þriðjudagur, 29. desember 2009

Gamlárs

Eftir 2 daga er Gamlárs, nýtt ár fer að hefjast. Gangið hægt um gleðinnar dyr og farið varlega með flugeldana. Óska öllum gleði og hamingju á árinu 2010.

Við erum bara í letinni, sofum til hálf níu-níu, borðum morgunmat og í gær fór ég aðeins í vinnuna og svo í búð, í dag fór ég með strákana í íþróttasal niðrí bæ þar sem hægt var að hamast og hoppa. Þeir vildu nú ekki leyfa mér að fara svo ég lék mér með og fór svo aðeins í H&M og með gaurana í klippingu. Voru orðnir eins og tröll.... sérstaklega Julian. Nú á ég 2 nýja stráka :)



Julian vildi ekki láta mynda sig meira....Eðlilegir!

Seydi fór að vinna eins og fyrri daginn, reyna að ná inn pening sem fólk skuldar síðan 2006.....síðasti séns.

Ég er að hugsa um að hafa eitthvað létt í matinn, þetta át nær engri átt. Borðaði svínamedalíur í gær með steiktu grænmeti og sósu. Best að borða bara grænmeti eða núðlur í dag.

Bestu kveðjur úr 2ja stiga hita og rigningu.

4 ummæli:

  1. flottir gaurarnir, thad er eins og englabaugur se yfir julian a myndinni...

    SvaraEyða
  2. Haha, já teppið! Tungan ekki eins englaleg ;)

    SvaraEyða
  3. Hæ hæ, Til hamingju með þessa tvo nýju stráka, þeir eru flottir eins og alltaf.
    Eg er nú ekki viss um að afi þeirra verði hrifin.
    Eg óska þér gleðilegra áramóta og farsældar á komandi ári. Megi nýja árið færa ykkur öllum gleði og frið.
    Kveðja mamma

    SvaraEyða
  4. Nei, afi verður sennilega ekki hrifinn af þessum "nýju" strákum....þeir verða kannski komnir með sítt hár næst þegar hann hittir þá ;) Vonandi verður það á nýju ári.

    Heyrumst fljótlega mamma.

    SvaraEyða