og ég er búin að koma pökkunum til Íslands af stað! Jibbí, þungu fargi af mér létt, var með í maganum yfir því að koma þeim ekki tímanlega af stað. Maður veit aldrei hvað þessum blessaða tolli dettur í hug! Ég fann kassa, styrkti hann með límbandi, setti jólapakkana í og fylltu upp með þýsku jólanammi. Keypti líka "auka" jólagjöf í dag og setti með. Nokkur jólakort fengu að fljóta með ef einhver vill vera svo vænn að bera þau út á Víkinni..........BITTE :) Með fyrirfram þökk.
Á síðasta föstudag var föndur í bekknum hans Julian. Mér fannst upplagt að sýna bökunarhæfileika mína og gera jólamuffur.......þær vöktu mikla lukku og kláruðust. Föndrið hefði mátt vera betur skipulagt en það gengur bara betur næst, átti góða stund með bekknum.
Jólamuffur
Seydi er farinn í vikuferð til Tyrklands.......það verður gott að slaka aðeins á frá stressinu á verkstæðinu. Það er búið að vera mikið að gera undanfarið og Seydi að vinna fram á kvöld. Svo kemur einhvern veginn allt í einu, t.d. bilaði hurðin á verkstæðið í fyrradag og þarf að skipta um vír til að koma henni upp og niður. Sumir kúnnar koma bara til að ergja (allavega segir Seydi það), honum er sérstaklega "illa við" samlanda sína sem vilja fá allt fyrir ekkert.......
Ég skrapp aðeins á verkstæðið í morgun, náði í nokkra pappíra, lagaði smá til og skrifaði einn reikning. Þarf að skreppa aftur á morgun til að ná í dekk og koma þeim til kunningja Seydi. Þyrfti helst að skreppa til Hollands líka, fer að vanta púðursykur en hann fæst ekki hér. Reyndar gæti hann verið til núna fyrir jólin.... best að athuga það. Langar samt til Hollands, kaupa almennilegt brauð :) Það er ekki ósvipað íslensku brauði.
Ég er víst að fara að leika í leikriti á jólaskemmtun leikskólans. Við ætlum að leika "Frau Holle" eða "Fiðrið hennar Huldu" á íslensku. Hef aldrei lesið söguna en veit svona nokkurn vegin um hvað hún er, ætla samt að lesa hana líka. Ég leik perutréð, hahahaha.
Bið að heilsa ykkur í bili