Í gær var svo flóamarkaður og þar var nú keypt alveg hellingur, Milka súkkulaði og annað sælgæti, gulir tómatar, skyndikjúllaborgarar, pylsur, rúmföt, Playmobil dót ofl. Við komum þungt hlaðin heim.
Þarf að fara í bókasafnið á eftir, ætla að taka Bärbel og Florian með. Vona að strákarnir vilji labba, þeir eru svoddan glannar á hjólum og oft stórhættulegt (finnst mér) að fara í hjólareiðatúr.
Ég ákvað því að skella mér ALEIN í hjólatúr seinni partinn í gær. Skildi kallana bara eftir heima. Ég held ég hafi ekki svitnað svona mikið í maaaaaaaaarga mánuði enda lítið í ræktinni!
Bara 4 dagar og þá er komið haustfrí. Alveg heilar 2 vikur! Ekkert planað hér á bæ, alveg spurning um að fara eitthvert í frí. Á fimmtudaginn er ég líka í fríi.......ætla að keyra krílin af leikskólanum á elliheimili þar sem "Schnuppis" kórinn ætlar að syngja. Fæ stóra bílinn til þess og get því tekið 6 krakka með. Seinni partinn er svo partý á grænu deildinni, Plock partý en Plock er regndropi og hann er þemað hjá þeim núna. Snýst allt um vatn.
Það var ljótt að missa af ættarmóti um helgina. Reyndar þekkir maður nú flesta, veit allavega hvernig þeir líta út. Ekkert svona "ó hver ert þú?" dæmi þar á ferð. Svona er það þegar flestir búa á sömu þúfunni eins og mínir ættingjar, báðum megin. Ég man sem krakki öfundaði ég vini sem áttu afa, ömmu, frændur og frænkur á öðrum stöðum en Húsavík. Ég átti ekki marga ættingja utan Þingeyjarsýslu og á ekki enn. Takk Rakel að eiga heima í borginni :) Hahaha.
Kannski á ég þessvegna heima erlendis, það var snemma draumur að komast út í heim, sjá eitthvað annað en Þingeyjarsýslu og Ísland. Ég er búin að sjá ýmislegt, frá Los Angeles til Tyrklands en það er líka margt sem ég hef ekki séð eins og t.d. Svíþjóð og Finnland, Pólland og Portúgal. Kannski á ég eftir að heimsækja enn fjarlægari staði eins og Ástralíu og Japan, hver veit.............
Góðar stundir

já, maður er svo framandi og spennandi að búa ekki á Húsavík;) ...en það er hins vegar drullufúlt að eiga engan ættingja hér á svæðinu svona til að kíkja í heimsókn....en kannski bara verður tilefni til að fara til Sverge í framtíðinni -aldrei að vita (ef Gunnarinn verður samvinnuþýður;) )
SvaraEyðaEigið góðan frídag....hér fer dagurinn í efnafræðireikning og verklega örverufræði fram á kvöld. VEI:)
kveðja,
rakel
Jæja, mér líst vel á Sverige, langar þangað ;)
SvaraEyðaÁttum fínan frídag, bókasafn og kaffi hjá Bärbel.
Kveðja úr 18° hita og skýjuðu veðri. Er ekki bara snjórinn mættur í borginni!
Knús
Ekki gleyma,það búa ekki allira Húsavík og nágreni eða R.vík sumir búa á Austurlandi og þar er margt hægt að skoða sem er bara ekkert síðra en Svíþjóð eða Finnland og þú ert alltaf velkomin hingað þegar hættir að snjóa. Kveðja úr snjókomunni á Austurlandi.
SvaraEyðaJá fyrirgefðu elsku Valla (býst við að þú sér þessi nafnlausa). Ég þakka þér líka fyrir að búa fyrir utan þúfuna, ég lofa að koma næst þegar ég er á landinu. Ef ég kæmi núna myndi örugglega hætta að snjóa.....
SvaraEyðaBestu kveðjur í snjóinn
Takk fyrir spjallið. Kveðja mamma.
SvaraEyða