Smá jólastemming frá Recklinghausen
Ég komst í smá jólaskap í gær þegar Henrik og co. voru að syngja jólalög niðrí bæ. Svo sungu kórar jólalög fyrir framan ráðhúsið, já það var ansi jólalegt. Nú má aðventan alveg koma. Ég er búin að ná í jólaskrautið, aðventuljósið er komið í gluggann og stjarnan í eldhúsgluggann. Á eftir að setja falleg kerti í 4ra arma kertastjaka sem Hjálmar gaf mér einu sinni. Nota hann líka sem aðventukrans. Dagatalakertið er líka tilbúið, alveg ómissandi á mínu heimili.
Þar sem ég hafði tíma til að fara í bæinn á þriðjudaginn ákvað ég að klára jólagjafakaup til Íslands og skoða ný gleraugu. Fann loksins gleraugu sem mig langaði í og ætti að fá þau eftir rúmlega viku. Ég hef svo vikutíma til að venjast þeim, fá álit frá öðrum en ég má skpta þeim ef mér líkar þau ekki. Vona að ég hafi valið rétt. Hef ekki fengið mér ný gleraugu í 4 ár!
Bayramin mubarek olsun=gleðilega fórnarhátíð. Fór til tengdó í dag til að gleðja þau. Strákarnir fengu gjafir frá pabba sínum og afa. Fínt að fagna öllu mögulegu ef maður hagnast af því :)
Kveðjur
Þú ert dugleg Inga mín annað en hún gamla frænka fyrir austan hún nennir engu vonar að það lagist með snjónum og jólaljósunum þá verðu allt sett á fulla ferð. Kveðjur til strákanna allra(gamla líka)Valla
SvaraEyðaGleðilega aðventu vinkona, líst svo vel á að fagna jólunum bara snemma og njóta ljósanna sem allra lengst, nógu dimmt og langvarandi er skammdegið...
SvaraEyðabestu kveðjur í bæinn þinn
Já finnst þér ég dugleg frænka.....efast um að ég sé eitthvað duglegri en aðrir. Ég neyðist til að koma þessum jólagjöfum frá mér, finn bara engan kassa en ég vil ekki lenda í jólaösinni!
SvaraEyðaGleðilega aðventu
Hva, á maður von á RISApakka frá germaníunni!!?!;)
SvaraEyðaég er einmitt búin að kaupa gjafirnar til ykkar, eru klárar innpakkaðar á eldhúsborðinu og bíða eftir að komast í póst. ég var nú svo skynsöm að hafa að leiðarljósi í búðunum að hafa gjafir utan Íslands í minni kantinum....eiga samt ekki að vera neitt síðri fyrir það, er það??
Kossar og og aðventuknús á ykkur:*
Rakel
Tja Rakel, þinn pakki er nú ekkert RISA stór en nokkuð þungur. Eins og oft, keypti ég bara það sem mig langaði og hugsaði ekkert út í það hvað þetta myndi vera þungt allt komið saman!
SvaraEyðaEnn gleymdi ég kassa, fann einn á verkstæðinu. Vona að Seydi komi með hann.