Læt myndirnar tala, haustið er komið. Samt ekki eins langt komið og í fyrra, ég sé það á myndum sem ég tók þá. Á föstudaginn var sól og fínt veður, í gær var komin rigning. Seinni partinn kom sólin þó á milli rigningargusa. Þar sem Henrik var með hita fór ég með Julian smá túr í bæinn, aðeins til að komast út. Við rétt sluppum við gusu meðan að við vorum inni í búð.
Nenni ekki að blogga meira, er eitthvað pirruð, allt fer í taugarnar á mér þessa stundina. Svona er þetta stundum en líður sem betur fer fljótt hjá. Vonandi verð ég ekki lasin, fann smá til í hálsinum í fyrradag, er með smá hausverk og hor í nös. Líður ágætlega í dag.
Tók mig til og bakaði bæði muffur og svampbotn í gær. Skellti svo bananarjóma á milli og frosin ber ofan. Fínasta terta. Seydi keypti lambasneiðar í gær og grillaði þær á samlokugrillinu. Var fínt, ekkert eins gott og ísl. lamb en það mátti borða það. Þessir tyrknesku kjötiðnaðarmenn virðast ekki kunna að skera kjöt svo það líti vel út......hálf ljótar sneiðar hjá þeim!
Haustkveðjur

haustkveðjur <3
SvaraEyðaAlva.
Já, hef alltaf heyrt talað um austkvefið það er eitthvað sem er allsstaðar í gangi á þessum tíma.
SvaraEyðaVonandi heilsast ykkur.
Kveðja mamma.
já svona vertu ekki að taka á móti einhverri pest, alveg bannað... njóttu vikunnar!
SvaraEyðaPirringurinn farinn og "bara" hausverkur eftir. Litli gaur en enn smá slappur en sá stóri "bara" með hausverk. Einhver haustslepja í gangi!
SvaraEyðaRigningarkveðja
Bara að fara vel með sig í 2 daga, sofa vel og drekka mikið vatn og allt slen farið, vittu til.
SvaraEyðaBestu kveðjur til ykkar allra. U.
Henrik svaf til 11:30 en vaknaði í nótt og gubbaði. Julian er með kvef en ég er hress. Erum bara heima að slaka á.
SvaraEyðakoss og knús á línuna og vonandi hverfur slenið fljótt:)
SvaraEyðakv. Rakel