mánudagur, 9. nóvember 2009

Allt og ekkert

Ljósashowið í Recklinghausen. Endaði 7.nóv. Hótel Engelsburg


Velkominn nóvember, ert m.a.s. kominn langt á leið, 1/3 að verða búinn. Vá hvað tíminn líður hratt. Jólin bara nálgast óðum. Ég verð að fara að huga að jólagjöfum. Kaupa dagatöl handa strákunum og dagatalakerti, alveg nauðsynlegt og minnir mig á mína æsku. Ég veit ekkert hvað ég á að kaupa handa fólkinu mínu í jólagjöf.........þið megið alveg skrifa óskalista í kommentin ;) Hvað kaupir maður t.d. handa 12 ára strák? En jólakortin eru komin í hús, bara eftir að skrifa á umslögin og senda. Magnað.

Gullsmiður

Það er heldur hráslagalegt þessa dagana. Í dag var sérstaklega "blautkalt" eins og sagt er hér. Ég eyddi löngum tíma hjá barnalækni með Henrik. Hann er kominn með bronkítis eins og hefur komið fyrir áður. Greyið var alveg bakk í gær, gat lítið borðað, lá bara og lullaði og gubbaði öllu, eða því litla sem hann kom niður. Var nú strax skárri í dag, ég sé það strax á honum og heyri, þegar hann er lasinn talar hann ekki mikið..........hann byrjaði strax að mala í morgun svo ég vissi að hann væri skárri. Æi hann er svo duglegur, þurfti að bíða HEILLENGI hjá lækni til að komast að (FULL biðstofa) svo aftur að bíða inni í herbergi, fá stíl í rass, anda að sér gufu.....tvisvar. Hann fékk sko Kinder egg í verðlaun :)
Ráðhúsið

Ég fór á kvöld númer 2 (af 3) á foreldranámskeiði í leikskólanum áðan. Meira og minna áhugavert. Hvað fólk getur haft áhyggjur að 1 1/2 árs vilji alltaf ýta á takkana á græjunum..... eða kveikja á eldavélinni! Suma foreldra vantar alveg tilfinninguna við að sjá um/ala upp börn. Kunna bara á bókina og vilja gera ALLT rétt og ef eitthvað er ekki eins og það ímyndar sér fer allt úr skorðum. Lítil bómullarbörn vaxa úr grasi. Að þessu leyti er ég ekki vel aðlöguð þýsku samfélagi, allavega stórum hluta af því. En ég spjallaði við 2 mömmur (Arne og Tarek) áður en ég fór heim og við erum nokkurn vegin á sama máli um flest. Þyrftum að hittast til að spjalla, bara við þrjár. Gæti orðið gaman þar sem gaurarnir eru allir á sama aldri.

Ætli ég verði ekki að sofa á sófanum eða í rúmi Henrik. Rúmið mitt er fullt........ætla að kíkja aðeins á imbann áður en ég leggst til hvílu.

Góða nótt

12 ummæli:

  1. Inga mín, þú þarft ekkert að vera í Þýskalandi (eða einhverju öðru landi) til að finnast fólk þurfi að fara eftir einhverjum "manual", þetta kemur því miður fyrir hér á fróni líka!! Farið eftir einhverri uppskrift, sem svo virkar ekki og þá veit fólk ekkert hvað það á að gera!! ;-)
    Dugleg ertu og taktu það til þín!
    Kv. Lilla

    SvaraEyða
  2. Já takk Lilla mín. Einmitt þetta að fólk veit ekkert hvað það á að gera þegar börnin eru ekki eftir "formúlunni" sem það var búið að ákveða.....Konan á námsk. kom með góða sögu. Vinkonu hennar fannst gaman að lesa og sá sig fyrir sér að lesa bók á köldum nóvember degi, drekkandi te og barnið líka með bók..... konan eignaðist "hvirfilvind" sem hafði ekkert gaman af bókum!

