún var hvort eð er laus :) Ég er alger Lego aðdáandi.
Tók mér frí í dag og fór með strákana í Legoland Discovery Center í Duisburg. Þurftum að bíða í klukkutíma í röð til að komast inn......það var þess virði og okkur fannst gaman. Set inn myndir hjá strákunum. Skrapp í IKEA á leiðinni heim. Keypti mér m.a. nýtt jólatrésskraut, úr korni, svona stjörnur, hjörtu og annað. Ætla að breyta til í ár og sleppa kúlunum.
Er þreytt núna eftir þennan þvæling en sem betur fer var veðrið gott og hitinn fór í 18° og sólin skein. Alveg magnað haustveður.
Farið vel með ykkur
Hæ,hæ. Já LEGO klikkar ekki í dag frekar en fyrri daginn, gaman að því.
SvaraEyðaGott að fara að huga að jólunum, það er nú samt bara október ennþá.
Hafðu það gott elskan.
Kveðja og knús þín mamma
Takk fyrir innilitið elsku mamma, klikkar ekki á því.
SvaraEyðaÉg ætla nú að fara að huga að jólagjöfum en fyrst af öllu afmælisgjöf handa Unni. Má ekki gleyma að senda hana.
Haustkveðja, já nú er sko allt að verða fallega gult.
ooo já, ég er einlægur aðdáandi Lego líka, alveg elska lego:) það skiptir eiginlega ekki hvað maður er gamall, mér finnst alltaf gaman að byggja úr lego, en ég er sammála þér með sumt að þessu nýja lego - alltof flókið og ekki hægt að hafa með í kassanum með "venjulega" legoinu!! svo finnst mér ekkert gaman að byggja eftir leiðbeiningum;)
SvaraEyðaKOSS Á ÞIG:*
rakel
Takk fyrir innlitið sæta. Heyri svo sjaldan í þér á facebook, sakna þín :*
SvaraEyða