
Hafði ekkert til að blogga um og hef ekki tekið neinar spennandi myndir svo ég set bara mynd af mér sjálfri hér inn. Aðeins búin að breyta henni, bara að leika mér. Er ein heima eins og er. Líður ekkert of vel og því tók Seydi strákana út að borða. Ég lagði mig reyndar áðan og það hjálpaði mikið, held ég hafi m.a.s. sofnað smá. Yndislegu synir mínir leyfðu mér bara að sofa og voru ekkert að trufla. Í þetta skiptið! Julian á það til að kalla á mig.......mamma, maaaaaaammma, maaaaaaaaaammmmmma........JÁ.........ekkert, ætlaði bara að athuga hvar þú værir! Hefur gert þetta ansi oft undanfarið. Hann hangir mikið í "pilsfaldinum" þessa dagana. Kannski af því að hann er í haustfríi og fylgir mér út um allt. Eiginlega ætti ég að vera fegin að synir mínir vilja yfir höfuð vera hjá mér, knúsa mig og kyssa. Æi já, mér finnst það bara æðislegt.
Ekkert að láta undan þessar maríuhænur þó að næturfrostið sé mætt. Önnur þeirra er evrópskt, hin asísk. Svo segir Julian. Við erum voða hrifin af þessu dýri enda er það notað sem lukkumerki ásamt svíni, smárablaði og sótara. Já og svo skeifa og 1 cent.
Erum komin í smá Halloween fíling. Búin að skreyta smá með litlum gler graskerjum og dóti. Orðið ansi haustlegt hjá okkur. Úti líka en langt því frá eins snemma eins og í fyrra. Ég sé það á myndum sem ég tók í byrjun október 2008. Við erum allavega 2-3 vikum á eftir. Hvað er svo normal veit ég ekki alveg. Sums staðar er bara kominn vetur t.d. í Austurríki. Skíðafólk komið á brettin.
Jæja, best að njóta þess að vera "Home Alone" í smá stund. Knús og kossar.
Erum komin í smá Halloween fíling. Búin að skreyta smá með litlum gler graskerjum og dóti. Orðið ansi haustlegt hjá okkur. Úti líka en langt því frá eins snemma eins og í fyrra. Ég sé það á myndum sem ég tók í byrjun október 2008. Við erum allavega 2-3 vikum á eftir. Hvað er svo normal veit ég ekki alveg. Sums staðar er bara kominn vetur t.d. í Austurríki. Skíðafólk komið á brettin.
Jæja, best að njóta þess að vera "Home Alone" í smá stund. Knús og kossar.
Hæ hæ. Mér bara dauðbrá þegar eg sá myndina af þér, hélt að þú værir veik róaðist þegar eg fór að lesa.
SvaraEyðaGaman að heyra frá þér, njóttu helgarinnar elskan mín.
Bið að heilsa köllunum.
Kveðja mamma.
Ha, veik.....er þetta svona hræðileg mynd af mér? Eða meinarðu breytinguna?
SvaraEyðaKnús til ykkar líka.
sæt myndin af þér...
SvaraEyðahaustið hér hjá mér er tveimur vikum á undan meðalári og undanfarnar þrjár vikur hafa verið að slá öll kuldamet fyrir tímabilið -
Al Gore og global warming hvað, segi ég nú bara...
bestu kveðjur
æi takk Stella mín :)
SvaraEyðaJá ég segi nú líka Global Warming hvað??? Búið að vera kalt hér undanfarið og skíðatímabilið byrjað í Austurríki, langt á undan áætlun.
Knús
þú ert voða sæt á þessari mynd Inga...og ekkert veikluleg ef mamma átti við það;)
SvaraEyðaFúlt að þú skulir vera slöpp::( ég einmitt var líka slöpp um helgina - ég held eftir þessa fjandans spautu, fékk þvílíku útbrotin á handlegginn og slappleika.
Skemmtið ykkur vel á Halloween, þið eruð alltaf svo dugleg að skreyta og halda upp á svona:)
KNÚS & KOSS Á ÞIG,
rakel systir
Takk Rakel mín en mömmu bara brá því að myndin er breytt, hahahaha.
SvaraEyðaÉg ætla ekki að fá mér svínaflensusprautu (77 % fólks hér ætlar það ekki) heldur fara í venjulega flensusprautu með strákana og mig þegar við hættum að hósta og horið er farið.....Læknirinn mælti með því, ekki vitað hvað gerist ef venjuleg flensa hittir svína. Ég þekki engan með svína hér og hef ekki heyrt um neinn í mínu umhverfi.
Vona að þú náir þér nú fljótt í hendinni og að Gunnari batni fljótt.
Stórt knús og sólar/haustkveðja