    That´s life og við erum öll bara manneskjur en ekki vélmenni :)

    Knús

    SvaraEyða
  3. hehe, ég get ímyndað mér að þjóðverjinn fíli EKKI að hegðun barnanna fari ekki eftir uppskriftinni sem gefin var upp í aðal-uppeldisbókinni;)

    En talandi um jólagjafir, þá langar mig mikið í KERASTASE sjampó (ef það er enn til í ódýru búðinni þú veist), svo langar mig líka í gott bodylotion, ilmvatn, kinnalit, glanssprey í hárið, augnskugga, naglalakk, jólastyttu, booblebað, CD með slökunartónlist, CD með jólalögum.....eru þetta nægar hugmyndir???

    kveðja til þín og knús á lasarusinn:*
    Rakel

    SvaraEyða
  4. Takk Rakel mín, þetta ætti að duga til að finna eitthvað fallegt handa þér :)

    SvaraEyða
  5. Hæ hæ. Er Henrik minn kominn með bronkitis eina ferðin enn, vonandi batnar honum fljótt hann er svo duglegur elsku kallinn. Bata kveðjur frá ömmu.
    Eg ætla ekki að blanda mér í barnauppeldisumræðuna átti enga uppskriftabók nema mataruppskriftir lét það bara nægja.
    Þú lætur bara jólabjölluna duga handa mér.
    Kveðja mamma

    SvaraEyða
  6. Já mamma en honum líður betur en má ekki fara í leikskólann. Hann er á lyfjum sem gætu gert hann aðeins "örari" og hann má ekki reyna á sig, hoppa,hjóla osfrv. Erum að fara til læknis núna 3ja daginn í röð. Þær vilja fylgjast vel með.

    Ég held að mataruppskriftabækurnar þínar hafi bara verið fínustu uppeldisbækur, allavega eru þær sterkar í minningunni :)

    Jólabjallan er með Ísland sem þema þetta árið. Sleppi henni nú ekki ;)

    Inga

    SvaraEyða
  7. Hæ, gefðu mér bara:
    # Weleda vörur
    # Svo er kannski enn til svona broskarla-mynstur á eldhústólum (það á ekki að standa eldhússtólum)
    # Nýjan engil eins og í fyrra, lyklakippan manstu?
    # Nýtt glas af Victoria Beckham ilmvatninu, hef verið mjög dugleg að nota það. Við Victoria erum líka pennavinkonur...
    Keyptu bara ekki kinnalit,glansspray, bodylotion, cd með slökun, augnskugga og naglalakk.
    Knúsaðu Henrik frá mér, koss á ykkur hin...U.

    SvaraEyða
  8. Jáhá Unnur, það er aldeilis! Má ég velja úr þessu eða viltu fá allt ;) Hahahaha

    SvaraEyða
  9. En þú gleymdir alveg að segja hvað maður gefur "næstum því" unglingi ;)

    SvaraEyða
  10. Þú mátt velja, ekki fá valkvíða..
    Já það er nú þetta með næstum því unglingana, samkvæmt nýjustu rannsóknum eru ilmvatn, rollon og eitthvað álíka svalt mjög vinsælt. Röndóttir sokkar eru einnig móðins, léttir og góðir að senda, svo hagkvæmt...

    Þarf að heyra í þér við tækifæri, þarf að spyrja um mangóduft, já mangóduft. Kv. U.

    SvaraEyða
  11. Takk systir, ég fæ engan kvíða. Ætla að fara að drífa í jólagjafakaupum sem fyrst :)

    Heyrumst útaf mangódufti.......hvað sem það nú er!
    Góða helgi

    SvaraEyða
  12. bíddu, Unnur ert þú að gera grín af jólagjafaóskalistanum mínum!!!....nú færðu að heyra´ða;)
    góða helgi Inga og þið:*

    kv. Rakel

    SvaraEyða