Unnur gaf mér þetta fína skraut
Ég er eiginlega búin að skreyta allt nema jólatréð. Það fær að bíða fram á Þorláksmessu. Þegar kemur að uppsetningu jólatrés er ég voðalega gamaldags, held í þessa æskuminningu eins lengi og ég get. Hlusta á jólakveðjur og skreyta tréð, reyndar ekki bara tréð því að yfirleitt var jólaskrautið ekki sótt fyrr en á Þorlák og allt skreytt. Nú er öldin önnur og margir farnir að skreyta híbýlin sín í lok nóvember, allavega með jólaseríum í glugga og tré. Þegar ég var barn löbbuðum við alltaf hring til að telja aðventuljós því að seríur komu seinna upp og kveikt var á jólatrénu um miðjan desember (eða er mig að misminna???) Ég átti þessa forláta seríu sem entist alveg í MÖRG ár. Eitthvað annað en þessar lélegu seríur í dag.......Reyndar á víst að fjárfesta í almennilegum seríum, þær bæði endast betur og eru ekki eins hættulegar. Sumar ódýrar seríur verða svo heitar að það getur kviknað í. Hérna mæla þeir með að kaupa ekki seríur undir € 5. Ég sá ægilega fallegar seríur í gær, frá merki sem heitir "Sirius" en þær kosta líka sitt, frá 25 evrum og upp úr. En fallegar voru þær.
Kannski best að kaupa seríur í janúar á útsölu ;) Jólaskraut líka :) Um að gera að spara.
Jæja gott fólk. Læt þetta duga í dag. Eigið góðan dag. Við ætlum kannski á flóamarkað og svo í bæinn að gefa pakka með dóti sem strákarnir áttu en börn sem eiga bágt fá svo gjafirnar.
Kveðja
Það er ekki jólalegt hjá okkur 8 gráðu hiti og sunnan andvari í gær var hitinn 11 gráður og ekkert sem minnir á jólin nema seríurnar og jólatrén, og nóg er af því. Ég er nú eins gamaldags og þú ég skreyti ekki fyrr en á þorláksmessu.Hafið það gott látið ykkur ekki verða kalt í bæjarferðinni. Jólakveðjur frá Egilsstöðum.
SvaraEyðaÉg man vel eftir göngutúrnum sem fjölskyldan fór rétt fyrir jólin og taldi aðventuljósin, frábær samvera. Ég setti nú bara upp seríur í húsið í gær en jólatréð verður ekki sett upp strax. Jólin eru frábær tími fjölskyldunnar sem fólk ætti að nýta sem allra best og mest.
SvaraEyðaHér er 8°C hiti og snjólaust, ekki hálka einu sinni, heiðskírt, bjart og fallegt veður.
Hilsen, Hjálmar Bogi
Við áttum fínan dag. Fyrst var spjallað við mömmu á msn, svo farið á flóamarkað, hentumst svo með pakkana í bæinn en sökum kulda fórum við strax heim aftur og fengum okkur te, kakó og smákökur. Núna er Seydi sofnaður og strákarnir horfa á barnaefni. Fínn sunnudagur og á morgun er spáð 1° "hita", voru um 4° í dag.
SvaraEyða