Örstutt í dag. Var að gera síðuna aðeins jólalegri, tók myndina hér fyrir ofan af "jólaþorpinu" okkar. Strákarnir eru rosa hrifnir og fengu að kaupa sér fígúrur til að setja í þorpið. Ætlum að gera það að hefð að kaupa eitthvað á hverju ári.
Hef enga mynd til að skella hér inn, þessi fyrir ofan verður að duga í dag. Fólk er hvort eð er örugglega löngu hætt að líta hér við. Ég tala nú ekki um í jólaundirbúningnum. Þegar mamma er nú hætt að kvitta er illt í efni!
Ég hef samt enn þessa þörf til að tjá mig hér, get notað þetta til að muna hluti. Gleymskan eykst jú frá ári til árs. Get kannski lesið hvað ég gerði árið 2009 þegar ég verð 100 ára........hver veit.
Það var alveg indælt að vera í fríi í dag. Fór með jakka af Julian "rennilásabana" í viðgerð, þarf nýjan rennilás. Náði svo í nýju gleraugun mín og skellti mér í klippingu, lét ekkert taka neitt mikið, særa aðeins og "þynna". Rambaði svo um bæinn, sýndi mig og sá aðra. Fór í H&M, C&A (keypti mér m.a. síðan rauðan silki náttkjól þar) ofl. Keypti mér svo ilmvatn í dm. Alltaf þegar ég hef tíma til að skoða OG máta föt finn ég ekkert. Þessa stundina er tískan líka ekki beint hliðholl mínum vexti.......síðir bolir, víðir bolir, síðar peysur, leggings, ökklaskór, mussur í milljónatali osfrv. Ég er svo gamaldags og vanaföst að ég kaupi alltaf það sama, gallabuxur og langerma bolur er mitt "outfit". Ég ætla nú samt í kjól, sokkabuxur og ermar um jólin, læt mig hafa það.......
Jæja, hætti núna, sjónvarpið kallar á mig........Inga.......Inga........Inga........komdu og kveiktu á mér. Fáðu þér te og slakaðu á.
See you
Hæ hæ, taka tvö er ekki alveg klár hvernig eg kvitta var búin að skrifa texta sem fór bara eg veit ekki hvert. kveðja mamma
SvaraEyðaFyrirgefðu að eg kvittaði ekki síðast, hafði bara ekkert að segja held eg. Það hefði nú ekki verið amalegt að vera með þér í bænum í dag þótt mig vanti nú ekkert og sé enn meira gamaldags og vanaföst í fatavali. Njóttu sjónvarpsins án fjarstýsingaflakkarans. Knúsaðu kallana fyrir mig. Kveðja mamma.
SvaraEyðaElsku Inga mín, ég les þig alltaf þó ég kvitti ekki ég er ekki mikill kvittari þú fyrirgefur það, er það ekki? Ég hef nefnilega nógan tíma við tölvuna ég á nefnilega bara eftir að kveikja á jólatrénu og brytja súkkulaðið.Ég vildi að mussurnar og stóru bolirnir væru komnir í kaupfélagið okkar þá yrði ég glöð eitthvað fyrir mitt vaxtarlag. Knús á karlmennina og hafið það gott Valla frænka.
SvaraEyðaÞið systur eruð ágætar :) Gott að vita af ykkur.
SvaraEyðaÉg fyrirgef þér sko alveg, elsku Valla. Þú ættir nú bara að skella þér í verslunarferð til Þýskalands ;) Skoðum það þegar krónan er ekki alveg svona slök ;) Helv... dýrt að versla núna.
(það er einhver netormur sem hefur stolið kvitti héðan...)
SvaraEyðajólaþorpið ykkar er glæsilegt!
tískan, almáttdugurinn - sokkabuxur og víðar mussur - bara eins og einhver fjandmaður minn hafi viljað mér allt illt...
bestu kveðjur í bæinn þinn
Hæ, les alltaf bloggið en stundum nokkrum dögum eftir birtingu... Núna átti ég inni tvö blogg. Pakkarnir eru klárir hér, ræs á pósthúsið á morgun.
SvaraEyðaKnús og kossar á liðið, U.
Hlakka til að fá pakkann, vona að hann lendi ekki í tollinum. Ykkar hefur kannski lent þar, eða þeir hjá Íslandspósti eru seinir í svifum.....Gastu fundið eitthvað út úr númerinu sem ég fékk?
SvaraEyðaGlæsileg mynd af þér hjá Töff Föt. Er þetta jólakjóllinn?
Knús, Inga