laugardagur, 28. nóvember 2009

Aðventan nálgast

Hva....aðventan byrjar á morgun. Vá hvað tíminn líður hratt, nóvember er að verða búinn! Ég er búin að kaupa jólagjafirnar sem eiga að fara til Íslands, var reyndar að pæla í að kaupa eina í viðbót, sé til með það. Þar sem mér tókst, eina ferðina enn, að kaupa of stórar og þungar gjafir er þetta komið yfir 5 kg!!! Nú þá er bara að kaupa fullt af góðgæti og senda með, kostar lítið meira að senda 5 eða 10 kg. Nú vantar mig stærri kassa, strandar allt á því. Verð að leita betur á verkstæðinu.


Smá jólastemming frá Recklinghausen

Ég komst í smá jólaskap í gær þegar Henrik og co. voru að syngja jólalög niðrí bæ. Svo sungu kórar jólalög fyrir framan ráðhúsið, já það var ansi jólalegt. Nú má aðventan alveg koma. Ég er búin að ná í jólaskrautið, aðventuljósið er komið í gluggann og stjarnan í eldhúsgluggann. Á eftir að setja falleg kerti í 4ra arma kertastjaka sem Hjálmar gaf mér einu sinni. Nota hann líka sem aðventukrans. Dagatalakertið er líka tilbúið, alveg ómissandi á mínu heimili.

Þar sem ég hafði tíma til að fara í bæinn á þriðjudaginn ákvað ég að klára jólagjafakaup til Íslands og skoða ný gleraugu. Fann loksins gleraugu sem mig langaði í og ætti að fá þau eftir rúmlega viku. Ég hef svo vikutíma til að venjast þeim, fá álit frá öðrum en ég má skpta þeim ef mér líkar þau ekki. Vona að ég hafi valið rétt. Hef ekki fengið mér ný gleraugu í 4 ár!

Bayramin mubarek olsun=gleðilega fórnarhátíð. Fór til tengdó í dag til að gleðja þau. Strákarnir fengu gjafir frá pabba sínum og afa. Fínt að fagna öllu mögulegu ef maður hagnast af því :)

Kveðjur


þriðjudagur, 17. nóvember 2009

Upplifun

Ég upplifði eitthvað í morgun sem mig langaði ekkert til að upplifa. Þegar ég var hálfnuð í vinnuna sá ég í fjarska 2 lögreglubíla með ljós, líkbíl ofl. Í þann mund sem ég keyri framhjá er jarðarfaraþjónustan að setja börur með líki í poka á grind........hugsanir mínar snérust í hringi.....ætli einhver hafi dáið þarna í runnanum, eða jafnvel hent sér á teinana (var við brú yfir lestarteina)......allavega voru engin merki um umferðarslys. Ég viðurkenni að þetta var hálf óhugnalegt, rétt eins og þegar ég varð vitni af slysinu í Tyrklandi í fyrra. Þar sem bíl þrumaði á par á vespu......það var ekki falleg sjón. Ég sé eftir því að hafa farið og kíkt en Seydi var með þeim fyrstu á staðinn.  En svona er lífið, þó að það séu til óteljandi þættir um líf og störf lögreglu í TV (ég er ekki að tala um CSI og co.) þá er öðruvísi að upplifa svona með eigin augum.

Dagurinn í dag var samt nánast stresslaus, eitthvað annað en í gær þegar ég þurfti að fara með Henrik í talkennslu kl. 15:45, sækja Julian kl. 16:00, hendast í bókasafnið-og þar með leita að bílastæði í bænum-ná aftur í Henrik kl. 16:30 og fara svo í foreldraviðtal kl. 16:40.  Það var því gott að eyða síðdeginu í dag bara heima í ró og næði, hlaða spili í tölvuna, elda núðlur, horfa á fréttir. Skrapp þó aðeins í bæinn með Henrik milli 14-16. Náði m.a.s. að kaupa hluta af 2 jólagjöfum :) Já og kaupa mér skó og RAUÐ epli :)




Laugardagurinn fór í undirbúning undir söng hjá leikskólakórnum og klukkan að verða fjögur keyrði ég í bæinn til að litli gaur gæti nú farið að syngja með. Hann er orðinn nokkuð frískur, búinn með annað glasið af lyfjum og við ætlum að kíkja á lækninn á morgun. Vita hvort að lungun séu orðin "frjáls" eins og sagt er hér.
Til að sjá myndir og video af Henrik set ég inn linka. Myndir og Video

Eigið góðan dag og viku.












mánudagur, 9. nóvember 2009

Allt og ekkert

Ljósashowið í Recklinghausen. Endaði 7.nóv. Hótel Engelsburg


Velkominn nóvember, ert m.a.s. kominn langt á leið, 1/3 að verða búinn. Vá hvað tíminn líður hratt. Jólin bara nálgast óðum. Ég verð að fara að huga að jólagjöfum. Kaupa dagatöl handa strákunum og dagatalakerti, alveg nauðsynlegt og minnir mig á mína æsku. Ég veit ekkert hvað ég á að kaupa handa fólkinu mínu í jólagjöf.........þið megið alveg skrifa óskalista í kommentin ;) Hvað kaupir maður t.d. handa 12 ára strák? En jólakortin eru komin í hús, bara eftir að skrifa á umslögin og senda. Magnað.

Gullsmiður

Það er heldur hráslagalegt þessa dagana. Í dag var sérstaklega "blautkalt" eins og sagt er hér. Ég eyddi löngum tíma hjá barnalækni með Henrik. Hann er kominn með bronkítis eins og hefur komið fyrir áður. Greyið var alveg bakk í gær, gat lítið borðað, lá bara og lullaði og gubbaði öllu, eða því litla sem hann kom niður. Var nú strax skárri í dag, ég sé það strax á honum og heyri, þegar hann er lasinn talar hann ekki mikið..........hann byrjaði strax að mala í morgun svo ég vissi að hann væri skárri. Æi hann er svo duglegur, þurfti að bíða HEILLENGI hjá lækni til að komast að (FULL biðstofa) svo aftur að bíða inni í herbergi, fá stíl í rass, anda að sér gufu.....tvisvar. Hann fékk sko Kinder egg í verðlaun :)
Ráðhúsið

Ég fór á kvöld númer 2 (af 3) á foreldranámskeiði í leikskólanum áðan. Meira og minna áhugavert. Hvað fólk getur haft áhyggjur að 1 1/2 árs vilji alltaf ýta á takkana á græjunum..... eða kveikja á eldavélinni! Suma foreldra vantar alveg tilfinninguna við að sjá um/ala upp börn. Kunna bara á bókina og vilja gera ALLT rétt og ef eitthvað er ekki eins og það ímyndar sér fer allt úr skorðum. Lítil bómullarbörn vaxa úr grasi. Að þessu leyti er ég ekki vel aðlöguð þýsku samfélagi, allavega stórum hluta af því. En ég spjallaði við 2 mömmur (Arne og Tarek) áður en ég fór heim og við erum nokkurn vegin á sama máli um flest. Þyrftum að hittast til að spjalla, bara við þrjár. Gæti orðið gaman þar sem gaurarnir eru allir á sama aldri.

Ætli ég verði ekki að sofa á sófanum eða í rúmi Henrik. Rúmið mitt er fullt........ætla að kíkja aðeins á imbann áður en ég leggst til hvílu.

Góða nótt