mánudagur, 21. desember 2009

4. í aðventu + 1

Já já, kominn mánudagur eftir aðventu........eða er aðventan ekki búin? Er ég að misskilja, er aðventan alveg fram að jólum? Allavega eru 3 dagar til jóla og pakkarnir frá mér bara týndir og tröllum gefnir........pabbi hringdi í tollinn og fór á póstinn, ég hringdi í DHL og enginn veit neitt! Pabba er sagt að pakkinn hafi kannski lent í skipi, hann sé ekki kominn til Íslands, mér er sagt að hann fari EKKI í skip og þeir hjá Íslandspósti séu oft erfiðir í samskiptum t.d. við að upplýsa um alþjóðleg númer á pökkum og staðsetningu.......hringavitleysa bara. En konan sem ég talaði við í dag setti af stað leit að pakkanum, voða almennileg, ekki hægt að segja það um alla þessa "callcenter" starfsmenn sem vinna daginn út og inn, allavega er opið þarna 365 24/7. Ég vona bara það besta, að pakkinn komi fyrir jól en ég verð líka ánægð ef hann finnst..................þoli ekki svona.

1 dagur eftir í skólanum og svo er komið jólafrí. Henrik fer sennilega í leikskólann á Þorlák, get þá átt tíma með Julian, farið með hann í klippingu og svona. Voðalegur lubbi kominn á hann. Henrik hefði þurft líka en ekki eins nauðsynlega.


Halterner Strasse kl.9


Hér liggur snjór, það snjóaði heilan helling í gær. Við vorum hálftíma að keyra í afmæli til bróður Seydi en einn af sonum hans átti afmæli í gær. Vanalega erum við rúmlega 10 mín. að keyra. Fólk kann bara ekki að keyra í snjó, er jafnvel á sumardekkjum.......þegar við komum heim fór Seydi á bensínstöðina neðar í götunni og ég ákvað að labba heim. Fá mér ferskt loft eftir reykingarstybbuna í afmælinu. Ég elska snjó, allt er svo bjart, allt er svo hljótt, fáir á ferli, friður bara. Voða notalegt. Því miður mun snjórinn (sennilega) bráðna fyrir jól :( Skruppum því á þotur fyrir framan leikhúsið í dag. Það þýddi samt lítið til að þreyta syni mína, þeir eru enn vakandi og klukkan er hálf tíu! Óþreytandi þessir drengir. Eru samt komnir á ról upp um sjöleytið! Ætla að koma þeim í ró........verð að fá frið til að hugsa, hahaha.

Hafið það gott elskurnar. Knús

3 ummæli:

  1. Hahaha, algjörlega óþreytandi pjakkarnir þínir. Og nú voru mínir strákar ekkert nálægt til að galsast í þeim. Vona að pakkarnir finnist fyrir jól. Algjörlega óþolandi svona jólapakkatíningur.
    Hafðu það sem best um jólin vinkona og mikið hlakka ég til að sjá þig aftur árið 2010, það er sko plan góða mín.

    SvaraEyða
  2. Hmmmm, ég giska á að þú sért Helga Jóhanna? ;)

    SvaraEyða
  3. Heiðrún Jóhannsd.1. janúar 2010 kl. 23:53

    Hvernig fór með pakkann, komst hann til skila? Leiðinlegt svona pakkavesen...ég er enn að bíða eftir pakka sem sendur var frá Hollandi í júlí 2008!!!! og já hann hefur ekki enn fundist þrátt fyrir að búið sé að hringja í allt og alla hér innanlands og í Hollandi! Envona að þinn pakki hafi komist til skila.
    kveðja
    Heiðrún

    SvaraEyða