Ég upplifði eitthvað í morgun sem mig langaði ekkert til að upplifa. Þegar ég var hálfnuð í vinnuna sá ég í fjarska 2 lögreglubíla með ljós, líkbíl ofl. Í þann mund sem ég keyri framhjá er jarðarfaraþjónustan að setja börur með líki í poka á grind........hugsanir mínar snérust í hringi.....ætli einhver hafi dáið þarna í runnanum, eða jafnvel hent sér á teinana (var við brú yfir lestarteina)......allavega voru engin merki um umferðarslys. Ég viðurkenni að þetta var hálf óhugnalegt, rétt eins og þegar ég varð vitni af slysinu í Tyrklandi í fyrra. Þar sem bíl þrumaði á par á vespu......það var ekki falleg sjón. Ég sé eftir því að hafa farið og kíkt en Seydi var með þeim fyrstu á staðinn. En svona er lífið, þó að það séu til óteljandi þættir um líf og störf lögreglu í TV (ég er ekki að tala um CSI og co.) þá er öðruvísi að upplifa svona með eigin augum.
Dagurinn í dag var samt nánast stresslaus, eitthvað annað en í gær þegar ég þurfti að fara með Henrik í talkennslu kl. 15:45, sækja Julian kl. 16:00, hendast í bókasafnið-og þar með leita að bílastæði í bænum-ná aftur í Henrik kl. 16:30 og fara svo í foreldraviðtal kl. 16:40. Það var því gott að eyða síðdeginu í dag bara heima í ró og næði, hlaða spili í tölvuna, elda núðlur, horfa á fréttir. Skrapp þó aðeins í bæinn með Henrik milli 14-16. Náði m.a.s. að kaupa hluta af 2 jólagjöfum :) Já og kaupa mér skó og RAUÐ epli :)
Laugardagurinn fór í undirbúning undir söng hjá leikskólakórnum og klukkan að verða fjögur keyrði ég í bæinn til að litli gaur gæti nú farið að syngja með. Hann er orðinn nokkuð frískur, búinn með annað glasið af lyfjum og við ætlum að kíkja á lækninn á morgun. Vita hvort að lungun séu orðin "frjáls" eins og sagt er hér.
Til að sjá myndir og video af Henrik set ég inn linka.
Myndir og
Video
Eigið góðan dag og viku.
Hæ hæ. Frábært að sjá þessar myndir takk fyrir það, ætla að skoða þær betur á morgun.
SvaraEyðaHafðu það gott elskan og knús á alla þín mamma
Þú ert þá sennilega búin að skoða myndir og video. Heppinn jarlinn að vera í fremri röð :)
SvaraEyðaSólarkveðja
Ég verð að segja að fóstrurnar á leikskólanum hans Henriks eru svo sannarlega að gera gott mót með börnin, alveg er þetta snilld. Þú mátt skila því til þeirra.
SvaraEyðaOg minn maður í fremstu röð, krúttlegheitin hreinlega flæða af honum. Ótrúlega gaman að þessu, ég sit hérna með saknaðartárin í augunum.
Best að hætta þessu væli og slóri og fara að sletta í formana fyrir morgundaginn. Pakkinn kom í gær, takk fyrir, ég held að ég geti baðað mig í nýrri weleda sápu á morgun! Bara aðeins búin að þukla, ég er samt ekki eins slæm og Rakel... Heyrumst, U.
Æi Unnur, þú ert svo mikil dúlla. Frábært líka að pakkinn sé kominn! Var einmitt að pæla í því áðan.
SvaraEyðaÉg er búin að skila því til fóstranna hvað bæði þú og Rakel hefði fundist regndropaleikritið flott og að þær væru að gera góða hluti. Þær voru þakklátar.
Þú ætlar sem sagt ekkert að opna pakkann fyrir afmæli??? Þú getur ekki bara baðað þig í nýrri sápu heldur líka farið í nýja........ :)
Knús úr 18° hita.
Auðvitað opnaði ég ekki pakkann fyrr en í dag, takk fyrir gjafirnar, snilldar frá hunkemöller, ég hafði einmitt hugsað að ég þyrfti að biðja þig að kíkja þangað fyrir mig.
SvaraEyðaEn hitt, nú er það ekki lengur bara venjuleg sturtusápa, nei,nei, eitthvað appelsínuhúðarskrúbb, hvað meinarðu eiginlega? Þetta kemur aðeins of seint, ég varð nefnilega mjög rík af þessarri tegund húðar fyrir nokkrum árum síðan! Haha. En það er betra að verða 37 en bara alls ekki, mér finnst það. Takk aftur.
Ég geri ekki ráð fyrir ykkur í kaffið, á boðstólnum verða: súkkulaðikaka með klessukremi, gulrótarkaka með rjóma, rækjusalat, ostakaka með blá-og krækiberjasultu, heit döðlu/súkkulaðikaka með rjóma, ostar og vínber og e-ð fleira.
Þetta tölvuhangs gengur ekki lengur, verð að drífa mig í húsverkin, knús á alla hjá þér. heyrumst vonandi í dag, U.